Fréttamál

Blóðmerahald

Afhjúpun

PMSG: „Hormón eymdar“ frá upphafi til enda

Lyf úr meðgöngu­hormóni fylfullra, íslenskra hryssa, hafa þær „óæskilegu aukaverkanir“ að of margir grísir, stundum of stórir, oft smáir og veiklaðir, fæðast gyltum á þýskum svínabúum. Blóðtakan hefur frá því í byrjun nóvember, eftir áminningu frá ESA, verið felld undir reglugerð um vernd dýra sem notuð eru í vísinda­skyni. Það gæti breytt öllu, segja þýsku og svissnesku dýra­verndunar­samtökin sem rannsakað hafa iðnaðinn í fjögur ár.
Fréttir

Átta fylfullar hryssur drápust í tengslum við blóðtöku

Sérgreina­dýralæknir hrossa hjá MAST segir það „enga katastrófu“ þótt átta fylfullar hryssur hafi dáið eftir blóðtöku á vegum Ísteka síðasta sumar. Staðfest þykir að að minnsta kosti ein hryssa dó vegna stungunnar og blæddi út og telja bæði MAST og Ísteka reynslu­leysi dýra­læknisins mögulega um að kenna. Hinar fundust dauðar 2–3 dögum eftir blóð­tökuna.

9 mín. lestur

Viðtal

Ísteka: Reynslu­leysi dýralækna líklegasta skýringin

Íslenskir dýra­læknar hættu störfum hjá Ísteka eftir neikvæða umfjöllun um starfsemi fyrir­tækisins. Þrír pólskir dýra­læknar, sem enga reynslu höfðu af blóðtöku úr fylfullum hryssum, voru ráðnir. Þeir fengu þjálfun hjá Ísteka en reynslu­leysi er að mati framkvæmda­stjóra fyrir­tækisins líklegasta orsök þess að átta hryssur drápust í tengslum við blóð­tökuna í fyrra.
Fréttir

Lögregla segi ósatt um blóð­mera­rannsókn

Dýra­verndunar­samtök neituðu aldrei að afhenda lögreglu á Íslandi myndbönd af meintu dýraníði í blóð­merarhaldi á Íslandi. Stað­hæfingar lögreglu um að þess vegna hafi rannsókn á blóð­merahaldi verið hætt, eru rangar. Þetta segir talsmaður þýskra dýraverndar­samtaka og gögn um samskipti samtak­anna við íslensk yfirvöld styðja söguna. Samtökun íhuga að kvarta undan sleifar­lagi lögreglu í málinu.

Mest lesið undanfarið ár