Svæði

Austurland

Úttekt

Feðra­veldið í frysti­húsinu

Töluverð ólga hefur verið meðal starfs­fólks í frysti­húsi Loðnu­vinnslunnar á Fáskrúðs­firði síðustu vikur. Ung kona skrifaði grein í héraðs­fréttamiðil Austur­lands þar sem hún lýsti lang­varandi kynbundnu áreiti í ónafn­greindu frysti­húsi fyrir austan, en jafnvel þótt hvorki bæjar­félag né gerandi hafi verið nefnd í greininni varð öllum á Fáskrúðs­firði ljóst um hvern væri að ræða. Stjórn­endur Loðnu­vinnslunnar brugðust strax við og réðu tvo sálfræðinga til að ræða við starfs­fólk og vinna aðgerðar­áætlun til að bregðast við ástandinu. Engu að síður óttast starfs­fólk að ekkert muni breytast, málið verði kæft enn einu sinni og maðurinn fái að halda uppteknum hætti. Honum var ekki vikið úr starfi á meðan athugunin fór fram.

12 mín. lestur

Fréttir

Alcoa á Íslandi flutti 3,5 milljarða skatt­laust úr landi

Vaxta­greiðslur Alcoa á Íslandi ehf. til móður­félags síns í Lúxemborg nema nú tæplega 57 milljörð­um króna frá byggingu álversins á Reyðar­firði. Á sama tíma hefur bókfært tap numið rúmlega 52 milljörðum króna. Fyrr­verandi ríkis­skattstjóri hefur sagt tapið vera tilbúið til að komast hjá skatt­greiðslum en Alcoa rekur það til mikillar fjár­festingar á Íslandi.

Mest lesið undanfarið ár