Aðili

Arnarlax

FréttirLaxeldi

Matvæla­ráðherra lítur slysa­sleppingar í laxeldi alvarlegum augum

Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra segir að nú standi yfir vinna sem gengur út á að endur­skoða laga- og regluverk með laxeldi í sjókvíum á Íslandi. Hún segir að einnig sé til skoðunar hvort heppilegt sé að mikill meirihluti hluta­bréfa í íslenskum laxeldis­fyrirtækjum sé í eigu erlendra aðila. Svandís segir að laxeldi hafi haft jákvæð áhrif á byggða­þróun á Íslandi en að vanda þurfi til verka.
ÚttektLaxeldi

Sveitar­stjórnar­menn og hættan á hagsmuna­árekstrum í íslensku laxeldi

Fjögur dæmi eru um það að íslenskir sveitar­stjórnar­menn hafi verið starfandi hjá laxeldis­fyrirtækjum á Vestfjörðum og Austur­landi á sama tíma og þeir voru kjörnir fulltrúar. Fjögur slík dæmi er hægt að finna frá síðasta kjör­tímabili sveitar­stjórna en í dag er aðeins einn starfs­maður laxeldis­fyrirtækis starfandi í sveitar­stjórn. Þetta fólk segir að ekki sé rétt­læt­an­legt að skerða atvinnu­möguleika fólks í litlum bæjum þar sem ekki sé mikið um fjöl­breytta atvinnu.

11 mín. lestur

FréttirLaxeldi

Starfs­mönnum Arctic Fish sagt frá samruna við Arnarlax: „No comment“

Stjórn­endum laxeldis­fyrir­tækisins Arctic Fish á Ísafirði var sagt frá því fyrir helgi að til standi að sameina fyrir­tækið og Arnarlax á Bíldudal. Á mánudaginn var greint frá kaupum norsks móður­félags Arnarlax, Salmar, á eiganda Arctic Fish, Norway Royal Salmon. Talað var um mögu­leikann á samlegðar­áhrifum í rekstri fyrir­tækjanna tveggja og er ljóst að þessi fyrirtæki verða í fram­tíðinni rekin undir einum hatti.
FréttirLaxeldi

Einn laxeldis­risi verður til á Vestfjörðum: Eigendur Arnarlax og Arctic Fish sameinast

Norskur eigandi laxeldis­fyrir­tækisins Arnarlax á Bíludal ætlar að kaupa eiganda Arctic Fish á Ísafirði. Fyrir vikið verða tvö stærstu laxeldis­fyrirtæki Íslands í eigu sama norska fyrir­tækisins. Í tilkynningu um samrunann kemur fram að samlegðar­áhrif í rekstri fyrir­tækjanna náist með þessu. Samanlagt framleiða þessi fyrirtæki rúman helming af öllum eldislaxi í sjó á Íslandi.
FréttirLaxeldi

Selja fæðu­bótarefni úr norskum eldislaxi eins og það sé úr „100% náttúru­legum“ laxi

Íslenska fyrir­tækið Unbroken, sem selur samnefnt fæðu­bótarefni, vísar til þess að fyrir­tækið framleiði vöru sína úr 100 prósent náttúru­legum laxi. Framkvæmda­stjóri fyrir­tækisins, Steinar Trausti Kristjánsson, segir að orðalagið sé tekið frá norska laxeldis­risanum Mowi sem fram­leiðir eldis­laxinn sem fyrir­tækið notar. Unbroken á í samvinnu við Ferða­félag Íslands sem hefur náttúru­vernd og sjálfbærni að leiðar­ljósi í rekstri sínum.

Mest lesið undanfarið ár