Aðili

Arctic Fish

FréttirLaxeldi

Matvæla­ráðherra lítur slysa­sleppingar í laxeldi alvarlegum augum

Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra segir að nú standi yfir vinna sem gengur út á að endur­skoða laga- og regluverk með laxeldi í sjókvíum á Íslandi. Hún segir að einnig sé til skoðunar hvort heppilegt sé að mikill meirihluti hluta­bréfa í íslenskum laxeldis­fyrirtækjum sé í eigu erlendra aðila. Svandís segir að laxeldi hafi haft jákvæð áhrif á byggða­þróun á Íslandi en að vanda þurfi til verka.
ÚttektLaxeldi

Sveitar­stjórnar­menn og hættan á hagsmuna­árekstrum í íslensku laxeldi

Fjögur dæmi eru um það að íslenskir sveitar­stjórnar­menn hafi verið starfandi hjá laxeldis­fyrirtækjum á Vestfjörðum og Austur­landi á sama tíma og þeir voru kjörnir fulltrúar. Fjögur slík dæmi er hægt að finna frá síðasta kjör­tímabili sveitar­stjórna en í dag er aðeins einn starfs­maður laxeldis­fyrirtækis starfandi í sveitar­stjórn. Þetta fólk segir að ekki sé rétt­læt­an­legt að skerða atvinnu­möguleika fólks í litlum bæjum þar sem ekki sé mikið um fjöl­breytta atvinnu.

11 mín. lestur

GreiningLaxeldi

11,5 milljarðar fara til Kýpur eftir sölu á auðlinda­fyrirtækinu

Íslenska stór­útgerðin Síldar­vinnslan er orðin stór fjár­festir í laxeldis­fyrirtækinu Arctic Fish á Ísafirði eftir að hafa keypt sig inn fyrir 13,7 milljarða króna. Hluta­bréfin voru að langmestu leyti í eigu fyrir­tækis á Kýpur sem pólski fjár­festirinn Jerzy Malek. Í kjölfarið er útgerðar­félagið Samherji beint og óbeint orðin einn stærsti hags­munaðilinn í íslensku landeldi og sjókvíaeldi á eldislaxi.
FréttirLaxeldi

Starfs­mönnum Arctic Fish sagt frá samruna við Arnarlax: „No comment“

Stjórn­endum laxeldis­fyrir­tækisins Arctic Fish á Ísafirði var sagt frá því fyrir helgi að til standi að sameina fyrir­tækið og Arnarlax á Bíldudal. Á mánudaginn var greint frá kaupum norsks móður­félags Arnarlax, Salmar, á eiganda Arctic Fish, Norway Royal Salmon. Talað var um mögu­leikann á samlegðar­áhrifum í rekstri fyrir­tækjanna tveggja og er ljóst að þessi fyrirtæki verða í fram­tíðinni rekin undir einum hatti.
FréttirLaxeldi

Einn laxeldis­risi verður til á Vestfjörðum: Eigendur Arnarlax og Arctic Fish sameinast

Norskur eigandi laxeldis­fyrir­tækisins Arnarlax á Bíludal ætlar að kaupa eiganda Arctic Fish á Ísafirði. Fyrir vikið verða tvö stærstu laxeldis­fyrirtæki Íslands í eigu sama norska fyrir­tækisins. Í tilkynningu um samrunann kemur fram að samlegðar­áhrif í rekstri fyrir­tækjanna náist með þessu. Samanlagt framleiða þessi fyrirtæki rúman helming af öllum eldislaxi í sjó á Íslandi.
FréttirLaxeldi

Umhverfis­stofnun fundaði með Arctic Fish eftir birtingu mynd­bandsins en telur ekki tilefni til aðgerða

Mynd­bandið sem Veiga Grétars­dóttir kajak­ræðari tók af bakteríu­lagi undir sjókvíum laxeldis­fyrir­tækisins Arctic Fish í Dýrafirði gefur ekki tilefni til sérstakra aðgerða af hálfu Umhverfis­stofnunar. Stofnunin fundaði með Arctic Fish eftir birtingu mynd­bandsins. Laxeldis­fyrirtækið fær hins vegar ekki heimild til að setja út meiri eldisfisk í kvíarnar að svo stöddu.
ViðtalLaxeldi

Veiga afþakkaði fjórar milljónir: „Ég ætla að standa með nátt­úrunni“

Veiga Grétars­dóttir kajak­ræðari varð lands­þekkt þegar hún leiðrétti kyn sitt og réri rangsælis í kringum Ísland. Hún er einn af háværari gagn­rýnendum laxeldis á Vestfjörðum og hefur birt myndir af afskræmdum eldis­löxum. Í viðtali við Stundina ræðir hún um nýtt myndband sem hún tók undir eldis­kvíum í Dýrafirði, baráttu sína gegn laxeldinu og hvernig það er að vera gagnrýnin rödd í litlu samfélagi fyrir vestan.

12 mín. lestur

4:58
FréttirLaxeldi

Myndband af botni Dýra­fjarðar sýnir líklega „bakteríu­mottu“ vegna laxeldis

Myndband sem tekið var á 30 metra dýpi undir sjóvkvíum í Dýrafirði sýnir það sem líkast til er hvítt lag af bakteríum. Einungis er um að ræða annað slíka mynd­bandið sem tekið hefur verið, svo vitað sé, segja sérfræðingar hjá Hafró. Bakteríurnar eru ekki hættulegar mönnum en geta haft áhrif á lífríki sjávar og sýna líklega að of mikið sé af laxeldis­kvíum í firðinum og að eldið sé ekki sjálfbært þar að öllu óbreyttu.
FréttirLaxeldi

Eigandi Arctic Fish segir 300 til 400 þúsund eldislaxa hafa drepist í Dýrafirði

Á milli 300 og 400 þúsund eldis­laxar hafa drepist í sjókvíum Arctic Fish í Dýrafirði síðustu vikurnar. Eigandi fyrir­tækisins, norska eldis­fyrirtækið Norway Royal Salmon, sendi frá sér tilkynningu vegna þessa í gær. Tilkynningin kom í kjölfar þess að myndir voru birtar af dauðu löxunum. Laxa­dauðinn mun hafa áhrif á ársafkomu og slátur­tölur fyrir­tækisins.
FréttirLaxeldi

Ljós­myndir sýna stór­felldan laxadauða hjá Arctic Fish á Þingeyri

Myndir sem teknar voru á Þingeyri í gær sýna laxa­dauðann sem fyrir­tækið Arctic Fish glímir við þar í kjölfar veðursins sem geisað hefur á Vestfjörðum. Fjölmörg kör af mismun­andi illa förnum og sundur­tættum eldislaxi eru tæmd í norskt skip sem vinnur dýrafóður úr eldis­laxinum. Arctic Fish hefur sagt að laxa­dauðinn í sjókvíum fyrir­tækisins kunni að nema 3 prósentum en ljóst er að hann er miklu meiri en það.

Mest lesið undanfarið ár