Fréttamál

Alþingiskosningar 2021

49:02
FréttirKosningastundin

Bjarni Bene­dikts­son sem for­sæt­is­ráð­herra er fyrsta til­boð Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Birgir Ármans­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, svarar fyrir stefnu og feril flokks­ins í Kosn­inga­stund­inni. Hann ver ráð­herra flokks­ins, heitir áherslu á skatta­lækk­anir og segir kosn­inga­lof­orðin fjár­magn­ast með hag­vexti. Flokk­ur­inn mun gera upp­haf­lega kröfu um að for­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son verði for­sæt­is­ráð­herra í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum.

31 mín. lestur

43:39
FréttirKosningastundin

Þor­gerður Katrín varar við íhalds-hægri stjórn

Viðreisn telur að teng­ing krónu við evru sé besta og fljót­virkasta tækið sem hægt er að beita í hag­stjórn­ar­málum til að bæta hag almenn­ings og fyr­ir­tækja. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, gagn­rýnir sitj­andi rík­is­stjórn fyrir kyrr­stöðu og vörð um sér­hags­muni. Hún vill færa stjórn­málin inn á hina frjáls­lyndu miðju.

16 mín. lestur

39:50
FréttirKosningastundin

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn til­bú­inn til að reka rík­is­sjóð með halla um fyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð

Ráðast þarf í kerf­is­breyt­ingu í öllum vel­ferð­ar­málum þar sem fjár­fest verður í fólki segir Ásmundur Einar Daðason, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík norður. Hefð­bundin hug­mynda­fræði sem byggir á að það séu mála­flokkar kalli bara á útgjöld er gjald­þrota að hans mati. Hann sjálfur og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn séu í sókn í átt að auk­inni félags­hyggju.
Fréttir

Sig­mundur Davíð vill „hjálpa öðrum flokkum á rétta braut“

Í við­tali í Morg­un­blað­inu talar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, um að vilja hjálpa öðrum flokkum á rétta braut og án þeirra áhrifa munu þeir „halda áfram póli­tískri eyði­merk­ur­göngu sinni“. Lofts­lags­stefnu stjórn­valda segir hann fela í sér frels­is­skerð­ingu og útlend­inga­stefnan bjóði „stór­hættu­legum glæpa­gengjum“ til Íslands til að „hneppa [Íslend­inga] í ánauð“.
Greining

Sós­í­alistar segj­ast ætla að útrýma fátækt á næsta ári og boða for­dæma­litla útgjalda­aukn­ingu

Stefnu­mál Sós­í­alista­flokks­ins kosta gríð­ar­lega fjár­muni sem flokk­ur­inn ætlar að mæta með auk­inni skatt­heimtu af hinum eigna­meiri. Flokk­ur­inn gerir ekki grein fyrir því hvaða fjár­hæðir gætu komið í hlut rík­is­ins með þeim hætti. Sós­í­alistar boða lækk­aðar álögur á elds­neyti og það að dóm­stólar verði ruddir ef þörf krefur.

10 mín. lestur

Fréttir

Tillögur Flokks fólks­ins í skatta­málum kosta rík­is­sjóð á annað hund­rað millj­arða

Flokkur fólks­ins vill hækka skatt­leys­is­mörk í 350 þús­und krónur. Ef það yrði nið­ur­staðan myndu tekjur rík­is­ins skerð­ast gríð­ar­lega. Ekkert er í hendi með hvernig á að mæta slíkum tekju­sam­drætti en flokk­ur­inn lofar að „fjár­magna kosn­inga­lof­orðin“. Sé rýnt í þau lof­orð fæst ekki séð hvernig á að standa við þau.

Mest lesið undanfarið ár