Flokkur

Aðsendar greinar

Aðsentforseti2016

Davíð Oddsson

Kostir og leyndir gallar

Unga parið sem er nýbúið að ráð­ast í að kaupa sína fyrstu íbúð, kann­ast við áhyggj­urnar. Hjónin sem ákváðu að selja húsið sitt, minnka við sig og kaupa hent­uga íbúð, sem er sér­stak­lega ætluð þeim sem eru að ljúka starfsæv­inni, þekkja áhætt­una. Leyndir gallar geta koll­varpað öllum fjár­hags­á­ætl­unum. Undir loft­klæðn­ing­unni grass­erar heilsu­spill­andi sveppur. Þakið reyn­ist ónýtt í óveðri, frá­gangur á...
Aðsentforseti2016

Guðrún Margrét Pálsdóttir

Þjóð á tíma­mótum

Þrátt fyrir að Ísland sé í 4. sæti um þessar mundir yfir lönd þar sem lífs­gæði eru mest þá á ógn­væn­leg þróun sér stað hér á landi. Margir taka kannski ekk­ert eftir henni en hún snertir aðra hins vegar djúpt. Kvíði, þung­lyndi, fjötrar fíkna, van­líðan og sjálf­skaði eru vax­andi vanda­mál í þjóð­fé­lagi okkar sem fjöldi barna og ung­linga glíma við....
Aðsentforseti2016

Helgi Skúli Kjartansson

Hvorn stíl­inn viljum við?

Ein lítil póli­tísk minn­ing rifj­ast oft upp fyrir mér, til dæmis núna í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga. Hún hlýtur að vera meira en tíu ára gömul, því þá voru þeir ungir menn og upp­renn­andi í borg­ar­mál­unum, Dagur borg­ar­stjóri (sem nú er) og Gísli Marteinn. Einhver góður útvarps­maður, vís­ast Hall­grímur Thor­steins­son, hafði stefnt þeim saman sem tals­mönnum and­stæðra fylk­inga. Ekki man ég lengur...
Aðsent

Karólína Helga Símonardóttir

Hafn­ar­fjörður fyrir fjöl­skyldu­fólk

Frá því Björt fram­tíð tók sæti í meiri­hluta bæj­ar­stjórnar í Hafn­ar­firði hefur bragur bæj­ar­fé­lags­ins breyst til muna. Lögð er mikil áhersla á að koma til móts við fjöl­skyldu­fólk, gera bæinn mun meira aðlað­andi en á sama tíma að taka skyn­sam­legar ákvarð­anir í fjár­málum bæj­ar­ins. Að reka bæj­ar­fé­lag er svo­lítið eins og að reka fjöl­skyldu, það getur verið flókið, per­sónu­legt og...
Aðsentforseti2016

Guðni Th. Jóhannesson

Gamla, danska flíkin

Kafli úr vænt­an­legri bók Guðna um for­seta­emb­ættið: Í stjórn­ar­sátt­mála nýsköp­un­ar­stjórn­ar­innar var ekki töluð nein tæpitunga. Nú skyldi ráð­ist í þá sönnu stjórn­ar­bót sem ekki var hægt að hefja þegar Íslend­ingar þurftu að standa saman um stofnun lýð­veldis. Nauð­syn­legri end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar skyldi lokið sem fyrst þannig að frum­varp yrði sam­þykkt, þing rofið og kosn­ingar haldnar „eigi síðar en síð­ari hluta næsta...
Aðsent

Guðmundur Kristján Jónsson

Hjartað í Vatns­mýri

Það er alltaf ánægju­legt þegar umræðan um flug­völl­inn í Vatns­mýri kemst í hámæli líkt og þessa dag­ana. Fá mál skipta þjóð­ina meira máli en þetta til­tekna lands­svæði í hjarta Reykja­víkur og ósk­andi væri að dómur hæsta­réttar um lokun flug­braut­ar­innar sem staðið hefur til að loka ára­tugum saman yrði til þess að skipu­lags­mál í Reykja­vík verði að kosn­inga­máli í kom­andi kosn­ingum....
Aðsentforseti2016

Sturla Jónsson

Æðsti emb­ætt­is­maður þjóð­ar­innar

Ekki fer milli mála að þær greinar stjórn­ar­skrár­innar sem fjalla um for­seta­emb­ætttið eru allar virkar þótt þeim hafi ekki nema að huta til verið beitt á lýð­veld­is­tím­anum. Það var stað­fest með því að núver­andi for­seti ákvað að nota 26. grein stjórn­ar­skrár­innar til að vísa lögum frá Alþingi til þjóð­ar­innar. Ef Sturla H. Jónsson verður kjör­inn for­seti mun hann óhikað leita...
Aðsent

Guðjón Sigurðsson

Ekki benda á okkur!

Margir fatl­aðir og veikir eru í þeirri ömur­legu stöðu sem þau eru í vegna áhuga­leysis stjórn­valda til að bæta úr því ástandi sem veldur stöðu okkar. Það er vegna mis­skipt­ingar á milli þjóð­fé­lags­hópa að við erum í kröppum dansi. Það eru núver­andi og stjórn­völd áður sem virð­ast nær­ast á því að gera sem flesta að þurfalingum, með aðgerð­ar­leysi, með ákvörð­un­ar­fælni,...
Aðsent

Hjalti P. Ingólfsson

Viltu stofna fyr­ir­tæki tengt umhverf­is­vænni orku­nýt­ingu?

Með síauk­inni áherslur á end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa, sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og orku­ör­yggi, hafa orku­kerfi sem byggja á sam­þætt­ingu mis­mun­andi orku­gjafa fengið auk­inn byr í seglin. Á COP21 í París í des­em­ber síð­ast­liðnum, náð­ist t.d. sögu­legur árangur í vit­und­ar­vakn­ingu þjóða sem ekki er þörf á að útlista hér. Jarð­hit­inn getur leikið hér mjög mik­il­vægt hlut­verk ásamt vind-, vatns-, sjáv­ar­falla- og sól­ar­orku....
Aðsentforseti2016

Elísabet Kristín Jökulsdóttir

Á háum hælum yfir Fimm­vörðu­háls

Hvernig líst þér á að koma með yfir Fimm­vörðu­háls? Fimm­vörðu­hvað? Það verður farið í Þórsmörk í kvöld, gist þar, vaknað í býtið og gengið yfir Fimm­vörðu­háls og komið að Skógum um kvöld­mat­ar­leytið og farið í sund. Eru fimm vörður á þessum Fimm­vörðu­hálsi? Við getum reynt að telja vörð­urnar. Er þetta ekki svaka­lega brattur háls? Hann er í þús­und metra hæð....
Aðsentvelferðarmál

Guðjón Sigurðsson

Ákvörð­un­ar­fælni er ban­væn hegðun!

Ákvörð­un­ar­fælni er ban­væn hegðun. Ekki endi­lega fyrir þann sem er hald­inn þessum hvim­leiða sjúk­dómi heldur þeim sem eiga allt undir að ákvörðun sé tekin af við­kom­andi. Ég nefni tvö dæmi, mis­al­var­leg en sem valda dauða hvort á sinn hátt. MND félagið hefur haldið uppá alþjóð­legan dag MND félaga með hjóla­stólarallý og tón­leikum, árum saman. Til að þetta geti orðið að...

Mest lesið undanfarið ár