Eigin konur

Orð þín eru of­beldi þeg­ar þau stang­ast á við rétt­indi og vel­ferð fólks

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir segir að umræða um trans sé enn mjög erfið í Bretlandi en hún vinnur sem greinahöfundur fyrir fréttamiðilinn MetroUK. „Í Bretlandi þarft þú bara að undirbúa þig undir að það verði sett mjög transfóbísk manneskja á móti þér og þið þurfið að rífast í beinni útsendingu,” segir Ugla en hún kom sjálf úr skápnum sem trans árið 2010 og flutti til Bretlands sex árum síðar. Ugla segir að bresk fjölmiðlamenning sé afar ofbeldisfull. Hún ræðir um ábyrgð fjölmiðla í þættinum Eigin Konur og veltir upp spurningunni hvenær umræða er tengd málfrelsi og hvenær hún er hreint og klárt ofbeldi. „Þegar þú ert farin að grafa undan réttindabaráttu minnihlutahópa, þá ert þú ekki lengur í neinu málfrelsi,“ segir hún í þættinum. Hún segir að hatursfull umræða sé farin að láta á sér kræla á Íslandi og að fólk gleypi auðveldlega við áróðri. Hún nefnir sérstaklega umræðuna um íþróttir og kynjuð rými sem hefur verið áberandi og þá sérstaklega varðandi transkonur í íþróttum. „Það er eins og það sé engin gagnrýnin hugsun eins og í tengslum við íþróttamál, að transkonur séu með einhverja yfirburði og það sé bara verið að skemma kvennaíþróttir,“ segir Ugla í þættinum.
· Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Edda Falak

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Vinaþjóðir leggja til vopn og peninga
    Úkraínuskýrslan #4

    Vina­þjóð­ir leggja til vopn og pen­inga

    Litla Gunna í Kristjaníu, litli Jón á Kvíabryggju
    Sif #12

    Litla Gunna í Kristjan­íu, litli Jón á Kvía­bryggju

    Arnar Þór: „Manneskja getur ekki verið köttur“
    Pressa

    Arn­ar Þór: „Mann­eskja get­ur ekki ver­ið kött­ur“

    Arnar Þór um Alþingi og málskotsréttinn
    Pressa

    Arn­ar Þór um Al­þingi og mál­skots­rétt­inn