Karlmennskan, hlaðvarp

„Sam­fé­lag án að­grein­ing­ar er ekki til“ - Leif­ur Leifs­son

Leifur Leifsson er aflraunamaður, crossfittari, fyrrverandi uppistandari og ræðumaður og starfsmaður í þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða. Leifur varpar ljósi á ráðandi karlmennskuhugmyndir út frá sínum reynsluheimi sem einstaklingur með hreyfihömlun sem notast við hjólastól. Á afskaplega kómískan hátt dregur Leifur fram krítískt sjónarhorn á able-ískt samfélagið, stéttaskiptingu innan hreyfihamlaðra einstaklinga, fordóma og staðalmyndir fólks gagnvart hreyfihömluðum. Hann telur skóla án aðgreiningar ekki vera til, ekki frekar en samfélag án aðgreiningar og finnst öll sértæku úrræðin sem hugsuð séu einkum og sérstaklega fyrir einstaklinga með fötlun minna óþægilega á aðskilnaðarstefnu. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson. Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs). Þátturinn er í boði: Dominos, Veganbúðarinnar, The Body Shop og bakhjarla Karlmennskunnar.
· Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Ruslið eftir Kanana á Grænlandi
    Eitt og annað · 08:02

    Rusl­ið eft­ir Kan­ana á Græn­landi

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28

    Bubbi og Hrefna Lena ræða ís­lensku

    Af pedalanum á bensíngjöfina
    Eitt og annað · 07:08

    Af pedal­an­um á bens­ín­gjöf­ina

    Vonast eftir bandaríska hernum
    Eitt og annað · 08:24

    Von­ast eft­ir banda­ríska hern­um