Karlmennskan, hlaðvarp

„Það er ekk­ert gott að geta ver­ið drullu­hali“ - Kött Grá Pjé (Atli Sig­þórs­son)

„Það er ekkert gott að geta verið drulluhali í einrúmi með vinum þínum“ segir Atli Sigþórsson sem er þekktari undir listamannsnafninu Kött Grá Pjé. Atli segist hafa verið bældur maður og Kött Grá Pjé hafi verið alteregó sem hafi hjálpað honum að takast á við sviðsskrekkinn. Alteregóið hafi þó verið heiðarleg gríma því í gegnum hana hafi hluti af Atla komist fram og Kött Grá Pjé orðið að sönnum Atla, eða öfugt. Við ræðum um tilfinningar, kvíða og þunglyndi sem Atli hefur talað opinskátt um. Við tölum um pólitík, prinsipp og málamiðlanir. Ræðum róttækan femínisma, feðraveldi, karlmennsku og naglalakk. Intro: Futuregrapher Outro: Jói P. og Króli - ON (instrumental) Þátturinn er tekinn upp í stúdíó Macland og er í boði Veganbúðarinnar og bakhjarla karlmennskunnar, en þú getur stuðlað að frekari hlaðavarpsþáttagerð og efnissköpun á samfélagsmiðlum með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili á karlmennskan.is/styrkja.
· Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Skátafjör og aldargamalt víðavangshlaup
Fólk07:10

Skáta­fjör og ald­argam­alt víða­vangs­hlaup

Upphafning fórnarinnar
Sif · 04:46

Upp­hafn­ing fórn­ar­inn­ar

Banvænt Excel-kukl og gróðafíkn
Sif · 04:43

Ban­vænt Excel-kukl og gróðafíkn

Staða mæðra á vinnumarkaði
Fréttir

Staða mæðra á vinnu­mark­aði