Þáttur48:19

„Það var enga vernd að fá“

„Við sitjum eftir í sorg, horfum yfir sögu sonar okkar og klórum okkur í höfðinu. Eftir stendur spurningin: Hvað gerðist?“ segir Hjörleifur Björnsson, en sonur hans, Hávarður Máni Hjörleifsson, svipti sig lífi þann 2. september, aðeins tvítugur. Feðgarnir voru báðir áhugamenn um tónlist, greindir með ADHD og glímdu ungir við fíkn, en eitt greindi þá að. Hávarður var brotinn niður af kerfi sem hann féll ekki inn í.
· Umsjón: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Handrit

4.982 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Erfiðleikar í grunnskóla

Ég heiti Hjörleifur Björnsson og ég er pabbi Hávars Mána, sem lést 2. september síðastliðinn, já. Hávarður Máni var bara alveg ótrúlega yndislegur drengur, rosalega opinn og góðhjartaður strákur. Hann var mjög ör. Það kom fljótt í ljós að hann væri mjög ör og ætti kannski svolítið erfitt með tilfinningarnar sínar, af því þær voru miklar, sko.

Honum gekk rosalega vel í leikskóla, þó að við hefðum alveg klárlega séð að hann væri líklega með einhverja greiningu sem kæmi í ljós. Þá átti hann samt gott samband við börnin, hin börnin og leikskólafóstrurnar og var í raun og veru bara svolítið hvers manns hugljúfi, sko, þrátt fyrir erfiðleika sína alla ævi. Það er bara svolítið stór og mikil spurning, sko. Þegar maður lítur til baka yfir ævi hans, þá byrja vandamálin og erfiðleikarnir í grunnskóla, mjög fljótt.

Þar eru kröfurnar meiri og kröfurnar eru nefnilega að börnin sitji bara kjurr og vinni verkefnin svona. Þá byrjuðu erfiðleikarnir einhvern veginn mjög fljótt og við þurftum mjög fljótt að fara að fá skilaboð frá skólanum hans um að þetta gengi ekki vel. Við vorum búin að fara sjálf með hann í gegnum greiningarferli til að flýta fyrir þessu. Við vildum ekki bíða í einhver ár, eins og maður heyrir því miður að fólk sé að gera. Þessir erfiðleikar urðu bara meiri og meiri og dýpkuðu bara.

Við vorum fljótlega kölluð á teymisfund með skólanum. Á þessum teymisfundum sitja yfirleitt skólastjórnendur, kennarinn og kannski námsráðgjafinn. Þá förum við, held ég, bara í sex eða sjö ára bekk að ræða einhver viðbrögð við erfiðleikum hans, einhverjar einu sinni. Giska á það, hvað voru margir? Við vorum alltaf á þessum teymisfundum.

Þegar ég lít til baka, þegar maður er inni í þessu ferli, þá fer maður einhvern veginn að hálfskammast sín fyrir barnið sitt, skilurðu. Maður fer að hugsa: Af hverju getur hann ekki bara þegið og hlustað? Maður fer að skamma barnið sitt og maður fer að taka þátt í því að reyna að troða honum ofan í þetta mót, þetta eina mót sem við bjóðum upp á í grunnskólum. Þetta bara brýtur hann niður, skilurðu.

Hann var að koma heim til okkar með einkunnaspjöld sem stóðu tveir og þrír á, á meðan systkini hans áttu ekki öðru að venjast með þetta, sko. Ég var alltaf að reyna að stappa í hann stálinu, útskýra fyrir honum að þetta segði ekkert til um hver hann væri. „Þetta er bara eitthvað sem þú munt ná tökum á,“ og svo framvegis. En þetta braut hann bara ofboðslega mikið niður, vegna þess að honum langaði svo einlæglega bara til þess að geta staðið sig og verið hluti af. Það var bara það sem hann þráði alltaf, sko. Hann var alltaf kurteis og velviljaður, vildi bara að við værum stolt af sér og ánægð með hann og gerði alltaf sitt besta. En þegar kom að skólanum og

Hérna, og þessum ramma sem er boðið upp á þar, þá bara hreinlega réði hann ekki við það og bara við gátum ekki tæklað þetta, sko, þannig að þar byrja hans erfiðleikar númer eitt, tvö og þrjú, sko.

Og þar rákum við okkur á einhvern veginn, og eins og ég sagði áðan, þegar maður er inni í þessu þá verður maður, snýst maður svona og sveif með skólanum. Tekur svolítið stöðu gegn barninu sínu með skólanum af því að jú, þetta er skólinn og þetta á að vera einhvern veginn og hann á að standa.

En bleiki fíllinn í stofunni allan tímann var í raun og veru að það voru engin úrræði í boði fyrir barnið okkar, skilurðu. Það var engin, sko. Allt þetta fólk sem sat þessar teymisfundir með okkur var allt innilega vel meinandi alltaf og það vildu allir bara hjálpa drengnum okkar, en þau bara gátu það ekki, þú veist.

Og það sem okkur og honum var boðið upp á, þrátt fyrir allt sem var sagt á þessum teymistundum, var bara að taka hann út úr skólastofunni, láta hann sitja einan fyrir utan skólastofuna, geyma hann inni á bókasafni, geyma hann hjá skólastjóranum af því að hann funkar ekki inn í þessum ramma. Og þetta braut hann bara meira og meira niður, sko.

Þannig verða til þessir, þú veist, svona verður til þetta niðurbrot hjá honum. Og ég vildi óska þess að ég vissi í dag það sem ég veit í dag.

En það var bara ekkert til að grípa hann, þú veist. Hann var of heilbrigður fyrir einhverjar svona róttækar úrræði sem eru í boði, þú veist. Börn þurfa helst bara að vera eitthvað alvarlega fötluð til þess að passa þar.

Og svo var hann of veikur fyrir skólakerfið, sko, þannig að hann lendir algjörlega á milli og er í raun og veru bara útilokaður frá jafningjum sínum. Og þetta mölbraut hann niður, sko. Alveg sama hvað við reyndum að segja við hann og byggja hann upp og vera jákvæð á eitthvað, þá var þetta það sem í raun og veru braut rosalega á sjálfsmyndinni hans, sko.

Neyðarvistun og úrræðaleysi

Þegar hann er tólf ára gamall þá fer hann sem sagt út í það að reykja kannabis og hann varð strax mjög öfgakenndur í þeirri hegðun. Hann fór að láta sig hverfa, við vissum ekkert hvar hann var og við vorum að leita að honum. Við sáum það strax að við réðum ekkert við þetta, þannig að við hringdum í barnavernd og biðjum þau um aðstoð.

Í kjölfarið á því leitar lögreglan að honum og hann er settur inn á neyðarvistun, sem er neyðarúrræði á vegum barnaverndar.

Og það sem við fáum að vita eftir á, eftir að þetta gerist, er að hann er geymdur með 17 ára gömlum dreng sem er mjög langt genginn inn í sinni fíkn og er sérstu orðinn sprautufíkill. Drengurinn okkar, tólf ára gamall, er geymdur einn með honum inni á neyðarvistun.

Og þetta er auðvitað eitthvað sem á að, þú veist, halda við sko, og ég held ennþá að segja sig algjörlega sjálft: þetta er bara út í hött, gjörsamlega út í hróa, sko. Að barn í sjöunda bekk sé að sitja eitt með dreng á framhaldsskólaaldri sem er orðinn harðnaður sprautufíkill, sko.

Þannig að við gerum alvarlegar athugasemdir við þetta við barnavernd og þá er okkur bara sagt að svona sé þetta bara og þetta sé bara það sem er í boði, sko. Á sama tíma fer fíknivandi hans að þróast á ljóshraða við hann, gjörsamlega stökkbreyttist í kjölfarið á þessu.

Við bara, beinlínis eins og í þessu blessaða skólakerfi, stöndum frammi fyrir því að það eru engin úrræði fyrir barnið okkar, þrátt fyrir að við séum sjálf að leita til kerfisins. Við erum að biðja um hjálp, við erum að sýna ábyrgð, við erum að reyna að gera.

Okkar besta sem foreldrar til þess að koma í veg fyrir að barni okkar leiðist lengra. Við erum að leita lausna, en þá er þetta úrræðið sem okkur var boðið upp á og drengnum okkar eftir að þetta gerist.

Þá fer auðvitað bara allt í kaos og glundroða. Maður veit ekki sitt rjúkandi ráð. Okkur blöskraði þetta svo gjörsamlega að við fundum grasrótarsamtök sem heita Olnbogabörn, sem við fengum að vita að væru að berjast fyrir þessum málum, og við fórum inn í þessi samtök.

Það sem er hægt að segja um þessi samtök er að þau eru öll byggð upp af aðstandendum, fólki sem hefur misst börnin sín eða fólki sem er í þessari þrautagöngu. Við förum að vekja máls á þessu úrræðaleysi, við förum að vekja máls á þessu ofbeldi sem verið er að beita barnið okkar og börn bara hérna í samfélaginu. Við erum kölluð í einhver útvarpsviðtöl og svo fáum við fund með þáverandi félagsmálaráðherra.

Eftir að við göngum út af þessum fundi var ég fullur bjartsýni og vonar um að nú yrði eitthvað gert og það yrði gert strax. Þá er ég bara að tala um að þessar lágmarksleiðréttingar yrðu gerðar, þess í stað að það yrði algjörlega aldursskipt í barnahópum sem þurfa að fara í þetta neyðarúrræði barnaverndar. En síðan sjáum við að það var ekkert gert og ennþá í dag hefur ekkert verið gert.

Drengurinn okkar, eftir endalausa vandræðagöngu í þessum pakka, fer á unglingaheimili á Lækjarbakka.

Hvert fær hann og aðstandendur hans frí frá þessari neyslu og þessum martröðum sem fylgja því? En hann var algjörlega orðinn ofurseldur þarna. Þegar hann fær bæjarleyfi var hann að detta í það og láta sig hverfa. Það eru leitabeiðnir og lögreglan og neyðarvistun og svo aftur upp á Lækjarbakka, og þá byrja bara þessir vítahringir.

Fullorðinsár og geðdeild

Þegar hann verður lögráða, eftir að hafa verið inni í þessari hringrás í sex ár, frá tólf til átján ára, kveið okkur alveg óboðslega mikið fyrir því að hann yrði lögráða, vegna þess að þá væri ekkert öryggisnet.

Þegar hann verður lögráða versnar neyslan hans og hann fer að upplifa alvarleg geðrof í kjölfar ofneyslu á fíkniefnum, eins og er vel þekkt hjá okkur öllum sem höfum þurft að glíma við þennan sjúkdóm. Þá byrjar geðdeildarbrasið. Þá er verið að vísa honum frá vegna þess að hann er ekki nógu veikur.

Þú mætir þarna inn og fyllir út einhvern spurningalista, og svo þarftu að geta lýst því nákvæmlega hvernig þú ætlar að fyrirfara þér. Það virðist vera einhvern veginn lentillinn þangað inn, að þú sért að fara að fyrirfara þér og vitir nákvæmlega hvernig þú ætlar að gera það. Sonur minn var aldrei svona suicidal.

Það var aldrei talað um að hann ætlaði að fyrirfara sér, en til þess að komast inn á geðdeild og fá aðstoð þurfti hann að ljúga því að fólkinu, að hann væri að fara að fyrirfara sér og hvernig hann ætlaði að gera það. Það er það fyrsta sem við rekum okkur á.

Þegar hann var orðinn fullorðinn var auðvitað kominn persónuvernd. Við fáum upplýsingar; við fáum bara að heyra það sem hann segir okkur. Þegar hann nær edrú köflum á milli, þá stendur þessi barningur yfir í rúmlega tvö ár. Hann sá aldrei til sólar. Hann náði að klára Hlaðgerðakotsmeðferð.

Móðurlega stolt árum saman, auðvitað allan tímann, en vonir okkar kviknuðu þá um að hann myndi ná þessu. Hann náði þremur mánuðum edrú og svo hrasaði hann aftur og réð bara ekki við neitt.

Svo fór geðvandi hans að þróast, samhliða neyslunni, og þetta endaði með því að hann fyrirfór sér 2. september síðastliðinn. Þetta er í mjög stórum dráttum hans saga.

Kerfið brást syni hans

Ástæðan fyrir því að ég skrifaði pistil og er í þessu viðtali, og að við stígum fram, sem maður vill auðvitað ekki þurfa að gera á svona tímum, er einfaldlega sú að við förum í gegnum einhverja heljargöngu með syni okkar og hvergi á leiðinni er hann gripinn með einhvers konar uppbyggjandi úrræðum.

Það sem mér finnst kannski sárast í þessu öllu er að hann hafi ekki verið gripinn inn í grunnskólakerfinu áður en fíknivandinn byrjar, áður en þessi martröð byrjar. Honum hafi ekki verið boðin einhvers konar úrræði þar sem hann gat verið í návist jafningja sinna og tekist á við verkefni sem hann gat leyst.

Hann var vel gefinn, vel máli farinn, fallegur, hæfileikaríkur drengur, og honum er einhvern veginn ýtt út úr skólastofunni. Honum er sagt leynt og ljóst að hann sé vitlaus, að hann sé vandamál, öll sín viðkvæmustu mótunarár. Og svo þegar þessi neysla byrjar, þá var bara engin leið til baka.

Einmitt, eins og þú varst að tala um, þá var neyslan viðbragð við vanlíðan, alveg klárlega, vegna þess að hann hafði ekkert að sækja þangað. Hann var nánast alltaf einn þegar hann var að þessu.

Hann átti stóra fjölskyldu, sterkar fyrirmyndir sem voru allar edrú, allar staðfastar, allar vel virkar og fungerandi. Tvö falleg og góð, heilbrigð heimili. Þegar hann fór að fikta við að reykja kannabis og láta sig hverfa, var hann algjörlega á skjön við allan sinn jarðveg, og hann upplifði það líka.

Málið er bara að sem foreldri mætir maður á teymisfundi endalaust, tekur ábyrgð og leggur sig allan fram við að koma til móts við skólann og hjálpa barninu sínu. En það eru bara engin úrræði í boði sem geta gert það að verkum.

Þegar maður lítur til baka, þegar maður er kominn út úr þessu ferli, horfir maður á þessi endalausu fundahöld, öll fögru fyrirheitin og leiðirnar sem átti að reyna að fara. Maður sér bara að við vorum alltaf á byrjunarreit með drenginn okkar.

Þegar maður fer yfir söguna og spyr hvað hefði verið hægt að gera öðruvísi fyrir hann og önnur börn, þá var hann ekkert eina barnið sem var í þessum sporum, hvorki í Rimaskóla né Engjaskóla. Alls staðar er þetta eins. Það er það sem ég fæ að heyra frá öðrum foreldrum.

Það hefði verið hægt að búa til einhvers konar úrræði innan skólakerfisins þar sem lögð eru fyrir þau verkefni sem þau geta leyst. Það hefði verið hægt að búa til úrræði þar sem þau hefðu byggst upp, eins og grunnskóli hlýtur að eiga að gera.

Nú er ég enginn sérfræðingur, ég er enginn uppeldisfræðingur eða sérfræðingur um hvernig eigi að útfæra þetta.

Þessi úrræði, en það hlýtur að vera hægt að búa til einhver úrræði sem koma í veg fyrir að þessi börn séu mölbrotin í skólagöngunni sinni. Þú veist, við erum með hérna í þessu samfélagi alls konar greiningar. Við erum að koma upp meðvitund hérna um erfiðleika sem börn upplifa á sínum yngstu árum.

Við erum með einhverfugreiningar, við erum með ADHD, mótþróaþrjóskuröskun og hvað þetta heitir allt, en við erum engan veginn að bregðast við þessu á neinn hátt þar sem þau þurfa mest á því að halda, sem er í grunnskólakerfinu okkar. Þegar þau fara út í fíkniefnaneyslu og sá darraðardans byrjar, þá er þetta bara orðið of seint, sko. Eins og margir aðrir foreldrar geta sagt: „Þú ræður ekkert við neitt“, sko, þegar þau byrja að deyfa sig og þau hafa ekkert bakland til þess að koma til baka.

Það var algjör martröð að fá hann til að mæta í skólann. Hann hataði skólann, skilurðu, af því að honum leið svo ógeðslega illa þar. Ég ræddi oft við hann, sko, og mér fannst mjög sláandi einhvern veginn þegar ég var að tala við Hávarð. Þá sagði hann oft að þegar hann næði sér út úr sínum erfiðleikum, yrði edrú og kæmist í lag, þá langaði honum rosalega til að stíga fram og segja frá því hvernig skólakerfið braut hann niður, ekki þessar martraðavistarnir á Stuðlum heldur fyrst og fremst skólakerfið.

Mér fannst það mjög sláandi. Ég gerði mér ekki grein fyrir því hversu ógeðslega slæmt þetta var fyrir hann. Því miður þá er það einn af þessum hlutum sem ég sé mest eftir, sko: að hafa leitað til barnaverndar og beðið um aðstoð fyrir okkur, vegna þess að við vissum ekkert um þetta. Við vissum ekkert hvað biði hans í kjölfarið á því. Við héldum bara að við værum að gera rétt, við vorum alveg sannfærð um það. Við héldum að við værum að grípa snemma inn í, að bregðast strax við þessu.

En eins og ég sagði áðan, það sem kom í kjölfarið á því að biðja barnavernd um að aðstoða barnið okkar var að honum var hent inn í neyðarvistun á Stuðlum, þar sem hann sat með miklu eldri krökkum sem voru í miklu harðari neyslu. Í kjölfarið leitaði hann á netinu að upplýsingum um miklu eldri krakka sem voru í grjótharðri fíkniefnaneyslu. Þannig að eftir að þetta gerðist réðum við ekki við neitt, sko, bara ekkert.

Afbrotaferill og fangelsi

Samhliða svona stjórnleysi í neyslu hófust einhvers konar glæpafæri, ef það má segja. Svo byrjaði hann auðvitað að brjóta af sér, sko. Það er alls konar; yfirleitt eru þetta þjófnaðir, þú veist, þurfti að stela úlpum og fötum og verðmætum til að skipta í fíkniefni. Hans svona afbrotaferill, stutti afbrotaferill, hefst svona fyrir alvöru eftir að hann er orðinn lögráða, sko.

Og það sem er auðvitað alveg súrrealískt, sko, en ein ömurlega staðreyndin í þessu máli er sú að hann var handtekinn ótal sinnum á mjög stuttum tíma. Hann var dæmdur fyrir mörg afbrot, þú veist, ofbeldisbrot, þjófnaði, einhverja vonlausa þjófnaði.

Að hlaupa út úr búðum með úlpur. Ekki skipulögð glæpastarfsemi, heldur bara einhverjar svona örvæntingarfullar aðgerðir til þess að ná sér.

Og svo þarna undir lokin á þessu öllu saman, þá er hann handtekinn uppi í Breiðholti fyrir framan leikskóla, þar sem hann er með risastóran eldhúshníf á sér og er að biðja fóstruna um að fá að hringja.

Það er auðvitað bara farið í kerfið og hringt á lögregluna. Hann er handtekinn og þegar við heyrum þetta hef ég sjálfur samband við lögregluna og spyr þá bara í bragði: „Eftir hverju eruð þið að bíða? Þetta er í tuttugasta skiptið eða eitthvað. Hvað er í gangi? Skilurðu af hverju hann er ekki settur í síbrotagæslu? Af hverju er hann ekki tekinn úr umferð?“

Ég fékk að tala við einhvern varðstjóra hjá lögreglunni og þá sagði hann mér bara hreint út að það væri löngu búið að því undir eðlilegum kringumstæðum, en fangelsin okkar væru öll bara full. Annað væri ekki hægt.

Og þetta er enn eitt kerfið sem er að bregðast. Er hann gripinn neins staðar? Skilurðu, það er eins og við höldum einhvern veginn að lausnin á þessu sé að smala öllum þessum börnum saman eftir að fíknivandi þeirra er byrjaður og henda þeim öllum saman inn í einhverjar geymslur einhvers staðar, leyfa þeim að horfa á bíómyndir og það bara lægi þetta. Það verði bara einhvern veginn til þess að þetta lægist.

Ég bara skil þetta ekki. Ég næ ekki upp í þetta. Í þessu moldríka landi okkar, þar sem við eigum að eiga nóg til þess að geta verið með öfluga, sterka innviði, betri en nánast hvar sem er annars staðar, þá er þetta úrræðið eftir að fíknivandinn er byrjaður, án þess að svo sé talað um þegar þessi jaðarsetning byrjar í grunnskólanum. Viltu segja okkur eitthvað frá þér? Hvernig var að vera með hann veikan heima?

Útskrifaður í geðrofi

Eftir að hann var útskrifaður af geðdeild.

Já, sko, hann fór oft inn á geðdeild á mjög stuttum tíma og nokkrum sinnum átti hann pantaðan tíma í kjölfarið inn á Vog. Við auðvitað hugsuðum bara fyrst að það hlyti nú að vera að hann fengi að vera inn á geðdeild þangað til hann kæmist í meðferð. Mér fannst það liggja alveg í augum uppi miðað við hvað hann var orðinn ofboðslega mikið veikur, kominn með ofboðslega alvarlegt ofsóknarbrjálæði og ranghugmyndir.

En það virðist vera einhvern veginn venjan að taka á móti andlega veiku fólki og svo eru þau bara útskrifuð eftir einhverja daga eða einhvern stuttan tíma. Þá eru þau útskrifuð bara og við aðstandendur eigum að grípa þau og taka við þeim. Og ég meina, það gat enginn í sumum tilvikum.

Þannig að ég tók son minn inn á heimilið okkar meðan hann var að bíða eftir að komast í meðferð. Þar sat hann bara í eldhúsinu á móti mér, í bullandi geðrofi, skilurðu? Í bláum náttfötum. Útskrifaður af geðdeild einhvern veginn, ennþá í bullandi geðrofi.

Hann virtist svo hræddur, ofboðslega hræddur út af þessum geðrofseinkennum sem hann var að upplifa. Hann svaf með kúbein og hníf undir koddanum sínum. Maður fattar þetta ekki. Hvernig geturðu útskrifað hann í þessu ástandi? Hvernig geturðu tekið á móti manni sem er orðinn alvarlega veikur á...

… geði og bara útskrifaði hann einhverjum dögum eða viku eða tíu dögum síðar eða eitthvað, þú veist. Svo þurftum við að tala við hana, því við fengum engar upplýsingar af því að hann var orðinn 18 ára gamall.

Og 19 og tvítugur, þú veist. Þá var honum aldrei úthlutaður geðlæknir, skilurðu? Hann fékk aldrei geðlækni. Það var engin eftirfylgni, það voru engin viðtöl upp úr spítala. Það var enginn hérna, þú veist.

Hann kemur þarna eitt skiptið út og fer að spyrja mig hvort ég viti um einhvern geðlækni, þú veist. Og ég spurði hann bara: „Bíddu, fékkstu ekki einhverja tilvísun eða var þér ekki bent á einhvern eða eitthvað gert með þér?“ Og hann sagði bara: „Nei.“

Það var ekkert svoleiðis. Þannig að þetta virðist vera svona. En geðdeildin er bara geymslan þar sem okkar veikasta fólk er, þú veist, sem er að valda hvað mestum sársauka í samfélaginu okkar. Þannig að ég skil þetta ekki, sko.

Hann fór oft þarna inn á stuttu tímabili. Við vorum að taka á móti honum þar sem hann kemur heim bara með einhver geðrofslyf í poka sem hann átti bara að taka samviskusamlega. Hann varð fárveikur, sko, þannig að maður nær ekki upp í þetta. Hvað er verið að gera inn á þessum geðdeildum?

Af hverju, þú veist, ef þú leitar, sko, ef þú fótbrotnar illa eða þú færð hjartaáfall eða eitthvað kemur fyrir þig og þú ferð inn á spítala, þú ert ekki látinn sitja bara úti í horni í viku, tíu daga, og svo er þér hleypt út, sko. Hver er munurinn á þessu? Ég skil það ekki, sko.

Þannig að þetta er, þú veist, bara enn einn ömurlegi, úrræðalausi gangurinn sem við fórum í gegnum með honum, sko.

Síðasta samtalið við soninn

Síðast þegar þú heyrir í honum, þá er hann nokkuð bjartsýnn, já? Ég heyrði í honum deginum áður en hann dó og þá var hann mjög bjartsýnn, já. Hann var sem sagt kominn inn á áfangaheimili og sagðist vera mjög bjartsýnn á að sér myndi takast þetta núna.

Og sagði bara: „Ég er pottþétt ekki að detta í það aftur, pabbi. Í húsinu.“ Og svo deyr hann bara þarna deginum eftir, sko, dottinn í það, sko. Þú veist.

Já, eins og ég segi, sko, sonur okkar var aldrei með neinar sjálfsvígstilraunir. Hann var ekki með neinn sjálfsskaða á nokkurn hátt. Hann var bara skíthræddur við dauðann og vildi bara lifa, þú veist. Ég hafði aldrei áhyggjur af því að sonur minn myndi fyrirfara sér, sko.

Ég bjóst alltaf við því bara að ef þetta myndi fara svona, þá væri það of stór skammtur eða eitthvað álíka. En hann sem sagt fyrirfór sér 2. september, og það er það sem mér finnst vera sorglegast af þessu öllu: að hann hafi farið svona, sko.

Það sýnir mér bara svo ótrúlega innilega hvað hann fékk ekki þá hjálp sem hann þurfti að halda, sko. Að þessi drengur hafi… Það finnst mér vera stærsti áfellisdómurinn yfir allri þessari þrautagöngu hans, sko, af því að hann var tilbúinn til að þiggja hjálp.

Hann var alltaf einn þegar hann var þarna. Yfirleitt náðist alltaf, þú veist, öll hans fjölskylda edrú, öll hans fjölskylda bara að bíða eftir honum með opna arma, skilurðu? Og hérna, hann bara gat ekki komið sér út úr þessu vegna þess að alltaf þegar hann varð edrú þá bara…

Tók alltaf við þessi ónutjunskennd og þessi brotna sjálfsmynd og þetta ömurlega niðurrif sem hann var að drepa, skilurðu, sem ég vil meina hafi bara orðið til í hans barnæsku. Þú veist, það var ekki hlúð að honum á neinn hátt, honum var ekki mætt á neinn hátt, honum var ekki hjálpað, þrátt fyrir að eiga foreldra sem lögðu sig allan fram við að leita hjálpar.

Þrátt fyrir það þá mætir maður algjöru úrræðaleysi, algjöru máttleysi og engri hjálp, bara einhverjum geymslum.

Hvernig varstu að fá fréttirnar?

Líf eftir missinn

Ótrúlegt áfall, sko. Þú veist, við bjuggumst aldrei við þessu, sko. Sáum þetta ekki koma, sko.

Nú er tæpur mánuður síðan. Hvernig er lífið í dag?

Ég hef bara verið að fara mér mjög hægt, sko. Við jörðuðum hann fyrir einhverjum tíu dögum síðan og höfum bara verið að þjappa okkur saman sem fjölskylda og hlúa að hvort öðru.

Ég skrifaði þennan pistil einfaldlega vegna þess að ég varð bara að koma þessu frá mér, skilurðu. Ég bara hreinlega varð að gera það.

Þetta eru mjög skrýtnir tímar, þú veist, að upplifa svona.

Að upplifa þennan hljómgrunn sem þessi pistill fær og upplifa hvað fólki er alvarlega misboðið að lesa hans sögu. Og svo eru aðrir foreldrar að stíga fram núna, skilurðu. Og það er eina jákvæða, auðvitað, í þessu, skilurðu, með því að við sem fjölskylda hans hugsum bara með hryllingi til þess að það séu önnur börn í þessum sporum í dag.

Það sé bara kerfisbundið verið að brjóta börn niður í grunnskólakerfi landsins okkar og þegar þau fara síðan að deyfa sig, að þetta sé það sem mæti þeim, sko: einhver hryllingsúrræði á vegum barnaverndar. Og svo fara þau þaðan í einhverja geymslu og svo koma þau út löguð og þá tekur við algjörlega vanhæft heilbrigðiskerfi sem bara brýtur þau ennþá meira niður, þú veist. Og svo bara fyrirfara þau sér. Og þetta er að gerast aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og aftur, sko. Og við erum með börn hérna, örugglega hundruð barna, á öllum stigum þessa ferlis bara núna í dag á Íslandi, sko. Þannig að þó að þetta sé virkilega ótrúlega þungur og erfiður tími, þá urðuðum við bara að koma þessu frá okkur og benda á þetta, skilurðu.

En að öðru leyti reynir maður bara að …

Þetta er næstum allt ekki í fyrsta sinn sem þú ert að missa ástvin vegna þessa sjúkdóms.

Já, faðir minn lést þegar ég var átján ára gamall úr þessum sjúkdómi. Já.

Hann fór á alkóhólisma líka.

Afar mikið áfall líka.

Þannig að þessir sjúkdómar hafa numið þetta líf mjög mikið?

Já, já, heldur betur, sko. Hann hefur gert það, líf mitt og fjölskyldu minnar. Hann hefur verið mjög áberandi í okkar lífum, sko.

Þetta er bara mjög alvarlegur geðsjúkdómur. Við eigum öll náinn ástvin eða vin eða eitthvað sem hefur þurft að fara í gegnum þetta ömurlega ferli sem þessi sjúkdómur er. Sumir ná sér út úr þessu, sumir ná að snúa við. Margir deyja því miður úr þessu.

Ég hef þurft að horfa upp á það, bæði hjá nánum ástvinum og óteljandi vinum og kunningjum líka. En já, þetta hefur verið mjög áberandi í mínu lífi, já.

Viltu tala um vandann þinn sjálfur og hvernig þú náðir bata?

Bati frá alkóhólisma

Já, ég hef náttúrlega sjálfur þurft að glíma við þennan sjúkdóm, alkóhólisma, og hef þurft að standa upp oft aftur í mínu lífi eftir að hafa tapað fyrir þessum sjúkdómi. Það sem einkennir þennan sjúkdóm eru föll, því miður. En eina leiðin út úr þessu, eina leiðin til að raunverulega snúa við lífi sínu og ná bata, er að gefast aldrei upp.

Það er alveg sama hvað manni mistekst oft og hvað maður hrasar oft. Maður veit aldrei hvort næsta tilraun sé tilraunin sem manni tekst raunverulega. Þetta er algjörlega óútreiknanlegur geðsjúkdómur. Maður veit ekkert hvenær hann nær manni. Maður verður alltaf að vera á varðbergi það sem eftir er ævinnar.

Ég hef sjálfur runnið á rassinn eftir mjög langa edrúmennsku. Það var bara vegna þess að ég sofnaði á verðinum og fór að vanmeta þennan sjúkdóm. Þú ert aldrei kominn frá þessu. Þetta er dagleg vinna. Þetta snýst um að vera í samfélagi við annað fólk sem er að gera sömu hluti og þú og er á sömu blaðsíðu.

Það eru til sterk samfélög hérna á Íslandi, fólk sem hefur náð sér út úr þessum erfiðleikum. Það er kannski ljósið í myrkrinu, finnst mér, þegar maður fær að upplifa þetta svona ótrúlega á eigin skinni, í gegnum sjálfan sig og aðstandendur sína.

Úrræði sem þarf að bæta

Það sem mig dreymir um núna, og ég held að ég geti leyft mér að segja fyrir aðstandendur líka, er að við sem samfélag, ríkisstjórnin okkar og Alþingi geti lagt þrætuefni sín til hliðar og raunverulega farið að hlúa að þessum grunnstoðum í samfélaginu okkar. Að það sé hægt að fara að aðstoða börn á grunnskólaaldri sem upplifa sig hornreka í skólanum.

Að það sé hægt að fara að búa til úrræði þannig að þau geti upplifað sig sem jafningja annarra og geti tekist á við verkefni sem þau geta leyst. Það myndi ég vilja sjá.

Ég myndi vilja sjá að neyðarvistun barnaverndar meiki eitthvað sens, að einhvers konar heilbrigð skynsemi fylgi því úrræði, að það sé aldursskipt og að horft sé til þess hvar börn eru stödd og hvað þau eru gömul áður en þeim er öllum sópað saman inn í þessa geymslu eða geymslur.

Ég myndi vilja sjá að þetta geðdeildarbatterí okkar, sem er algjörlega sprungið í loft upp, verði skoðað. Hvort það sé ekki hægt að gera þetta betur og hvort þetta geti raunverulega hjálpað.

Fólki sem er alvarlega andlega veikt. Sko, það leikur sér enginn að því að fara niður á bráðamóttöku geðdeildar. Það fer enginn þangað bara af því að honum langar að fara til [óskýrt], þú veist.

Það fólk kemst ekki þarna inn öðruvísi en að vera að útskýra það nákvæmlega, hvernig það er að fara að fyrirfara sér. Það er bara algjörlega galið og meikar ekkert sens, sko. Og ég myndi líka vilja kannski, þú veist, að fólk geri sér grein fyrir því að þessar þjáningar og þessar hrottalegu þjáningar sem þetta fólk verður fyrir, sem er að leita hjálpar, að þetta hefur áhrif á hundruð manns úti í samfélaginu; aðstandendur þeirra, vini þeirra, fjölskyldur þeirra. Þetta er að skapa óheyrilegar þjáningar hjá bara þúsundum manna hinum megin. Þannig að þetta er mjög alvarlegt mál, þú veist.

Svo ég tala lengi um fangelsin okkar, en þú veist, mér finnst þetta bara vera svo lýsandi á sama tíma og maður horfir einhvern veginn á son sem gengur í gegnum þetta grunnskólakerfi. Horfa á hvernig það bregst algjörlega, hvernig það brýtur hann niður. Horfa síðan á þessi neyðarúrræði sem mölbrjóta hann áfram niður. Og svo á sama tíma eru fangelsin okkar orðin … Það hlýtur að vera eitthvað að, er það ekki? Þú veist, það er eitthvað krabbamein í gangi, skilurðu, í samfélaginu okkar sem ég virkilega vona innilega að verði bara lagað, sko.

Það er það sem mig dreymir um að gerist. Auðvitað vill maður að dauðsfall sonar manns skipti einhverju máli, skilurðu, þú veist, og dauðsfall allra þessara barna, þú veist, að þetta skipti einhverju máli. Að fólk, þú veist, átti sig á því hvað þetta er alvarlegt mál fyrir okkur öll. Það er það sem ég vona. Það er það.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    „Kæruleysi sem varð dóttur minni að bana“
    Fréttir00:45 ·

    „Kæru­leysi sem varð dóttur minni að bana“

    „Það hefur ekki liðið einn auðveldur dagur“
    Fréttir00:24 ·

    „Það hefur ekki liðið einn auð­veldur dagur“

    Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
    Áskrift
    Fréttir09:39 ·

    Syrgj­andi for­eldrar Hönnuh þakk­lát Íslandi

    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1