Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Góðan daginn, gott fólk, og verið velkomin í Samtal við samfélagið. Baðvatn félagsráði.
Dreifbýli, tungumál og listir, en hún, Lara, varði einmitt doktorsritgerð sína í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri árið 2022. Titill doktorsritgerðar Löru er „Aðlögun innflytjenda á Íslandi“.
Huglægar vísbendingar um aðlögun innflytjenda á Íslandi byggðar á tungumáli, fjölmiðlanotkun og skapandi iðkun. Lara er þýsk, fædd árið 1999 í Köln. Hún lauk stúdentsprófi frá Hölderlin-Gymnasium í Köln árið 2010, meistaragráðu í fjölmiðlafræði frá Johannes Gutenberg-háskólanum í Mainz árið 2010, diplómanámi í íslensku sem öðru máli frá Háskóla Íslands árið 2010 og MA í listfræði frá Háskólanum í Amsterdam árið 2010.
Hún hóf svo doktorsnám í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri árið 2018 og lauk því með glæsibrag árið 2022. Hún tók hluta af doktorsnáminu í Paris-Lodron-Universität Salzburg, sem er Erasmus+-styrkþegi, og dvaldi þar við félagsvísindadeild. Meðfram námi kenndi Lara við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Háskóla Íslands og Paris-Lodron-Universität.
Hún kennir áfram sem stundakennari við Háskólann á Akureyri og Háskólann á Bifröst. Samhliða Háskóla Íslands og Paris-Lodron-Universität. Ég held að þið eigið að gegna nýdoktorstöðu, eins og áður segir, en þar sem innflytjendamál eru voðalega á baugi í okkar heimshluta um þessar mundir, þótti mér tilvalið að fá Löru til okkar hingað í Samtal við samfélagið til að ræða rannsóknir hennar, sem varpa áhugaverðu ljósi á þetta mál málanna, og sér í lagi eins og það snýr að íslensku samfélagi.
Vertu velkomin, Lara. Það er ánægja að hafa þig hér. Við byrjum, við byrjum, við byrjum viðræðurnar, ég held það.
Það var fyrst, þegar ég var búin að klára menntaskóla í Þýskalandi, þá var það fyrsta sem mér datt í hug að ég mundi annaðhvort vilja selja bækur. Ég var svo mikið inni í bókum og ég vildi selja eða gera bækur og vinna mér því. Og svo fór ég að læra eitthvað sem heitir „book studies“ á ensku, eða svona fjölmiðlafræði með áherslu á bækur. Og það var það sem ég vildi vera inn í þessu.
En þá sá ég strax í rauninni að það sem ég hef mest áhyggjur af í þessu samhengi eru í rauninni hlutverk svona fjölmiðla eða bóka, sem sagt sem tæki, og hvenær notar maður hvaða bækur, hvenær.
Þetta getur líka verið svona tæki eða merki til að sýna okkar félagslegu stöðu í samfélaginu. Akkúrat. Svo það var það strax, og ég las auðvitað kenningarmið, þá fór ég strax að skoða fjölmiðla í þessu samhengi og hef bara verið inn í því síðan þá, í rauninni bara skoðað akkúrat umhverfis þetta allt saman í félagslegu samhengi og svo einmitt inn í innflytjendamálum.
Um þetta.
Þú byrjar í fjölmiðlafræði og þarna fer svo í diplómanám hérna á Íslandi og svo MA í listfræði, þannig að þú hefur svona komið víða við. En hvernig atvikaðist það að þú hérna kemur hingað til Íslands?
Akkúrat. Já, einstaklingshlustunargeta héðan, þá tala ég svona já íslensku, íslenskumælandi. Og það er eitthvað sem ég heit þegar þú veist mér að koma inn í mistök. Það var fyrsta spurning líka, að einmitt taka þetta á íslensku eða…
Ensku. Og svo fór ég strax að hugsa, af því að ég las að það heitir auðvitað Samtal við samfélagið, og það væri einmitt skemmtilegt að bæta við smá íslensku við, þar sem auðvitað við heyrum meira og meira í íslensku samfélagi núna í tengslum við innflytjendur. Mér fannst það bara pínu skemmtilegt að bæta því inn í Samtal við samfélagið, í rauninni.
Já, og svo auðvitað, hvernig það var í rauninni áhugi á Íslandi. Þetta er svona, Ísland er staður sem Þjóðverjar hafa auðvitað heyrt um. Maður er bara uppi í Þýskalandi, þá hefur maður heyrt um Ísland.
Og líka, ég var pínulítið í hestum. Það var eitthvað sem þarf að koma Íslandi, svo ég var alltaf svona pínu og ég vildi hugsa: Á einhverjum tímapunkti langar mig bara að skoða hvað þetta er, hvað þetta snýst um, bara að prófa að vera hér í nokkra mánuði, í rauninni.
En bara já, vinna á einhverjum sveitabæ í smá tíma og einmitt hugsað, þú varst svo að reyna að finna leið til að vera einmitt á Akureyri. Það væri í rauninni bara byrjun á þessu, að vera einmitt á Akureyri á Íslandi.
Ég hafði verið að klára diplómanám í íslensku sem öðru máli á þessum tímum, þar sem ég gæti farið í meistaranám úti í Amsterdam, og byrjaði hér í doktorsnámi við Háskólann á Akureyri árið 2018.
Þannig að upphaflega, þegar þú kemur til Íslands, þá er það bara meira svona til að kynnast landi og þjóð, og svo seinna ferð í diplómanám með skilyrði?
Já, þetta er kunnuglegt stef, að Þjóðverjar hafi áhuga á Íslandi og jafnvel að það blandist einhverjir hestar þarna inn líka. Þannig að þér líkaði greinilega vel, að þú ferð sem sagt í diplómanám og hefur ílengst hér.
Þannig að þú ert búin að vera hér á Íslandi bara meira en áratug?
Já, já. Það eru tíu ár á Akureyri.
Þegar þú ert komin í doktorsnám í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri, þá ferðu að skoða áhrif tungumálsins, eða svona hlutverk tungumálsins við aðlögun innflytjenda. Þetta er auðvitað málefni innflytjenda.
Bara svo mikilvægt fyrir mína vinnu um rannsókn á stóru myndinni, í rauninni um þessar samfélagslegu breytingar sem við erum að sjá, og líka hvernig við getum skapað svona félagslega samheldni, í rauninni.
Bara á tímum stórra samfélagslegra breytinga sem við erum að sjá núna. Og það er auðvitað eitthvað sem hefur áhrif, eru innflytjendur og fólksflutningar, og líka fleiri þættir sem hafa áhrif á þetta. Það snýst ekki bara um innflytjendur, heldur samfélagslegar breytingar og hvernig þetta getur haft áhrif á hvernig við búum saman, lifum saman og hvernig þessi samfélagslega samheldni verður.
Þessi stóra spurning á bak við þetta er auðvitað bara ein birtingarmynd af því að íslenskt samfélag hefur breyst mikið á síðustu áratugum. Þetta er bara ein breytingin, að sjá fjölgun fólks með erlendan bakgrunn. En í doktorsverkefninu þínu skoðarðu ýmsar hliðar á aðlögun innflytjenda út frá tungumáli, fjölmiðlanotkun og skapandi iðkun. Geturðu sagt okkur, Hannes, hver voru aðalrannsóknarspurningarnar, hvernig þú framkvæmdir rannsóknina og kannski helstu niðurstöður?
Þessi rannsókn var byggð á stórri megindlegri könnun sem við framkvæmdum í rannsóknum sem heita ... stórri megindlegri könnun sem við vorum að vinna með. Og svo að auki tók ég nokkur viðtöl.
Við innflytjendur, og það var sérstaklega með áherslu á upplifun þeirra af því að læra tungumálið, eða líka að læra íslenskuna, og líka ákvörðun um að tala ekki tungumálið.
Það var einn, eða bara kannski læra ekki um, já, íslenskuna, þrátt fyrir kannski að dvelja hér. Og þá var einmitt þetta svona kannski eitt sem ég hugsaði um, svona í fjórum tölum: Hvað þýðir inngilding? Og hvað þýðir að taka þátt í samfélaginu? Og hvaða hlutverk gegnir tungumálið þar?
Það sem kom í ljós er í rauninni að við þurfum kannski pínu að… Við höfum undanfarin ár, umræðan hefur oft snúist, og í stefnumótuninni, um tungumálið sem lykil að samfélaginu. Og við sjáum, þegar við höfum skoðað þessi gögn nánar, að þátttaka eða vellíðan, kannski, eru mælitæki sem virka betur ef við viljum
hafa innsýn í hvort fólk upplifi sig þannig að það tilheyri samfélaginu og hvort það telji sig vera þátttakendur, frekar en ef við erum bara að skoða eitthvað sem er kannski yfirleitt auðveldara að mæla, sem sagt tungumálakunnáttu eða þátttöku á atvinnumarkaði. Því ég var að reyna einmitt að ná þessu pínu frá, hjá þessum fjölþættu sjónarhornum, hvernig fólk upplifir sig og þetta er kannski
pínu aukaflókið. Maður hugsar í byrjun að þetta sé ekki ein skýr leið til að vera hluti af samfélaginu, og þetta kom mjög skýrt fram í rauninni. Já, þannig að oft þegar verið er að skoða hversu vel gengst…
Já, akkúrat, og þá bæði einmitt frá meginlínunum og eiginlega, já, akkúrat, af því að við vorum auðvitað líka með spurningar í þessari stóru könnun þar sem við spurðum einmitt um vellíðan. Við vorum með klassíska spurningu um einmitt, já, og líka traust, eitthvað sem ég hef líka verið að skoða, og að skoða þessar spurningar og bera þær saman við aðrar breytur eins og tungumálið.
Og já.
Ef ég man rétt, er þetta ekki stærsta eða fjölmennasta spurningakönnun sem hefur verið lögð fyrir fólk af erlendum bakgrunni á Íslandi? Þið voruð á sjö tungumálum. Þetta var alveg til fyrirmyndar, hvað þið náðuð til mjög breiðs hóps. Einmitt, það var flókið, einmitt, þurfti á þeim tíma til dæmis að ráða fólk í einhverjum sveitarfélögum þar sem það var frekar erfitt að fá góða þátttöku.
Þátttaka meðal innflytjenda í svona stórum spurningakönnunum hefur einmitt verið vandamál. Það þurfti að ráða fólk sem gat bara aðstoðað rannsakendur við að ná til og hvetja fólk til að taka þátt í einstökum sveitarfélögum þar sem þátttakan var ekki mjög góð. Það sýnir að það borgar sig einmitt að leggja fram þessa vinnu og reyna að fá fólk til að taka þátt í svona könnunum. Það þarf stundum að fara svona leiðir til að hvetja fólk.
Já, þetta er auðvitað akkilesarhæll margra spurningakannana sem eru lagðar fyrir á Íslandi, að þær ná ekki til þessa stóra hóps fólks með erlendan bakgrunn á Íslandi. Við erum að tala um að þetta eru einhvers staðar í kringum 20 prósent, en það má vera að við séum að skoða niðurstöður úr spurningakönnunum sem eru lagðar fyrir á íslensku eða jafnvel á íslensku og ensku, að við séum hvergi nærri því að ná 20 prósentum, þannig að þetta sé lýsandi fyrir samsetningu landsmanna.
Þannig að ég held að þetta hafi reyndar verið mjög góð viðbót í flóruna, þessi spurningakönnun sem var lögð til grundvallar doktorsverkefninu þínu. Og vonandi eiga fleiri eftir að feta þessa leið, að leggja meira á sig við að ná til þessa hóps. Þarna er stóra spurningin…
Það sem doktorsverkefnið þitt hverfðist um var þá: hvernig upplifa innflytjendur á Íslandi aðlögun og hver er stóra niðurstaðan? Já, akkúrat. Ég myndi segja að í stóru myndinni sjáum við fyrst og fremst að við erum auðvitað ekki enn komin af þeim stað þar sem innflytjendur hafa jafnan aðgang að tækifærum og einstaklingar sem eru fæddir á Íslandi.
Við sjáum enn þá að það eru ýmsar hindranir sem innflytjendur mæta. Þegar gagnasöfnunin var búin tók ég hana í Reykjavík með menntamálaráðuneytinu og þá vorum við að taka fimm rýnihópa með ungum innflytjendum, kringum 20 til 30 ára.
Eitthvað sem kom mér á óvart er hversu mikilvægt hlutverk nöfn hafa. Margir voru að tala um nöfn og hlutverk þeirra og hvers vegna þau skipta máli, til dæmis þegar við erum kannski að tala um atvinnumarkaðinn, ef maður er að sækja um vinnu.
Þetta á sérstaklega við þegar við erum kannski að tala um fólk sem er komið á þann stað, aðra kynslóð innflytjenda sem hafa náð tökum á málinu og eru kannski búin að fara í gegnum íslenska menntakerfið. Þá koma nöfn sem merkja: „Ég er að vinna í grein núna sem við erum búin að fá birt um einhvern tíma á næstunni,“ þar sem við erum einmitt að skoða þetta sem svona band í.
Kannski er eitthvað sem við tölum ekki eins mikið um: nöfn sem merkja að maður sé öðruvísi, tilheyri kannski ekki. Þessir einstaklingar sem við tölum við upplifðu þetta sumir sem mjög sterka hindrun. Svo sjáum við að þetta er auðvitað mjög mismunandi eftir einstaklingum.
Ég myndi segja að það sé hættulegt að mynda flokka og hópa eftir því hvaða stefnu fólk fylgir. Ég er til dæmis að tala um það sem ég myndi kalla einstaka tungumálastefnu. Sumir eru að ákveða að nota ensku. Ein af konunum sem ég tók viðtal við sagði þetta strax í atvinnuviðtalinu og sagði að þetta væri hennar stefna.
Að nota bara ensku í vinnunni og vera skýr með það. Hún hefði alltaf upplifað slæm viðbrögð við þessari stefnu og það var bara áhyggjuefni, hvernig fólk staðsetur sig inn í samfélaginu hvað varðar tungumál og hvort það tali. Það er mismunandi hvaða leið fólk ætlar að feta. Sumir ætla bara að einhenda sér í að læra íslensku, meðan aðrir ætla að leggja sem minnsta áherslu á það en einbeita sér að enskunni, og svo er allt þar á milli.
Já, akkúrat. Ég myndi segja það einmitt. Upplifðu viðmælendur þínir og þeir sem tóku þátt í rannsókninni að það skipti mestu máli að upplifa ekki mismunun?
Það skiptir máli að upplifa að það sé ekki verið að mismuna manni, alveg sama hvort það hafi að gera með uppruna, stöðu, kyn eða kynhneigð, hvað sem það er. Eitt af því sem stóð upp úr þegar kom að ánægju var að upplifa ekki að það væri verið að mismuna manni.
Hvernig líður okkur sem samfélagi í þessum breytingum sem við erum að sjá núna? Þá er kannski ekki bara til innflytjenda eða uppruna sem ég hugsa, heldur líka til Íslendinga og hvernig þetta snýst allt um þessi félagslegu samfélög í rauninni. Þá er ég að hugsa um að við erum á Íslandi núna með sveitarfélög eins og…
Og á Vík í Mýrdal, til dæmis, þar sem innflytjendur eru mér sagt 50 prósent af íbúum. Það er auðvitað mjög mikið. Já, hvernig getum við brugðist við þessum breytingum? Það eru auðvitað rannsóknir á þessu, og unnið hefur verið að rannsóknum á Íslandi, í Reykjavík sem sagt.
Þau eru að skoða þetta náið. Það var auðvitað innleiðing hérna á enskumælandi ráðherra, sem á að einmitt gefa innflytjendum tækifæri til að taka þátt í stjórnmálum strax í rauninni í þessu. Það er mjög áhyggjuefni að sjá hversu mismunandi nálgun sveitarfélaganna er að þessum spurningum, sem við stöndum frammi fyrir, og hvernig þau eru í rauninni að bregðast við þessum breytingum og hvaða stefnu þau eru með.
Til að bregðast við þessu. Það var til dæmis enskumælandi ráðherra í einu sveitarfélagi, en annað sveitarfélag, til dæmis Ísafjörður, var miklu meira með verkefni sem veita innflytjendum íslenskukennslu. Það er bara mjög áhyggjuefni. Þessi ólíka nálgun á sama vandamáli er svo skemmtileg að fylgjast með, og það verður spennandi að fylgjast með þessum breytingum.
Núna myndi ég segja, því þetta er í þróun. Fólk er kannski ekki allt sammála um hvers konar samfélag sé æskilegt. Það eru kannski bara mismunandi leiðir.
Ég get kannski sagt frá einu verkefni sem ég var í núna með Sama meðja og vísindadöggseminni í Háskóla Íslands og Dögg Sigmarsdóttur, sem vinnur hjá Borgarbókasafninu. Hún vinnur saman með menningarstofnunum úti á landsbyggðinni og við vorum að hugsa um bókasöfn og menningarstofnanir eins og söfn, sem eru í rauninni aðstaða á landinu, staðir þar sem fólk af ólíkum bakgrunni getur hist. Við skoðuðum hvaða tækifæri eru til staðar.
Það eru rannsóknir til sem sýna hvernig bókasöfn, til dæmis, geta miðlað trausti, ef maður skoðar traust og hvernig það að hittast í þessu samhengi getur aukið traust til stofnana og líka möguleika samfélagsins í heild. Það er mikilvægt að hafa stað þar sem maður getur hist.
Við vorum í rauninni að gera þetta og fengum smá styrk frá byggðarannsóknasjóði og bókasafnasjóði. Við vorum að biðja þessar menningarstofnanir, sem við vorum að vinna með, um að búa til verkefni og viðburð sem þeim fannst henta best fyrir þeirra sveitarfélag. Þegar við vorum að vinna saman var til dæmis verið að búa til regnámskeið fyrir krakka á bókasafninu á Húsavík.
Það var eitthvað sem þeim fannst best. Við vorum í rauninni sem rannsakendur að fylgjast með og taka viðtöl við starfsfólk þessara menningarstofnana, til að sjá hvernig staðan er núna. Það er auðvitað þannig að flestir eru meðvitaðir um að þeir vilji gera eitthvað meira fyrir innflytjendur og ná betur til nýrra hópa í sínu sveitarfélagi. Þeim finnst það stundum erfitt og vita kannski ekki alveg hvað þeir eigi að byrja á. Fjármögnun er auðvitað alltaf af skornum skammti. Það var spurning um…
Þau gátu gert miklu meira því þau gátu fengið meiri pening til að ráða einhvern í viðbótarstarf. Þá var verið að setja í gang viðbótarúrræði, og auðvitað snýst þetta um það.
Við sjáum núna að það eru margar menningarstofnanir, til dæmis bókasöfn, sem eru búin að bjóða upp á tungumálakaffi þar sem fólk getur lært eða æft sig í íslensku. Eða alþjóðlegt eitthvað sem fólk getur prófað, komið með mat frá sínum heimilum og svona.
Við sjáum að þetta eru oft bókasöfn og oft eru það menningarstofnanir sem eru að innleiða svona verkefni, því þau eru í rauninni bara til sem svona félagsleg úrræði á landsbyggðinni, jafnvel í litlum samfélögum. Af hverju ekki þá að nýta það sem er til? Börnin nýta svona þessar menningarstofnanir sem hálfgerðar félagsmiðstöðvar, nema ekki bara félagsmiðstöðvar fyrir ung börn heldur félagsmiðstöðvar fyrir alla.
Til þess að einmitt, Guðmundur, að hrista fólk saman. Það getur verið ósvipað og félagsheimilið í gamla daga, þar sem fólk hittist kannski og var að spila vist og eitthvað svona. Þetta er svona til utan við tíma samfélagsmiðlanna og netsins, sem er talið að einangri okkur. En þetta er einmitt stórsniðugt, að nota þessar menningarmiðstöðvar til þess að hrista fólk saman.
En varðandi þetta, hvað samfélagið hefur breyst mikið, þú talar áðan um tæknibreytingar. Það er auðvitað eitt sem snýr ekki bara að aðlögun innflytjenda heldur bara að samfélaginu yfir höfuð, hversu fjölbreytt eða einsleitt sem það er. Auðvitað er mikið af félagslegum samskiptum núna sem hefur færst yfir á netið. Hvernig kom það fram í doktorsverkefninu þínu varðandi það hvernig þetta snýr að innflytjendum?
Já, akkúrat. Ég vil segja að auðvitað verðið þið fyrst og fremst að hafa í huga að þessar tæknibreytingar hafa áhrif á alla. Ég þykist til dæmis mikið lesa Robert Putnam, sem er einmitt að tala um hvernig þessi félagslega einangrun verður í rauninni.
Við getum auðvitað núna öll verið í okkar eigin heimi heima, og það er bara spurning hvaða áhrif þetta getur haft á samfélagið og hvernig við búum saman. En við sjáum líka að þetta er auðvitað líka öryggismál. Við vitum að ef það eru til dæmis einhver veikindi þá eru oft nágrannar sem hjálpa.
Rannsóknir sýna að það er öryggismál, að við séum ekki í vandræðum með að hjálpa nágrönnum okkar. Ef við tökum til dæmis minni þátt í félagsstarfi, ef ég er kona og segi að einhver sem ég þekki mæti kannski ekki, þá mun ég kannski bara hringja og spyrja hvernig á því standi. Það skiptir máli í rauninni. Ég myndi segja að það sé öryggismál að þekkja nágranna sína og umhverfið sitt og hafa áhuga á daglegu lífi.
Og svo er auðvitað ekki bara þannig að samfélagið smætti og fólk einangrist. Þetta leiðir ekki bara til einangrunar, heldur eru líka tækifæri. Við vitum að við erum öll í einhverjum Facebook-hópum og getum lagt eitthvað til og talað saman.
Ég segi í rauninni bara: Ef fólk er nýflutt til Íslands og af landsbyggðinni, þá er samfélagsmiðillinn mikilvægur, af því að þar getur það lært og fengið að kaupa bíla og eitthvað svona. Innflytjendur nota það auðvitað líka til að viðhalda tengslum við heimilið sitt eða fjölskyldu sem er í landinu sem þau eru að flytja frá eða kannski í öðrum löndum.
Þessi rannsókn hefur líka sýnt það, og það er líka eitthvað sem ég skoðaði í doktorsritgerðinni minni. Ég skrifaði eina grein um fjölmiðlanotkun og samfélagsmiðlanotkun innflytjenda, og hún kom í rauninni í ljós að fólk…
Það er mikið af miklum tengslum við fjölskyldu eða vini í heimalandinu sínu, en fólk er líka í rauninni frekar tengt félagsstarfi á Íslandi. Í rannsóknum á innflytjendum á Íslandi, og erlendar rannsóknir hafa líka sýnt það, kemur fram að þetta snýst kannski um ákveðinn karakter.
Kannski er fólk sem finnst bara gaman að tengjast öðrum, og það er kannski með mikil tengsl við heimalandið sitt, en það er líka kannski í einhverju hérna, að gera eitthvað í íþróttum eða einhvers konar öðru. Þó er þetta líka einmitt þannig að það að vera mikið í samskiptum við fólk erlendis þýðir ekki að þú sért ekki tengd eða, já, í þínu samfélagi þar sem þú býrð.
Að vera virkur, sem sagt í virkum tengslum við heimalandið, styður bara við að fólk sé í virkum tengslum hérna í móttökulandinu. Já, já, rannsóknir sýna það. Fólk hefur í raun tengst heimalöndum sínum.
Innflytjendur nota samfélagsmiðla, til dæmis, á sama hátt og innfæddir. Eitthvað sem mér fannst spennandi var að hugsa um hvernig hægt væri að mæla tengsl á milli innflytjenda og Íslendinga.
Þá var ákveðið að spyrja einmitt: „Hversu oft hefur þú boðið innflytjendum í heimsókn?“ Það var svona, og við bara: „Já, vera boðið.“ Þess vegna fannst mér að við gætum kannski hugsað um hvernig við mælum félagsleg tengsl í öðrum löndum. Mér finnst það kannski henta vel að skoða það í íslensku samhengi. Ég var að hugsa í dreifbýli.
Þá myndi ég kannski frekar skoða hvort fólk hitti aðra í einhverju slíku, eða kannski í sænsku samhengi líka. Og þess vegna, að heimsækja fólk, að vera boðið, já.
Hvað kom sérstaklega fram? Eru Íslendingar duglegir að bjóða innflytjendum heim til sín og eiga samskipti?
Ég hef ekki borið þetta saman á þann hátt, við erum ekki búin að bera þetta saman á þann hátt. Já, við sjáum eitthvað sem kannski kom fram: viðhorf Íslendinga til innflytjenda voru frekar jákvæð. Það var ein nýleg staða sem hafði komið til mín, kannski gott að tala um, af því að við höfðum þetta yfirleitt stundum sem fræðimenn, að tala um eitthvað neikvætt sem mætti fara betur. En jú, viðhorf til innflytjenda var almennt frekar jákvætt, og þegar fólk var spurt hvort það hefði haft jákvæð samskipti hérna...
Já, sveitarfélagið segir að það var fátt, og ég myndi segja að þetta aukist auðvitað ef fólk fær tækifæri til að hitta þá sem það tilheyrir ekki. En samskiptin hafa verið jákvæð eða neikvæð. Auðvitað getur þetta haft neikvæð áhrif ef þá geta líka aukist fordómar, en ef það eru jákvæð samskipti, þá hugsa ég: Já, hann er frá já, bara við eigum heima á sama landi.
Það er bara skemmtilega og þá getur þetta auðvitað eitthvað minnkað fordóma og getur haft jákvæð áhrif á samfélagið, sem ég heyri. Og þess vegna finnst mér kannski, já, ef það er mikið svona, já, gott er mitt hvað…
Hafa þessir svona ólíku hópar í raun tækifæri til að hittast, vera í samskiptum við þetta svona? En það er einmitt áhugavert að þarna, eða gott að þetta sé niðurstaðan. Þetta kemur meðal annars heim og saman við niðurstöður úr alþjóðlegu viðhorfakönnuninni, þar sem var einmitt verið að spyrja með minniháttar spurningu hvað fólki finnist að hafa innflytjendur í næsta húsi.
Ísland hafi bara verið á toppnum þegar kom að jákvæðu viðhorfi til innflytjenda. Þetta var bara mjög mikilvægt að halda í það. Eins og þú nefndir, þessar breytingar hafa orðið á Íslandi á mjög skömmum tíma.
Á næsta bili þrjátíu árum fer þetta bara yfir innflytjendur að vera tvö, þrjú prósent af mannfjöldanum upp í það að vera 20 prósent. Og þetta gerist mjög hratt. Þetta er bara mjög mikilvægt að fylgjast vel með þessu og að ríkið sérstaklega, og sveitarfélög og samfélagið allt, leggi sitt af mörkum til þess að stuðla að aukinni inngildingu.
Þessi ímynd einmitt um Ísland sem einsleitt samfélag er ennþá ríkjandi, auðvitað bæði kannski í hugum sumra Íslendinga líka. Ég var nýlega í Ítalíu hjá fræðimanni erlendis sem er að rannsaka innflytjendur. Hann var að nota Ísland sem dæmi um einsleitt samfélag í kennslu sinni, svona samfélag sem er með frekar lágt hlutfall innflytjenda.
Ég var kannski búin að brjóta þessa hugsun hans. Hann segir bara: „Hversu stórt, hvernig þetta hefur breyst?“ Þetta var kannski satt fyrir, já, það var staðreynd fyrir langan tíma, en það hefur bara breyst gríðarlega um ykkur. Og þegar við berum saman Ísland og Færeyjar, þá vitum við auðvitað að aukningin hefur verið mest á Íslandi af innflytjendum.
Þetta er einmitt mjög áhyggjuefni. Og bara líka væri að skoða það, já, eflaust út frá því hvað getur gerst á svo skömmum tíma. Ísland var þá tiltölulega einsleitt í 1.100 ár, að þetta sé bara einhvern veginn svona fasti í þjóðarsálinni, sko.
Og síðan út frá því líka þegar kemur að tungumálinu, þess vegna held ég að það sé meint svo mikilvægt. Útgangspunkturinn þinn þegar þú ert að skoða aðlögun innflytjenda hefur svona verið að skoða hvaða hlutverk tungumálið spilar. Tungumálið, þetta skiptir Íslendinga svo miklu máli og hefur breyst svo lítið í aldanna rás, sko.
En ein af niðurstöðunum sem þú kemst að er að tungumálið skipti ekki jafn miklu máli og oft er látið þegar kemur að aðlögun. Það sem skiptir meira máli er að fólk upplifi ekki að verið sé að mismuna því, heldur en að það tali tungumálið. Þó að það sé vissulega mikilvægt að tala tungumálið, þá er það ekki það eina sem skiptir máli.
Akkúrat, já, akkúrat. Og það er til dæmis í stefnu í málefnum innflytjenda, sem var svona fyrsta stefnan, þá er einmitt talað um íslenskuna sem lykil að samfélaginu. En þetta auðvitað, jú, það skiptir máli, en við sjáum í stóru samhengi er þetta kannski frekar einn af mörgum þáttum.
Nýlega um grein sem ég var að skrifa saman við samstarfskonu í háskólanum í Færeyjum, Elísabet Høj, þar sem við einmitt…
Saman svona upplifun innflytjenda á Íslandi, eða kannski ekki ætlun að bera saman, heldur var að skoða hvernig innflytjendur læra íslensku á Íslandi og færeysku í Færeyjum.
Og hvernig þau eru í rauninni að staðsetja sig gagnvart þessari hugmyndafræði tungumáls og af þessari skoðun sem þau eru bara að upplifa.
Já, þeim er um kringum þeirra. Þú segir hugmyndafræði tungumála, hvað áttu við?
Með hugmyndafræði tungumála, hlutverk?
Hefur tungumálið í samfélaginu? Þá vitum við dæmi um að einn af þeim er auðvitað málverkt og vatnsveislug tungumál, sem er auðvitað mjög sterkt í íslensku samhengi. Og líka, því við vorum að skoða Færeyjar líka, þar er það líka mjög sterkt. En þetta eru svona ríkjandi hugmyndir um tungumálið, til hvers er það og svo framvegis.
Emil, þetta sem ríkjandi hugmyndir um tungumál sem eru til staðar, og það er auðvitað eftir löndum. Þetta er einn bara mjög skemmtilegur fræðikona, Kat Búlag, sem er að gera greinarmun á milli, hún talar um svona „ideologies of“ og „distinction of ideologies“.
Og það þýðir í rauninni að þegar þú ert að læra hugmynd um til dæmis ensku, nema þetta er tungumál í svona gefnum hlutlausum og sjálfsögðum skilningi. Það snýst líka bara um mismunandi, já, talið ensku með hreim eða eitthvað svoleiðis, eða bara mismunandi, já, dæmigert eitthvað svoleiðis.
En þetta er samþætt ríkjandi hugmynd sem við höfum: enska á að vera aðgengileg öllum, að vera opin fyrir hlustun allra. Og þetta er svona, þú getur kannski verið, já, eins og hún kallar það, „anonymous“ og „non-anonymous“ þátttakandi í málsamfélaginu.
Það er talið um einsleika og fjölbreytileika. Ég myndi segja að staðan sé svipuð í Þýskalandi; við erum svo bara vön að heyra alls konar þýsku í rauninni, sem er talað kannski með hreim eða líka, já, það kannski alls konar tegundir.
En hvað þá í litlu málsamfélagi sem við höfum talað um, til dæmis á Íslandi eða í Færeyjum? Þar sjáum við að það er kannski pínuflóknara kannski að tilheyra og vera hluti af málsamfélaginu. Það er ekki það sama, og hún, já, Búlagur einmitt að tala um að þetta er meira að þú ert að koma inn í „authenticity“.
Og það er svona tungumál sem bara form af expression og til dæmis leið til að sýna að þú tilheyrir málsamfélaginu. Þetta er svona meira um, já…
Það er kannski ein leið til þegar þú talar tungumál í „threat“. Og þetta er kannski líka hver getur fengið aðgang að tungumálasamfélagi í rauninni, og er þetta svona…
Hversu opið er tungumálasamfélagið fyrir alls konar íslensku í þessu tilfelli? Það er auðvitað það sem við sjáum einmitt, að það er svo munur á litlu málsamfélagi og kannski stóru tungumálasamfélagi eins og ensku og þýsku, myndi ég segja.
Já, einmitt. Það var einmitt það sem ég ætlaði að spyrja. Sko, þannig að það er greinilega munur á að koma að stærð málsamfélagsins.
Þannig að það er þó væntanlega ástæða fyrir því að þú og samstarfskona þín ákváðuð að skoða Ísland annars vegar og Færeyjar hins vegar sem lítil málsamfélög sem eiga ýmislegt sameiginlegt, en ýmislegt sem greinir þau að, eins og til dæmis staða dönskunnar í Færeyjum.
En já, þetta er einmitt mjög áhugaverð grein sem mér skilst að sé nýkomin út. Hverjar voru helstu niðurstöðurnar, já, kannski varðandi stöðu dönskunnar í…
Við getum kannski skemmtilega bætt því við líka að auðvitað er þetta enn eitthvað flóknara í Færeyjum. Fólk sem flytur til Færeyja þarf í rauninni að ákveða hvað það vill. Þegar það er búið að læra færeysku eru gerðar kröfur um að það tali ensku líka, þó að það sé kannski enn erfiðara að læra fleiri tungumál til að komast á þann stað.
Já, en á Íslandi er það bara íslenska. Og auðvitað ertu að gera þetta ennþá flóknara fyrir innflytjendur: hvað á ég að byrja á, hvaða kröfur eru gerðar til mín? Það snýst líka um aðgang að atvinnumarkaði.
Við vorum í þessum greinum að lýsa hugmyndum um tungumál sem eru ríkjandi í samfélaginu. Það er svipað á Íslandi og í Færeyjum, og við vitum kannski af því. Við einbeittum okkur ekki bara að einu landi, heldur vildum líka hafa stærri myndina og skoða þetta í stærra samhengi, í litlum samfélögum.
Við fundum nokkrar hugmyndir um tungumál sem eru ríkjandi. Ein þeirra er auðvitað verndarstefna, málvernd og varðveisla. Innflytjendur hafa upplifað að þeim hafi verið kennt mikilvægi þess að vernda íslensku, þetta litla tungumál.
Það var líka skemmtilegt og áhugavert að sjá að þátttakendur sem höfðu ekki tilheyrandi tungumál, sem voru kannski ekki búnir að læra tungumálið, voru sammála þessum hugmyndum um tungumálið. Það gæti líka verið af því að þeir eru að læra og kynnast því, en þeir eru ekki búnir að læra tungumálið.
Þetta fannst mér áhyggjuefni. Titillinn kemur dálítið þaðan, þetta varðveisluhlutverk, að það sé svona mikilvægt. Emil, það kom í rauninni fram hjá þátttakanda sem talaði um þetta; hún talaði um að vera í rauninni útlendingur í þessu tvíþætta samhengi og að þau upplifðu sig sem sjálf sem varðveislufólk.
Mér fannst það lýsa þessu mjög vel, sem hugmynd um að varðveita tungumálið og víkka það. Og svo er það líka tungumál sem líkist samfélaginu, sem hennar samfélag lítur sér til, en það er ennþá auðvitað ríkjandi hugmynd hérna á Íslandi þegar við erum að tala um atvinnumarkaðinn.
Sko, niðurstöðurnar þínar og fleiri sýna að þetta er ekki svona einfalt. Þetta hjálpar vissulega, en þetta er ekki upphaf og endir alls.
Akkúrat. Við sjáum líka að fólk sem hafði til dæmis áætlun um að vera hér á Íslandi í stuttan tíma, einn viðmælandi sagði mér að hún og maðurinn hennar hefðu gert plan um að vera í þrjú ár. Þau ákváðu bara að læra ekki íslensku, enda höfðu þau búið erlendis áður, í Austurlöndum, og lært mismunandi tungumál.
Þau ákváðu að það myndi ekki borga sig að læra íslensku, af því að framtíð þeirra var annars staðar. En það skemmtilega við plön er að þau geta alltaf breyst. Þau voru lengur á Íslandi en þau höfðu gert ráð fyrir í byrjun. Hún byrjaði að vinna á leikskóla, sem er góð leið til að læra tungumálið.
Þau þurftu að læra íslensku, en þau höfðu kannski ekki gert ráð fyrir því í byrjun. Það segir allt um það. Þetta er svona það sem ég kallaði, jú, tillit til þess að fólk velji þetta. Þau geta ákveðið hvernig þau nota tungumálin og hvers vegna, og hvað þau geta notað þau til.
Eitthvað sem þau taka tillit til í ákvörðun sinni. Það voru einmitt sumir, eða kannski margir, sem notuðu einhvers konar skynsemissjónarhorn eða eitthvað svona „rational choice“, að við hugsum kannski um kostnaðinn og síðan ábatann af því að læra.
Er þetta bara ...? Mér fannst dæmið sem ég nefndi núna mjög skýrt. Þetta var umræða um það sem stundum er talað um sem tungumálastefnu og líka fjölskyldustefnu, í rauninni stefnu fjölskyldunnar.
Voru þau að setja sér tungumálastefnu þegar þau voru ekki að læra íslensku til að byrja með? Og sumir kannski bara gera þetta, snúa þessu við og ákveða að leggja sem mesta áherslu á að tileinka sér tungumálið. En auðvitað er þetta mismunandi eftir því hvernig við flokkum hópana, innflytjendur í mismunandi hópa og viðhorf þeirra til tungumálastefnu.
Er fólk að marka sér þetta mjög meðvitað? Er fólk að ákveða þetta tiltölulega fljótt, eða er þetta bara allur gangur á því, hvernig hlutirnir æxlast? Ég myndi segja að það sem kom mér pínu á óvart með þessum viðmælendum var hvers vegna þetta er svona hjá sumum einstaklingum og hjá sumum fjölskyldum, hvers vegna þau eru einmitt svona.
Og auðvitað kemur þetta inn á spurningar um valdastöðu fólks líka. Til dæmis, ef þú hefur auðveldan aðgang að atvinnumarkaði og ert ráðinn í fyrirtæki þar sem enska er ríkjandi tungumál og þú færð mikla þjónustu og stuðning á ensku, þá ertu kannski ekki einangraður og upplifir öryggi í þessu tungumáli.
Þetta tengist auðvitað líka valdastöðu fólks, fannst mér. Við höfum alltaf hugsað um það í þessu samhengi. Og svo hef ég líka skoðað aðgengi að tungumálanámskeiðum og hvort fólk sé óánægt með námskeiðin sem eru í boði. Við sjáum líka stundum að ef það vantar aðgang að tungumálanámskeiðum, eða fólk er bara þreytt eftir langan vinnudag, þá er þetta áskorun sem hefur líka áhrif á kvöldin.
Var þetta svona gegnumgangandi hjá viðmælendum þínum? Ég held að þið hafið örugglega spurt um þetta í spurningalistakönnuninni. Var fólk almennt ekki sátt við tungumálanámskeiðin sem voru í boði? Voru kannski ekki nógu mörg námskeið eða voru þau ekki nógu víða?
Já, þegar við gerðum þessa stóru könnun um haustið 2018 voru margir mjög ósáttir við gæði íslenskukennslu og líka aðgengi að tungumálanámskeiðum. En betur fer er ég búin að fást við þetta saman í mörg ár og þetta hefur verið að breytast. Nú hefur verið verið að innleiða þetta, til dæmis að hægt sé að læra íslensku á háskólastigi í fjarnámi.
Ég veit að þar er eitthvað sem margir voru að bíða eftir. Við höfum auðvitað rætt þetta í samfélaginu. Ég þekki marga innflytjendur og líka úr viðtölum að það væri gott ef þetta væri í boði og hægt væri að fara í svona langt nám, að ætla sér að læra íslensku á háskólastigi. Þetta hefur verið mjög stór breyting, sérstaklega auðvitað fyrir fólk sem býr ekki á höfuðborgarsvæðinu.
Einhvern tíma heyrði ég að íslenska sem annað mál væri fjölmennasta námsleiðin við Háskóla Íslands. Það sýnir ágætlega hvað þörfin er mikil. Og það er líka ákveðinn sveigjanleiki í boði, þar sem fólk getur verið í tímum á morgnana eða á kvöldin, fyrir mismunandi hópa. Það er einmitt það sem fólk hefur verið að bíða eftir.
Já, af því að það þarf að vera ákveðinn fjöldi þátttakenda til þess að námskeið verði í raun samþykkt eða sett í gang. Það var stundum tíföld eftirspurn eftir því og þá þurfti bara að taka fyrsta skrefið aftur og aftur, sem ég yppti öxlum yfir. Já, af því að það voru ekki nógu margir þátttakendur, til dæmis í íslenskunámskeiðin, en svo hefur þetta breyst.
En talandi einmitt um breytingar: Þú ert núna nýdoktor við Háskóla Íslands á Menntavísindasviði og tekur þátt í verkefni sem heitir „Apart and End Apart? Education and Social Inclusion of Refugee Children and Youth in Iceland“. Þetta er mjög áhugavert. Það snýr að börnum fólks á flótta.
Einmitt. Ég útskrifaðist úr doktorsnámi í desember 2022 og byrjaði sem nýdoktor í maí 2023. Þar var í fyrsta skipti sem ég fór að skoða börn og unglinga og upplifun þeirra. Auðvitað hef ég líka gert svona í viðtölum; þá er fólk líka að tala um börnin sín og fjölskyldu sína, en þetta er svolítið meira.
Þetta er rannsóknarverkefni sem er stýrt af prófessor Hönnu Ragnarsdóttur á Menntavísindasviði HÍ og prófessor Magnúsi Þorgeiri Björnssyni, sem er í Williams College í Bandaríkjunum. Þau stýra verkefninu og þetta er frekar stór rannsóknarhópur, frábært teymi.
Við erum í rauninni að skoða svipaðar spurningar og við vorum að tala um áðan, líka varðandi tungumál og inngildingu og samfélagið. En við leggjum áherslu á þessa hópa kvótaflóttafólks, eins og það er kallað, frá Venesúela og Írak.
Þetta eru fjölskyldur sem komu til mismunandi sveitarfélaga, bæði á höfuðborgarsvæðinu en líka í litlum samfélögum á öllum landsvæðum á Íslandi. Við erum sem stendur búin að taka 120 viðtöl við þessar fjölskyldur, líka börn og unglinga, en líka kennara, af því að stór hluti verkefnisins snýst um skólakerfið og hvernig það tekur á móti börnum, en líka félagsþjónustuna.
Einn hópur sem mér fannst líka spennandi var Rauði krossinn, sem var með stuðningsfjölskyldukerfi þar sem íslenskar fjölskyldur gátu skráð sig til að vera stuðningsfjölskylda og hjálpa flóttafjölskyldu. Það var í svona rúmlega eitt ár, stundum aðeins lengur, og við höfum líka tekið viðtöl við þau.
Þetta er svona þessi meðstöðuáhyggjuefni að sjá af stað, og þau gáfu mér góða yfirsýn yfir samskipti mismunandi stofnana, til dæmis hvernig þær vinna saman. Það er talað um félagsþjónustu og skólakerfið, til dæmis, og hlutverk sjálfboðaliða, eins og stuðningsfjölskyldna.
Þetta er mjög áhugavert. Verkefnið hefur verið í gangi í nokkur ár. Ertu að vinna að einhverjum greinum og svona? Er eitthvað sem við megum vænta á næstu misserum, eitthvað til að hlakka til?
Já, ég hef svona áhuga á því. Ég hef verið að leggja áherslu á yfirbótinn og fókus á þeirra traust í rauninni.
Það er svo skert fram í viðtölum, og þetta snýst allt um samfélagslegar breytingar og samfélagslega fyrirsamheyrni.
Og þá, við þurfum það. Það er um eina nýja grein eftir, sem heitir ... og félaga, og þau birtu og horfðu þetta svona um kerfisbundið yfirlit af bara...
Rannsókn á kvótaflóttamönnum eða svona vísindalegt yfirlit um flóttafólk.
Yfirlitsgrein, og þau voru einmitt að segja að svona traust, að byggja upp traust, er mikilvægur þáttur. Svona, stór þáttur af þessari fjalla. Þetta er vísindalegt ferli, sjálfsögðu, hérna, fyrir fólkið að flýja frá heimilinu sínu sem er að koma til Íslands, sem hefur, ég held, verið hér á landinu áður, bara til dæmis, en líka í öðrum löndum.
Hvað, svona að byggja upp traust og hvernig, já, hvernig er það? Hvernig getum við gert það betra? Er traust til staðar? Svona, hvað er, já, þessir punktar sem ég er, sem ég er núna að skoða nánast? Og ég vinn saman með Magnúsi Þorkelssyni. Við ætlum að skrifa nokkrar greinar um það, einmitt traust í þessu samhengi.
Já, það er kannski af því ég veit sem dæmi að þú hefur verið að skoða auðvitað lögreglumenn og líka í litlum samfélögum, til dæmis, og hvaða hlutverk þau fá að hafa. Og aftur stundum í svona dapurlegu hlutverki og gera bara eitthvað, og við sjáum kannski í þessum rannsóknum svona pínu hliðina af þessu. Þetta var svona einn vistmaður sem ég var í. Það var mér sagt að...
Þetta var einn lögreglumaður sem var í raun bara að banka upp á hjá einhverjum af þessum fjölskyldum til að bara segja: „Bjóða þeim velkomin,“ í rauninni. Og þetta svona var svona ákveðinn... Já, þessi einstaklingur var bara hræddur.
Já, bara hræddur kannski við lögregluna. Fólk hefur ákveðnar hugmyndir um lögregluna frá sínu heimalandi, sem er mjög líklegt til þess að yfirfæra bara yfir á lögregluna í móttökulandinu.
Ekkert traust til einmitt stofnana eins og, þú dæmir, lögreglu, eins og þú veist vel. En já, hvað þýðir það einmitt í tengslum við innflytjendur? En þetta er bara mjög áhugavert.
Þínar rannsóknir heldur betur snerta á mjög mikilvægum þáttum og, eins og þú varst að tala um þarna varðandi traust, þá eru Norðurlöndin, þar á meðal Ísland, svona hæstu traustsæti, sko, þannig að þetta spilar ekki...
...síst hérlendis mjög stóran þátt í allri svona félagslegri samheldni og allt þannig. Þannig að þetta er bara mjög áhugavert, og áhugavert að fylgjast með framhaldinu. Nú veit ég að í þessari spurningalistakönnun sem lá til grundvallar doktorsverkefninu, þar er einmitt spurt um traust til stofnana.
Ég rýndi einmitt í þetta á sínum tíma og skoðaði traust til lögreglunnar, og þar kom fram að traustið meðal innflytjendanna var hátt, en það var ekki eins hátt og hjá Íslendingunum. Þannig að þetta er einmitt eitthvað mér sem er bara mjög áhugavert að skoða, og gaman að heyra að þið séuð að fylgja þessu eftir í þessu nýdoktorsverkefni.
Gaman að spjalla um þetta allt saman. Við vitum mikilvægt málefni og við getum einnig haft ... um öll þessi málefni. Heimir, mitt ég meina, eins og ég segi, þetta er eitthvað þarna innflytjendamálin...
...eru eitt af stóru málunum og bara frábært að vita af svona öflugu fólki eins og þér að rannsaka það til þess að varpa betra ljósi á þennan þátt og talan...
Ekki tala um þegar fólk af erlendu bergi er orðið svona stór hluti af samfélaginu, bara tölfræðilega. Þannig að þetta verður virkilega áhugavert. Þakka þér kærlega fyrir komuna í samtalið.
Samfélagið. Jæja, takk fyrir að bjóða mér.
Athugasemdir