Úkraínuskýrslan

Úkraína slær til baka: Köngu­ló­ar­vef­ur­inn og tíma­móta­árás­ir

Óskar Hallgrímssonn fjallar um ferð sína með Íslendinga til Bucha og mestu drónaárásir stríðsins hingað til. Úkraína lét til skara skríða með árás sem hefur verið lengi í vinnslu djúpt inn í Rússlandi – sem gæti breytt gangi stríðsins.
· Umsjón: Óskar Hallgrímsson

Undanfarið hef ég fjallað um alþjóðamál, friðarviðræður og síbreytilega línu Trumps gagnvart Úkraínu. En nú skulum við færa fókusinn aftur hingað – til Úkraínu, þó með smá viðkomu í Rússlandi síðar – og fara yfir það sem gerðist í raun síðustu daga.

Vikan byrjaði illa. Bíllinn – helsta öryggis- og vinnutækið síðustu þrjú ár – gaf háflpartinn upp öndina. Eftir ótal ferðir um víglínuna og ýmisleg skakkaföll og þrautagöngur sem hann hefur þurft að þola, tók hann þetta hetjulega á hökuna en haltraði til baka heim á bílastæðið.

Það sem verra var – ég hafði lofað mér í túr til Butcha og Irpin með Íslendingum í heimsókn, eitthvað sem ég er óvanur að gera nema sem greiða eða/og gegn greiðslu.

Ég lét þau vita að bíllinn væri óökuhæfur og við yrðum að aflýsa. En þau redduðu því – tóku bíl á leigu og við lögðum af stað, í túristaferð aftur til fortíðar, að heimsækja staði þar sem ég upplifði fyrstu af verstu dögum lífs míns.

Á þremur árum hefur Butcha hefur verið endurbyggð að mestu, þó sárin sjáist enn á milli.

Ég sagði þeim frá aðkomunni – brunnum skriðdrekum, sundurskotnum bílum, sumum merktum „börn“ – og hvernig það var að ganga einn að opinni fjöldagröf í þögulli þokunni.

Fyrir mér var þetta lifandi minning. Fyrir þeim minnisvarði – í bæ sem hafði lifnað við með merki um eitthvað skelfilegt sem hafði gerst – en ekki var að gerast. Sem er auðvitað góð þróun, en súrrealískt fyrir okkur sem komu fyrstu dagana eftir að svæðið var frelsað.

Eftir túrinn skilaði ég þeim á hótelið og ég lét þau vita að ég myndi halda þeim upplýstum ef eitthvað kæmi upp á. Sem gerist strax sama dag.  Viðvörunarkerfið fór af stað um miðnætti og hélt áfram næstu nætur. Ég fylgdist með bylgjum af drónum og skotflaugum dynja yfir borgina næstu nætur og hélt þeim upplýstum – sagði þeim að fara í skjól og hvað væri á leiðinni inn í hvert skipti. Sumir nýttu sér skýlið, aðrir nýttu baðkarið. En á endanum sluppu allir ómeiddir frá því sem yfir gekk. Fyrir utan mögulegt svefnleysi.

Alls yfir helgina – samtals yfir þrjár nætur – skutu Rússar 903 Shehed-drónum, 23 skotflaugum og 69 stýriflaugum. Hver nótt sló hvert metið á fætur annari um magn dróna sem flugu yfir landamærin. Í fyrradag, þegar þetta er skrifað, var metið slegið enn eitt skiptið. 

Alls létust 30 óbreyttir borgarar, þar af sex börn. Yfir hundrað slösuðust, þar af að minnsta kosti tólf börn.

En svo, sunnudaginn 1. júní, sló Úkraína hressilega til baka með árás sem hafði samkvæmt úkraínsku öryggisþjónustunni (SBU) verið í undirbúningi í eitt og hálft ár.

Aðgerðin, með dulefnið „Köngulóarvefurinn“ fól í sér að sérútbúnir kofar með fölsku þaki voru fluttir með rússneskum flutningabílum inn til Rússlands og skildir eftir í nágrenni stærstu herflugvalla landsins – langt frá því svæði þar sem fram að þessu hafði verið talið að Úkraína gæti gert árásir, allt að 5.500 kílómetra frá landamærum landanna.

Svo virðist sem þakið af kofunum hafi á sama tíma þeyst af og drónarnir tekið á loft og hver og einn í átt að skotmarki sínu. Drónunum gat bæði verið stjórnað af stjórnanda og með sérþróaðri úkraínskri gervigreind sem gat leitt drónan að áfangastað án þess að rússnesk raftruflunar tæki gætu stöðvað ferð þeirra með því að trufla samskipti og GPS mið.

Þegar þetta er skrifað er erfitt að staðfesta upplýsingar nákvæmlega. Hér er flóð mynda og allskonar yfirlýsinga, svo ég ætla að taka mér tíma til að sigta í gegnum þær næstu daga. Næsta myndband verður tileinkað þessari árás, þegar betri upplýsingar liggja fyrir og auðveldara verður að staðfesta hvað raunverulega gerðist.

Ég get þó staðfest strax að minnsta kosti tveir flugvellir urðu fyrir árásinni og að í það minnsta 41 flugvél af ýmsum gerðum sé ónýt eða óstarfhæf. Þar á meðal stór hluti sprengjuflugvéla sem notaðar hafa verið til að ráðast á borgir Úkraínu og myrða almenna borgara.

Aðgerðin markar tímamót í stríðinu, sýnir kænsku Úkraínu – og minnir okkur enn á ný að það er aldrei gott að vanmeta getu Úkraínumanna, eins og Rússar hafa gert í sífellu frá upphafi stríðsins. En nánar um það næst.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    "The operation marks a turning point in the war... ." A game changer!? Another one!? Sorry but this is utter nonsense! Its nothing more than a distraction out of desperation!
    -4
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Áherslur og skipulag verkalýðsfélaga
    Samtal við samfélagið #12 · 54:27

    Áhersl­ur og skipu­lag verka­lýðs­fé­laga

    „Þið getið gefið Trump heiðurinn að hugmyndinni“
    Fréttir22:06

    „Þið get­ið gef­ið Trump heið­ur­inn að hug­mynd­inni“

    Sjálfhverfa samfélaga og þjóðernishyggja í heimsfaraldri
    Samtal við samfélagið #11 · 54:41

    Sjálf­hverfa sam­fé­laga og þjóð­ern­is­hyggja í heims­far­aldri

    Umbúðir stjórnmálanna
    Sif · 05:55

    Um­búð­ir stjórn­mál­anna