Vilja hjálpa ungum listamönnum að koma sér á framfæri

Fram­kvæmda­stjóri Álfsins, áhuga­fé­lags um listir og fræðslu ung­menna í Reykja­vík, segir mikið ströggl að vera ungur lista­maður í dag. Félagið ætlar að styrkja unga lista­menn með ráð­gjöf og þjón­ustu, ásamt því að styrkja ýmsa við­burði.

Félagið Álfur, eða áhuga­fé­lag um listir og fræðslu ung­menna Í Reykja­vík, eru félaga­sam­tök til almanna­heilla stofnuð haustið 2017 af nokkrum ungum ein­stak­lingum í þeim til­gangi að vera hags­muna­fé­lag fyrir unga lista­menn. Kjarninn ræddi við nýráð­inn fram­kvæmda­stjóra félags­ins, hann Guðbrand Loka Rún­ars­son, eða Loka eins og hann er oft­ast kall­aður.

Loki segir Álfinn hafa sér­stak­lega verið stofn­aðan fyrir ungt fólk sem passi ekki full­kom­lega inn í mennta­kerfið eða atvinnu­lífið. „Álfurinn er vett­vangur til að hjálpa bæði ungum lista­mönnum að ná mark­miðum sínum, því það er mikið ströggl að vera ungur lista­maður á Íslandi, og Álfurinn er líka jafn­inga­fræðslu­batt­erý fyrir fólk sem passar ekki inn í mennta­kerfið. Þetta er vett­vangur til að hitt­ast og ræða saman,“ segir Loki.

„Hingað til hefur Álfurinn haldið alla­vega tvenna við­burði, stofn­un­ar­kvöld og rapp­kvöld Álfsins, sem var rapp­kvöld á Gauknum til að hjálpa röpp­urum sem eru að reyna að koma sér á sjón­ar­sviðið. Álfur hefur líka verið í ung­menna­skiptum og fékk til að mynda 12 manna hóp af ungum lista­mönnum frá Portúgal. Þau fara í ung­menna­skipti til að hitta íslenska lista­menn. Þau unnu síðan lista­verk hér og hittu meðal ann­ars for­set­ann,“ segir hann.

„Álfurinn réði mig sem fram­kvæmda­stjóra því það var mikið af hug­myndum innan Álfsins, mikið af ástríðu og metn­aði, en ekki gafst tími til að vinna að því. Hug­myndin er að nú verði settur tví­efldur kraftur í þetta.“

Styrkja unga listamenn og halda námskeið

„Hug­myndin er að Álfurinn sé til staðar til að aðstoða ungt fólk til að koma ein­hverju í verk. Ef fólk er með hug­myndir sem það vill gera, ef það er með við­burði sem það vill halda, lista­kvöld til dæmis, þá getum við hjálpað þeim. Við getum ekki lofað að geta gert allt en munum reyna okkar allra besta,“ segir Loki.

Álfurinn ætlar að halda nám­skeið fyrir ungt fólk og segir Loki að „ef fólk vill læra eitt­hvað sem það hefur ekki haft tæki­færi til þá ætlum við að halda nám­skeið. Janfnvel ef ber­ast hug­myndir að ein­hverju sem fólk vill ekki sjálft gera, en eitt­hvað sem það myndi vilja að við kæmum í verk erum við opnir fyrir öllu.“

Næsta stopp: Georgía

„Við erum að fara til Georgíu í næsta mán­uði í ung­menna­skipti á ráð­stefn­una The Power of Art. Við erum að und­ir­búa ferð og ætlum að fara með 12 íslensk ung­menni til Portú­gals í haust. Við munum aug­lýsa eftir umsóknum bráð­lega,“ segir Loki.

„Álfurinn ætlar að keyra af stað lista­verka­leigu til að skapa tekju­grund­völl fyrir unga sjálf­stætt starf­andi lista­menn í Reykja­vík. Þá væri Álfurinn milli­liður að leigja fyr­ir­tækjum og stofn­unum lista­verk og hjálpa þeim að finna lista­menn,“ segir Loki. Hann segir að þannig verði skap­aður grund­völlur til að skapa tekjur fyrir unga lista­menn.

Hjálpa ungu fólki með styrktarumsóknir

„Álfurinn býður upp á þjón­ustu, yfir­lestur og ráð­gjöf varð­andi umsókna­gerð sem er mik­il­vægt í hug­mynda­vinnu ef maður þarf að díla við bjúrókrat­ískt batt­erý. Þá skiptir hug­myndin ekki aðal máli heldur hvernig umsókn­irnar eru upp settar. Það mis­munar fólki með les­blindu, athygl­is­brest eða fólk sem talar erlend tungu­mál,“ segir hann.

Þá skiptir hug­myndin ekki aðal máli heldur hvernig umsókn­irnar eru upp settar. Það mis­munar fólki með les­blindu, athygl­is­brest eða fólk sem talar erlend tungu­mál.

Loki segir lang­tíma­mark­mið og draum Álfsins vera að opna Álfa­stein sem væri félags- og list­sköp­un­ar­mið­stöð fyrir ungt fólk í Reykja­vík sem hann segir bráð­lega vanta. „Hug­myndin er að koma á sölu á vörum fyrir félags­menn, til að mynda striga og máln­ingu, til að styðja við unga lista­menn. Þegar fólk er komið úr grunn- og mennta­skóla þá er engin félags­mið­stöð fyrir ungt fólk nema barir og kaffi­hús. Það getur verið úti­lok­andi fyrir fólk sem drekkur ekki eða er edrú, það er mjög kostn­að­ar­samt og ekki pródúk­tívur vett­vangur. Við viljum opna ein­hvers konar rými þokka­lega mið­svæðis fyrir félags­menn álfs­ins svo það hefði aðgengi að þessum list­sköp­unar græjum.“

Allar hugmyndir velkomnar

Loki hvetur allt ungt fólk að skrá sig í félagið og fylgj­ast með hvað sé á döf­inni á næst­unni hjá félag­inu, sér­stak­lega ef ein­hvern langar til Portúgal í haust. „Allir sem vilja gera eitt­hvað flott og skemmti­legt ættu að senda okkur línu,“ segir Loki.

Álfurinn verður einnig með við­veru á LUNGA alla næstu viku. „Ef fólk vill koma með hug­myndir er hægt að hitta mig í kaffi á Seyð­is­firði í næstu viku.“ Jafn­framt er hægt að skrá sig í félagið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

listir

Mest lesið undanfarið ár