Fjármálaáætlun hafi í för með sér alvarlega aðför gegn réttindum launafólks

ASÍ gagn­rýnir fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Þar sé farið gegn rétt­indum launa­fólks og heil­brigðis- og bóta­kerfin séu enn ófull­nægj­andi.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ.

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem nýrri fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er mót­mælt. ASÍ segir nýfram­lagða áætlun fela í sér alvar­lega aðför að vel­ferð­ar­kerf­inu.

Gagnrýni ASÍ er sett fram í níu punktum þar sem fjallað er um atvinnu­leys­is­trygg­ingar, heil­brigð­is­þjón­ust­una, bóta­kerfin, fæð­ing­ar­or­lof­sjóð, hús­næð­is­mark­að­inn og örorku­líf­eyr­is­kerfið.

Rík­is­stjórnin lagði fram fjár­mála­á­ætlun rík­is­sjóðs til næstu fimm ára 31. mars síð­ast­lið­inn. Samkvæmt henni munu útgjöld rík­is­sjóðs aukast umtals­vert á næstu fimm árum. Heild­ar­út­gjöld munu vaxa um 208 millj­arða króna yfir allt tíma­bilið og frum­gjöld sem nemur 223 millj­örðum króna.

Stærstu útgjalda­lið­irnir verða heil­brigð­is- og vel­ferð­ar­mál. Raun­vöxtur á útgjöldum til heil­brigð­is­mála mun verða 22 pró­sent á tíma­bil­inu og vöxtur á fram­lögum úr rík­is­sjóði til vel­ferð­ar­mála verður 13 pró­sent.

[adspot]

Á meðal þeirra verk­efna sem ráð­ist verður í sam­kvæmt áætl­un­inni eru bygg­ing nýs Lands­spít­ala, kaup á þremur þyrlum fyrir Land­helg­is­gæsl­una, útgjöld til háskóla­stigs­ins verða aukin til að það stand­ist alþjóð­legan sam­an­burð, hámarks­greiðslur for­eldra í fæð­ing­ar­or­lofi verða hækk­að­ar, frí­tekju­mark eldri borga hækk­að, stofn­fram­lög veitt til að byggja almennar leigu­í­búð­ir, úrræði til kaupa á fyrsta hús­næði styrkt, not­enda­stýrð per­sónu­leg aðstoð lög­fest og tekið verður á móti stór­auknum fjölda kvótaflótta­manna og hæl­is­leit­enda. Þá verður tekið á loft­lags­málum með heild­rænum hætti og það tvinnað inn á mörg mál­efna­svið.

[links]ASÍ bendir á að skerða á rétt­indi atvinnu­leit­enda og stytta bóta­tíma­bil þeirra sem þyggja atvinnu­leys­is­bætur úr 30 mán­uðum í 24. „Þetta er alvar­leg aðför að grund­vallar rétt­indum launa­fólks,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ.

Heil­brigð­is­kerfið hefur verið mikið í umræð­unni und­an­farið og stjórn­mála­menn og ráða­menn gefið ýmis lof­orð um að nú verði að auka útgjöld til kerf­is­ins. ASÍ bendir á að þrátt fyrir gefin lof­orð líti út fyrir að heil­brigð­is­þjón­ustan verði áfram van­fjár­magn­aður. Þá gagn­rýnir Alþýðu­sam­bandið ýmsar útfærslur á heil­brigðis- og bóta­kerf­inu sem tíund­aðar eru í fjár­mála­á­ætl­un­inni og sam­bandið telur kostn­að­inn sem af hlýst falla á not­endur þjón­ust­unnar.

Fjár­laga­nefnd Alþingis hefur þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar til umfjöll­unar. Umsagn­ar­frestur er til 21. apríl.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár