Raforkuverðið til Elkem gæti tvöfaldast

Miklir almanna­hags­munir eru í húfi þegar kemur að orku­sölu­samn­ingum Lands­virkj­unar.

Einungis eru um tvö ár þar til raf­orku­samn­ingur járn­blendi­verk­smiðju Elkem og Lands­virkj­unar rennur út. Viðræður um end­ur­nýj­aðan samn­ing hafa dreg­ist á lang­inn og nú er orðið ansið stutt eftir af samn­ings­tím­anum. Til þessa hefur lítið frést af samn­inga­við­ræð­unum opin­ber­lega, sem er ólíkt því sem var þegar Norðurál átti nýverið í sams­konar við­ræðum við Lands­virkjun. Í þeim við­ræðum var ýmsum með­ölum beitt, líkt og þáver­andi yfir­lýs­ingar Lands­virkj­unar og Norð­ur­áls báru með sér. Í þess­ari grein verður ekki dvalið við þá for­tíð, heldur er hér athygl­inni beint að því álita­efni hvaða orku­verði lík­legt er að Lands­virkjun stefni að vegna Elkem.

Samningurinn 2010 vegna álversins í Straumsvík sló tóninn

Á und­an­förnum árum hefur Lands­virkjun (LV) end­ur­samið um raf­orku­sölu til tveggja af fjórum stærstu stór­iðju­fyr­ir­tækj­unum. Árið 2010 var end­ur­samið við álver RTA/ÍSAL í Straums­vík. Þar varð verð­hækk­unin á raf­orkunni mjög mikil, en orku­verðið skv. fyrri samn­ingi hafði verið afar lágt. Nýi samn­ing­ur­inn við Straums­vík­ur­verið er lang­tíma­samn­ingur; hann gildir til 2036 en er þó með end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði um raf­orku­verðið sem verður virkt 2024. Orku­verðið í þessum nýja samn­ingi er ekki tengt álverði, heldur helst það í hendur við banda­ríska neyslu­vísi­tölu (CPI).

Það er verð­hækk­unin í þessum nýja samn­ingi frá 2010 sem er grund­vallar­á­stæða fyrir því hversu fjár­hags­leg staða LV er nú sterk. Enda er stundum talað um þennan samn­ing sem krafta­verk Lands­virkj­unar sökum þess hversu áhættu­lít­ill hann er og skilar góðum tekjum. Hitt stór­iðju­fyr­ir­tækið sem LV hefur end­ur­samið við er Norðurál, en sá nýi samn­ingur tekur ekki gildi fyrr en 2019.

Núverandi samningur LV og Elkem er „barn síns tíma“

For­stjóri LV hefur sagt gömlu raf­orku­samn­ing­ana við RTA/ÍSAL og Norðurál, sem umræddir nýir samn­ingar leysa af hólmi, vera „barn síns tíma“. Og vísar þar til þess hversu raf­orku­verðið í þessum eldri samn­ingum var lágt. Gera má ráð fyrir að LV hafi sams­konar afstöðu til samn­ings­ins við Elkem, sem er um tutt­ugu ára gam­all. Og stefni þar að mik­illi hækkun á raf­orku­verð­inu. Eftir stendur spurn­ingin um það hvort fyr­ir­tækin, þ.e. LV og Elkem, muni ná saman og þá á hvaða nótum. Hér má minn­ast þess að und­an­farið hefur ekki gengið alltof vel hjá þeim að semja, sbr. nýverið þegar reynt var að semja um aðgang Elkem að við­bót­ar­orku. Þar mun hafa strandað á ólíkum verð­hug­myndum.

Raforkuverð á samkeppnismörkuðum LV hefur lækkað

Þegar LV gerði samn­ing­inn við RTA/ÍSAL árið 2010 var margt sem benti til þess að heild­sölu­verð á raf­orku í á helstu sam­keppn­is­mörk­uðum LV yrði nokkuð hátt á kom­andi árum. Sem skýrir það m.a. af hverju RTA/ÍSAL féllst á að upp­hafsverðið í nýja samn­ingnum yrði þá nálægt 25 USD/MWst (með flutn­ingi var samn­ings­verðið rúm­lega 30 USD/MWst).

Þar með var sleg­inn sá tónn af hálfu LV að raf­orku­verðið í öðrum kom­andi stór­iðju­samn­ingum sem kæmu til end­ur­nýj­unar yrði a.m.k. um eða yfir 30 USD/MWst (þegar flutn­ings­kostn­aður er inni­fal­inn). Og færi hækk­andi eftir því sem banda­rísk neyslu­vísi­tala (CPI) hækk­aði. Miðað við hækkun CPI frá 2010 má ætla að raf­orku­verðið til Straums­víkur með flutn­ingi nálgist nú 35 USD/MWst.

Það er athygl­is­vert að síðan þessi samn­ingur var gerður árið 2010 hefur raf­orku­verð á helstu sam­keppn­is­mörk­uðum LV m.t.t. stór­iðju lækkað mikið. Fyrir vikið er ekki aug­ljóst að raf­orku­verð í end­ur­nýj­uðum samn­ingum við stór­iðju á Íslandi verði svo hátt sem Straums­vík­ur­samn­ing­ur­inn gaf tón­inn um. Í ljósi sterkrar samn­ings­stöðu sinnar gerir LV þó eflaust ráð fyrir því að geta nú náð svip­aðri nið­ur­stöðu í samn­ingum við Elkem eins og samið var um við RTA/ÍSAL eða Norðurál.

Óljóst hversu mikilli hækkun nýr samningur við Norðurál skilar

Umrædd lækkun á heild­sölu­mörk­uðum raf­orku erlendis síðan 2010 er senni­lega helsta ástæða þess að samið var á allt öðrum nótum þegar LV og Norðurál (Century Aluminum) náðu loks saman um end­ur­nýjun raf­orku­samn­ings árið 2016. Nið­ur­staðan var að not­ast við raf­orku­verð á nor­ræna raf­orku­mark­aðnum sem við­miðun. Sá samn­ingur á því lítið sam­eig­in­legt með samn­ingnum vegna álvers­ins í Straums­vík nema það að verð­teng­ing við álverð fór út.

Þessi nýi samn­ingur milli Norð­ur­áls og LV frá 2016 gildir bara í örfá ár; 2019–2023. Ekki er víst hvaða orku­verð verður þá á nor­ræna raf­orku­mark­aðnum. Engu að síður er senni­legt að LV hafi vænt­ingar um að verð­teng­ingin við nor­ræna mark­að­inn muni skila um eða yfir 100% hækkun á raf­orku­verð­inu til Norð­ur­áls. Þá er miðað við að verðið á nor­ræna raf­orku­mark­aðnum þró­ist þannig að það verði á samn­ings­tím­anum 2019-2023 u.þ.b tvö­falt það verð sem Norðurál var að greiða LV árin 2015 og 2016. En þá var orku­verðið til Norð­ur­áls án flutn­ings í nágrenni við 12 USD/MWst (sveifl­að­ist þó vegna verð­breyt­inga á áli). Hækkun á raf­orku­verð­inu um 100% eða þar um bil myndi skila orku­verði upp á um 30–35 USD/MWst þegar flutn­ing­ur­inn er tek­inn með.

Elkem kaupir um 8% orkunnar en borgar aðeins um 5% teknanna

Langmest af tekjum LV af raf­orku­sölu­samn­ingum fyr­ir­tæk­is­ins koma frá álveri RTA/ÍSAL í Straums­vík; sá við­skipta­vinur skilar LV um þriðj­ungi af tekjum fyr­ir­tæk­is­ins vegna raf­orku­sölu­samn­inga þó svo Straums­víkin kaupi ein­ungis um fjórð­ung af raf­orku­fram­leiðslu LV (sbr. taflan hér að neðan). Þá fær LV líka mjög hátt hlut­fall tekna sinna með almennri heild­sölu (sem er fyrst og fremst raf­orku­sala til ann­arra orku­fyr­ir­tækja og smá­ræði til Lands­nets).

Salan til Elkem nemur um 8% af raf­orku­sölu LV, þ.e. þegar miðað er við raf­orku­magnið. Þó svo þetta sé ekki mjög hátt hlut­fall þá er að sjálf­sögðu mik­il­vægt fyrir LV að ná fram auknum tekjum frá Elkem, enda er Elkem núna ein­ungis að skila LV um 5% af tekjum fyr­ir­tæk­is­ins af raf­orku­sölu (flutn­ings­kostn­aður er þá með­tal­inn). Þegar þessi hlut­föll eru borin saman við hlut­föllin vegna RTA/ÍSAL (sbr. taflan hér að neðan) sést vel hversu hlut­falls­lega lágt raf­orku­verðið til Elkem er.

Landsvirkjun vill sennilega meira en 100% verðhækkun

Líklegt er að LV stefni að því að nýr raf­orku­samn­ingur við Elkem muni skila fyr­ir­tæk­inu tekju­aukn­ingu sem nemur um eða yfir 100% m.v. það orku­verð sem Elkem hefur verið að greiða LV upp á síðkastið. Sem merkir að tekju­aukn­ing LV vegna Elkem yrði á bil­inu ca. 2–2,5 millj­arðar króna, líkt og sýnt er á graf­inu hér að neðan. Þetta gæti gerst annað hvort með því að semja um fast verð, svipað og gert var í samn­ingi LV og RTA/ÍSAL 2010, eða að tengja verðið við nor­ræna raf­orku­verðið, en þá yrði auð­vitað ansið óvíst hver verð­hækk­unin kæmi til með að verða í reynd.

Ef umrædd tekju­aukn­ing næð­ist yrði það mikil hlut­falls­leg aukn­ing. Und­an­farið hafa tekjur LV af raf­orku­sölu­samn­ingnum við Elkem ein­ungis numið nálægt 2 millj­örðum króna (tekj­urnar ásamt flutn­ings­kostn­aði; athugið að nákvæm tala er hér vís­vit­andi námunduð í heilan millj­arð). Verð­hækkun um 2–2,5 millj­arða króna myndi verða hrein við­bót við hagnað LV. Og sá aukni hagn­aður gæti mest allur farið í kær­komna aukn­ingu á arð­greiðslum Lands­virkj­unar. Að vísu er mögu­legt að Elkem standi mjög fast gegn því að raf­orku­reikn­ingur fyr­ir­tæk­is­ins ásamt flutn­ingi fari úr núver­andi u.þ.b. 2 millj­örðum króna í alls um 4-4,5 millj­arða króna. En það fer að verða aðkallandi að þarna náist brátt nýr samn­ingur, enda myndi lokun verk­smiðj­unnar ekki bein­línis valda kátínu; allra síst á Akranesi.

Taflan hér að neðan sýnir tekju­skipt­ingu LV árið 2016. Það ár námu tekjur LV vegna raf­orku­sölu­samn­inga alls um 42 millj­örðum króna (þá er flutn­ings­kostn­að­ur­inn með­tal­inn þar sem það á við). Nákvæm­ari grein­ing og upp­lýs­ingar um skipt­ingu tekna LV og um sér­hvert samn­ings­verð verða ekki birtar hér. En eru í boði fyrir við­skipta­vini grein­ar­höf­undar, þ.m.t. upp­lýs­ingar í við­kom­andi samn­ings­mynt. Einnig eru í boði ítar­legar upp­lýs­ingar til mark­aðs­að­ila um það hversu sam­keppn­is­hæft það verð er sem orku­fyr­ir­tækin hér hafa verið að bjóða nýjum við­skipta­vinum síð­ustu miss­eri og ár, og hvaða til­boða megi nú vænta í slíkum samn­inga­við­ræðum.

Höfundur er lög­fræð­ingur og MBA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár