Vonast eftir skýrari mynd á aðgerðum fyrir fjölmiðla á næstu mánuðum

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, segir að fjöl­miðlar þurfi að búa við gott umhverfi. Þeir veiti stjórn­mála­mönnum og öllu sam­fé­lag­inu aðhald og það geri alla öfl­ugri fyrir vikið.

„Tíminn vinnur ekki með okkur. En það sem við erum að gera er að við erum að taka aðgerð­irnar, við erum að meta þær og bæta við og athuga hvað þetta mun kosta rík­is­sjóðs Íslands. Ég á reglu­lega stöðu­fundi með því teymi sem vinnur að þessu þannig að ég er að von­ast til þess að ég er að von­ast til þess að ég verði komin með nokkuð skýra mynd á næstu mán­uðum.“

Þetta sagði Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, í sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut sem frum­sýndur var í gær­kvöldi þegar hún var spurð um vinnu vegna til­lagna sem nefnd sem um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla skil­aði af sér til hennar í jan­úar. Hægt er að sjá brot úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Nefndin gerði alls til­lögur um aðgerðir í sjö liðum sem gætu bætt rekstr­ar­skil­yrði fjöl­miðla. Þær snúa meðal ann­ars að stöðu Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði, skatta­legu umhverfi, textun og tal­setn­ingu og end­ur­greiðslu fram­leiðslu­kostn­aðar á fréttum og frétta­tengdu efni. Þá er einnig ítar­leg sam­an­tekt um opin­beran stuðn­ing við fjöl­miðla í helstu nágranna­ríkjum auk sér­á­lits tveggja nefnd­ar­manna.

Lilja sagði að mark­miðið væri að styðja við rekstr­ar­legt umhverfi fjöl­miðla. „Sam­keppnin, sem kemur líka erlendis frá, hún er alveg gríð­ar­leg og ég hugsa að hún hafi aldrei verið meiri[...]Við sjáum veru­lega rekstr­ar­erf­ið­leika í grein­inni og það er bara þannig að þetta þarf að vera gott umhverfi. Þið veitið okkur aðhald, ekki bara okkur heldur öllu sam­fé­lag­inu, og það gerir okkur öll held ég aðeins öfl­ugri fyrir vikið.“

Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár