Stórveldið í norðri – Samherji hagnast um 86 milljarða á 6 árum

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherji er alþjóð­legur risi í sjáv­ar­út­vegi. Á aðal­fundi var tekin ákvörðun um að greiða ekki út arð vegna árs­ins í fyrra, vegna mik­illa fjár­fest­inga sem framundan eru hjá fyr­ir­tæk­inu.

Þorsteinn Már Baldvinsson
Þor­steinn Már Bald­vins­son

Stærsta útgerð­ar­fyri­tæki lands­ins, Sam­herji, hefur átt góðu gengi að fagna á und­an­förnum árum, en á árunum 2011 til og með 2016 hefur fyr­ir­tækið hagn­ast um 86 millj­arða króna. Hagn­að­ur­inn í fyrra var 14,3 millj­arðar króna.

Tekj­ur Sam­herja, sem er sam­stæða fé­laga sem flest starfa á sviði sjáv­ar­út­vegs, hér­lend­is sem er­lend­is, námu þá um 85 millj­örðum króna og var hagn­aður fyr­ir af­skrift­ir og fjár­magnsliði um 17 millj­arðar króna, að því er segir í til­kynn­ingu frá félag­inu.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri, fagnar rekstr­ar­af­kom­unni og segir hana ánægju­lega. Framundan séu miklar fjár­fest­ingar. „Það má segja að á síð­asta ári hafi nýjar fjár­fest­ingar byrjað að skila sér. Miklar end­ur­bætur á land­vinnslu ÚA á árinu 2015 tók­ust vel og sex ný skip voru í smíðum á vegum félags­ins á árinu 2016. Þetta eru fjár­fest­ingar sem munu leggja grunn að bættri afkomu og sveigj­an­leika í rekstri á kom­andi árum. Tvö skip­anna, Kald­bakur og Björg­úlfur, eru þegar komin til lands­ins og Cuxhaven hefur haldið til veiða í Þýska­landi. Þá munu veru­legar fjár­fest­ingar í Íslands­bleikju treysta fisk­eldið," segir Þor­steinn Már í til­kynn­ingu.

Hagn­aður Samherja árið 2011 var 8,8 millj­arð­ar, árið 2012 16 millj­arð­ar, árið 2013 22 millj­arð­ar, árið 2014 11 millj­arðar og árið 2015 var hagn­að­ur­inn 13,9 millj­arðar króna. Eins og áður segir var hagn­að­ur­inn í fyrra 14,3 millj­arðar króna.

Þetta er lang­sam­lega besta rekstr­ar­tíma­bil í sögu fyr­ir­tæk­is­ins og má segja að fyr­ir­tækið hafi stungið önnur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki af, þegar kemur að stærð og fjár­hags­legum styrk. Hjartað í starf­sem­inni er á Eyja­fjarð­ar­svæð­inu, bæði á Akureyri og Dalvík.

Eig­in­fjár­hlut­fall þess var 75,7 pró­sent og nam eigið féð 701,9 millj­ónum evra, eða sem nemur 89 millj­örðum króna, miðað við núver­andi gengi krónu gagn­vart evru.

Heild­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra námu um 85 millj­örðum króna, en greiddur tekju­skattur og veiði­gjöld námu 3,1 millj­arði króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár