Útskýring frambjóðanda
Það er nú gildishlaðið að tala um að það sé kjánalegt að vera stoltur af föðurlandi sínu. Stolt getur verið margvíslegt og af mörgum ástæðum. Ég myndi til að mynda segja að ég væri stolt af því hvað það búa margir hér þrátt fyrir óblíða náttúru. Svo er ég nokkuð stolt af því hvað við erum dugleg að skrifa bækur og passa tungumálið okkar. Svo er ég stolt af því að geta sagt að við séum herlaus þjóð sem fari yfirleitt með friðarboðskap meðal annarra þjóða.