Bréf til bjargar baráttu tíu kvenna

Árleg her­ferð Amnesty International, lýstu upp myrkrið, er hafin en hún vekur athygli á und­ir­skrifta­her­ferð­inni, Bréf til bjargar lífi, sem í ár er helguð tíu bar­áttu­konum. Meðal þeirra er bar­áttu­konan Nawal Benassi frá Marokkó.

Árleg her­ferð Amnesty International, lýstu upp myrkrið, byrj­aði í gær en til­gangur her­ferð­ar­innar er að vekja athygli á und­ir­skrifta­her­ferð Amnesty International Bréf til bjargar lífi sem í ár er helguð tíu bar­áttu­konum sem sæta grófum mann­rétt­inda­brotum.

Lýstu upp myrkrið er stærsta gagn­virka ljósainn­setn­ing á Íslandi. Hún fer fram fyrir framan Hall­gríms­kirkju frá 30. nóv­em­ber til 2. des­em­ber. Hug­myndin er sú að gestir geti lýst upp myrkrið sem mann­rétt­inda­brotin eru og tekið þátt í ljósainn­set­ing­unni með því að skrifa undir málin á spjald­tölvu fyrir framan kirkj­una.

Í ár er her­ferðin til­einkuð bar­áttu tíu hug­rakkra kvenna, all­staðar að úr heim­inum, sem hætta lífi sínu í þágu betra heims. Konurnar tíu eru frá Brasilíu, Egypta­landi, Indlandi, Marokkó, Keníu, Suður-Afríku, Íran, Kirgistan, Venes­ú­ela og Úkraínu. Þær berj­ast allar fyrir betra sam­fé­lagi á mis­mun­andi hátt í sínu heima­landi, meðal þeirra bar­áttu­mála sem þær berj­ast fyrir eru rétt­indi hinsegin fólks, jafn­rétti kynj­anna, gegn dauða­refs­ingum ásamt fleiru.

Hundruðir dæmd í fangelsi fyrir friðsæl mótmæli

Á meðal þess­ara kvenna bar­áttu­konan Nawal Benaissa en hún er 36 ára, fjög­urra barna móðir frá Marokkó. Í heima­landi sínu berst hún fyrir bættum mann­rétt­indum en í hér­að­inu hennar í Marokkó, búa íbúar við mis­rétti, spill­ingu og van­rækslu af hendi marokkóskra stjórn­valda. Nawal hefur verið ein þeirra sem leitt hefur mót­mælin þar í landi en í byrjun árs hlaut hún tíu mán­aða skil­orðs­bundin dóm fyrir að hvetja til lög­brota á sam­fé­lags­miðlum.

Síðustu ár hefur verið róstu­samt í Rif hér­aði, hér­að­inu hennar Nawal. Berbar eru þar í miklum meiri­hluta en þeir telja sig ekki sitja við sama borð og aðra lands­menn. Mótmælin hófust í októ­ber 2016, í hafn­ar­borg­inni al-Hoceima eftir að íbúi var drep­inn af rusla­bíl stjórn­valda. Mótmælin brut­ust hratt út um hér­aðið og síðan landið allt en upp úr þessum jarð­vegi spratt ný, póli­tísk hreyf­ing sem kall­ast Al-Hirak al-shaabi.

Hirak hreyf­ingin hefur náð miklum vin­sældum und­an­farin tvö ár í Marokkó en hreyf­ingin berst fyrir upp­bygg­ingu atvinnu­lífs, þróun inn­viða og upp­ræt­ingu spill­ingar í Rif hér­að­inu og mót­mælir spill­ingu stjórn­valda. Í Rif hér­að­inu er atvinnu­leysi yfir 65 pró­sent og mikil þörf á upp­bygg­ingu í heil­brigðis- og mennta­málum.Yfir sum­arið 2017 brut­ust út fjöldi mót­mæla sem stjórn­völd reyndu að banna trekk í trekk. Í

yfir­lýs­ingu

Amnesty um málið segir að lög­reglan hafi beitt mót­mæl­endum ofbeldi og að yfir sum­arið hafi stjórn­völd hand­tekið yfir 400 mót­mæl­endur, þar á meðal börn. Fjöl­miðla­maður, fyrrum leið­togi og fjöldi ann­arra mót­mæl­enda hafa verið dæmd án rétt­látrar máls­með­ferðar. Mann­rétt­inda­sam­tök um allan heim hafa gagn­rýnt stjórn­völd í Marokkó fyrir að leyfa ekki frið­sæl mót­mæli.

Barátta fyrir betra framtíð

Nawal er ein þeirra sem gegnir for­ystu innan Hirak hreyf­ing­ar­innar og sem leið­togi hennar hefur hún staðið fyrir frið­sam­legum mót­mælum og gagn­rýnt stjórn­völd á sam­fé­lags­miðlum. Nawal hefur vakið mikil athygli fyrir bar­áttu sína innan hreyf­ing­ar­innar og Facebook-síðan hennar er með yfir 80.000 fylgj­endur.

„Ég fædd­ist og var alin upp í Rif, svæði þar sem van­ræksla af hálfu stjórn­valda, mis­rétti og spill­ing ræður ríkjum. Ég tek þátt í frið­sælum mót­mælum af því ég krefst að rétt­inda mín séu virt og stjórn­völd virði rétt­indi íbúa Rifs hér­aðs­ins til heil­brigð­is­þjón­ustu, menntun og vinnu.“ segir Nawal á Facebook-síðu sinni. 

Samkvæmt yfir­lýs­ingu Amnesty hafa stjórn­völd þar í landi reynt að þagga niður í Nawal en hún hefur verið hand­tekin fjórum sinnum á fjög­urra mán­aða tíma­bili. Þar sem hún var meðal ann­ars haldin í varð­haldi og krafin um að loka Facebook- síðu sinni. Á sama tíma hafa örygg­is­sveitir í Marokkó hand­tekið hund­ruð mót­mæl­enda fyrir það eitt að tjá stuðn­ing sinn við hreyf­ing­una á Facebook.

Í febr­úar 2018 hlaut Nawal tíu mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm og sekt fyrir að „hvetja til lög­brota“ á sam­fé­lags­miðlum. Yfir sum­arið 2017 hafði hún hvatt íbúa hér­aðs­ins til að mæta á mót­mælin og gagrýnt stjórn­völd fyrir ósann­gjarna með­ferð þeirra á mót­mæl­endum. Nawal hefur áfrýjað dómnum og flúið til ann­arrar borgar í Marokko til kom­ast hjá stöð­ugu eft­ir­liti en sam­kvæmt Amnesty halda árásar á hendur henni af hálfu stjórn­valda áfram.

„Að taka þátt í frið­sælum mót­mælum og krefj­ast grunn­mann­rétt­inda er ekki glæpur“ segir í yfir­lýs­ingu Amnesty um mál Nawalu. Í yfir­lýs­ing­unni segir einnig að dómur Nawal Benaissa sé hluti af stór­felldri her­ferð stjórn­valda gegn Hirak hreyf­ing­unni og leið­togum hennar. Nawal óskar þess að vera frjáls til að heyja bar­áttu sína fyrir betri fram­tíð fyrir sig og börnin sín en með bréfi til bjargar Nawal getur þú krafið for­sæt­is­ráð­herra Marokkó um að koma í veg fyrir frek­ari árásir af hálfu stjórn­valda á Nawal.

Á heima­síðu Íslands­deildar Amnesty er hægt að lesa um öll tíu mis­mun­andi bar­áttu­mál kvenn­anna og hægt er skrifa undir bréf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Amnesty

Mest lesið undanfarið ár