„Við þurfum fleiri ferðamenn“

Formaður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga telur nauð­syn­legt að fleiri ferða­menn komi til Íslands sem fyrst og vill breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi skim­ana á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri Hveragerðis.
Aldís Haf­steins­dóttir, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og bæj­ar­stjóri Hvera­gerðis. Mynd: Hveragerðisbær.

Aldís Haf­steins­dóttir, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og bæj­ar­stjóri Hvera­gerðis, segir bæinn þurfa að fá fleiri ferða­menn til að milda það efna­hags­á­fall sem sveit­ar­fé­lögin hafa orðið fyrir. Enn fremur telur hún Hvera­gerði geta tekið á móti fleiri ferða­mönnum með öruggum hætti og veltir því upp hvort hægt sé að breyta fyr­ir­komu­lagi skim­ana á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Aldís var gestur í Viku­lok­unum á Rás 1 fyrr í dag, ásamt Ara Skúla­syni hag­fræð­ingi hjá Lands­bank­anum og Skapta Erni Ólafs­syni upp­lýs­inga­full­trúa Samtaka ferða­þjón­ust­unnar (SAF).

Skapti segir ferða­þjón­ust­una kalla eftir því að áformum um breyt­ingar á skimunum fyrir komu­far­þega í Leifs­stöð verði flýtt.

Samkvæmt honum hafa Íslend­ingar ekki gefið neinn afslátt þegar kemur að sótt­vörnum í COVID- far­aldr­inum, en mik­il­vægt væri að huga að efna­hags­málum líka. Verði komur ferða­manna tak­mark­aðar enn frekar til lands­ins færum við í enn dýpri efna­hagslægð, sem gæti líka haft heilsu­fars­leg vanda­mál, að mati Skapta.

Aldís tekur í sama streng og Skapti og segir Hvera­gerði hafi orðið af miklum tekjum vegna færri ferða­manna. „Við þurfum að fá fleiri ferða­menn. Efna­hagur okkar hefur byggt á þessu og við teljum að við getum tekið á móti þeim með öruggum hætti. Smitin eru ekki í stórum mæli greini­lega, þannig að það er spurn­ing hvort við getum ekki spítt aðeins í,“ segir Aldís.

Hún bætir þó við að íslenskum ferða­mönnum um bæj­ar­fé­lagið hafi fjölgað á und­an­förnum vikum, sem sjá mætti með auk­inni umferð um helgar. Hins vegar dugi það ekki til að veita fólki í rekstri í ferða­þjón­ust­unni við­eig­andi stuðn­ing, þar sem 350 þús­und manna þjóð geti ekki bætt upp tap þegar tvær millj­ónir ferða­manna vantar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár