
Enn inni í myndinni að kaupa einingahús fyrir Grindvíkinga
Nokkur fjöldi íbúða er enn í boði fyrir Grindvíkinga hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum og töluverður fjöldi til viðbótar í boði fyrir þá á Leigutorgi. Ágætt framboð er auk þess á tilbúnum byggingarlóðum. Innviðaráðuneytið segir að m.a. í ljósi þessa þurfi að meta sérstaklega hvort þörf sé á frekari kaupum á húsnæði fyrir Grindvíkinga.






