
Ljóðskáld í súlufitness og kynlífsþjónustu á netinu
Brynhildur María Ragnarsdóttir er í meistaranámi, hefur skrifað ljóð og fyrsta skáldsagan er í vinnslu. Á undanförnum árum hefur hún einnig starfað sem súludansari og veitt kynlífsþjónustu á netinu. Þótt hún verði vör við fordóma sumra hefur þetta veitt henni aukið sjálfstraust. „Loksins var ég með reglur og stjórn yfir sjálfri mér.“


