• miðvikudagur 25. nóvember 2026
  • 2°C Rigning 7 m/s
  • Styrkja
  • Skrá inn
  • Áskrift
Skrá inn Fá áskrift
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið
  • Þættir
  • Fasteignir
  • Hátekjulistinn

Heimildin

  • Blöð
  • Fréttabréf
  • Áskrift
  • Vinnustaðaáskrift
  • Styrkja
  • Gefa áskrift
  • Heimilisblaðið
  • Benda á frétt
  • Um Heimildina
  • Laus störf
  • Auglýsingar
Útlit

© 2026 Sameinaða útgáfufélagið ehf. Allur réttur áskilinn. Notkun á efni miðilsins er óheimil án samþykkis.

  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið
Greinaröð

Kjaftæði

KjaftæðiHrafn Jónsson

Sjálf­dautt mannorð

Ég er búinn að vera með svo mikla ógeðis­tilfinningu í öllum líkamanum að ég er staddur í miðri safaföstu til að reyna að særa eitthvað af þessu úr mér. Ég hugsa reyndar að þetta sé líkam­leg birtingar­mynd einhvers andlegs sársauka – svona eins og yfir­gnæfandi löngunin sem ég fæ til þess að sturta mig þegar ég hugsa um Svein Andra...
Hrafn Jónsson
KjaftæðiKonráð Jónsson

Mér finnst þetta fínt

Hafið þið séð annað eins?“ stóð í Facebook-færslu hjá mbl.is þar sem sýnt var veður­spákort af Íslandi fyrir dag síðar í vikunni. Hvert sem litið var mátti sjá sól, en þegar betur var að gáð var hitinn á bilinu átta til tólf gráður á mestöllu landinu og þar af tólf gráður í Reykjavík. Svo rann þessi dagur upp með sínum...
KjaftæðiMargrét Erla Maack

Núna, takk

Lengi vel töldu eldri frændur og foreldrar mínir mér trú um að ég væri óþol­in­móð­asta manneskja heims. Eftir að hafa starfað sem óskalaga­þeytir, kara­okedrottning og miða­sölukona í sirkus get ég með sanni sagt að þarna úti er fólk með hættulega stutta þræði. Í karaoke og óskalaga­þeytingum er ég að sjálfsögðu að díla við fólk sem hefur lagt meira á lifur...
Margrét Erla Maack
KjaftæðiHrafn Jónsson

Gáma­kynslóðin

Ég er alltaf að reyna að sannfæra kærustuna mína um að kaupa sér íbúð. Það er ekki að við séum á nokkurn hátt tilbúin að búa saman. Við erum búin að vera saman í örfáa mánuði og rétt byrjuð að freta fyrir framan hvort annað, þannig að skynsemin segir að það þurfi smá stund til viðbótar af uppbyggðu æðruleysi til...
Hrafn Jónsson
KjaftæðiStígur Helgason

Sendil­herrann

Gunnar Bragi var næstum sloppinn fyrir horn. Það var enginn að pæla í honum lengur. Hann hafði tíst til stuðnings Palestínu­mönnum og sett mildilega ofan í við Pútín þrátt fyrir að það hafi ábyggilega illa samrýmst norðurslóða­áætlunum helsta bakhjarls Framsóknar­flokksins. Var Gunnar Bragi kannski allur að braggast? Var hann jafnvel farinn að rifja upp austan­tjaldskaflana í grunnskóla­landa­fræðinni? Ætlaði hann að...
Stígur Helgason
KjaftæðiHrafn Jónsson

Fordóma­lausa umræðu um hægða­losun

Life is what happens to you when you are busy ­making other plans” er ofnotaður texti úr lagi eftir John Lennon. Ef það væri rétt mætti segja að líf mitt væri hægða­losun. Ég tefli við páfann þrisvar til fjórum ­sinnum á dag að meðaltali. Þó að mér verði nú ­sjaldnast brátt í brók finnst mér óþægilegt og pínulítið ergilegt að...
Hrafn Jónsson
KjaftæðiMargrét Erla Maack

Einir og annars flokks

Ameríku­dýrið í mér fór í gleði­heljarstökk þegar því barst til eyrna að Costco væri að skoða að pæla í að athuga með það að koma til landsins. Undir­rituð skemmtir sér jafn vel í erlendum stór­mörkuðum og venju­legir ferðamenn á nýlista­söfnum og fá vinir og vandamenn frekar hot-sósur ýmiss konar í stað hefð­bundinna minja­gripa. Hvenær sem er ársins er ég alltaf...
Margrét Erla Maack
KjaftæðiHrafn Jónsson

Látum þá éta köku

Ok, þannig að núna getur Jakob Frímann Magnússon stjórnað veðrinu. Er það alveg í lagi? Var á þann mann bætandi? Ég er enn að sjá JFM titlaðan miðborgar­stjóra þótt hann hafi ekki gegnt opinberri stöðu síðan Ólafur F. sór hann inn í einhverri Calígúlaískri maníu rétt fyrir hrun (hestur sem prestur og allt það). Síðan þá hefur hann í forsvari...
Hrafn Jónsson
KjaftæðiKatrín Thorsteinsson

Ertu (pínu­lítill) rasisti?

Nú þegar nokkrar vikur eru liðnar frá „mosku-gate“-útspili Framsóknar­flokksins í Reykjavík, og ljóst er að þessir tæplega sex þúsund einstak­lingar sem kusu flokkinn munu ekki fá víðtæk völd í borginni um sinn, er fróðlegt að rýna í viðbrögð hins almenna borgara við útspilinu. Sem betur fer virðast flestir vera undrandi og áhyggju­fullir yfir þessum litla, háværa hópi fólks sem lítur...
KjaftæðiKonráð Jónsson

Fórnar­lömbin væla

Ég hef dálítið gaman af því að fylgjast með þjóðfélags­umræðunni. Úr fjarlægð, það er að segja. Ef ég læsi hvern og einn einasta pistil sem væri skrifaður væri ég fyrir löngu genginn í sjóinn. Ég les þetta fæst, nema mína eigin pistla, af illri nauðsyn (og Pawel auðvitað). En þegar ég segist hafa gaman af því að fylgjast með umræðunni...
KjaftæðiDóri DNA

Ónytjungar og meðlags­greiðslur

Ég á tvö börn með tveimur konum. Pilt og stúlku. Pilturinn er þriggja ára. Hann fæddist ekki inn í neins konar samband né sambúð en ég og móðir hans höfum alið hann upp í sameiningu frá fæðingu. Þegar hann var 18 mánaða gamall fór hann á leikskóla og hefur síðan þá dvalið eina viku hjá mér og þá næstu hjá...
Dóri DNA
KjaftæðiStígur Helgason

Að fela söguna

Það er þetta með þjóð­menninguna. Ríkis­stjórnin boðaði í fyrra að nú skyldi hlúa að henni og hafa hana í hávegum, þjóð­menninguna. Framsóknar­flokkurinn hafði á lands­fundi tveimur árum áður – og svo sem löngu fyrr og síðar – fært okkur heim sanninnum það hver þjóð­menningin væri: Þjóð­menning er glímu­sýning uppi á sviði fyrir fullum bíósal af gömlu fólki, þjóð­menning er Egill...
Stígur Helgason
Sýna fleiri greinar

193–204 af 215

Nýrri greinar
Stofnuð árið 2023 af Stundinni og Kjarnanum
  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið
  • Þættir
  • Leikir
  • Fasteignir
  • Blöð
  • Áskrift
  • Vinnustaðaáskrift
  • Fréttabréf
  • Tilkynningar
  • Um Heimildina
  • Benda á frétt
  • Auglýsingar

Morgunpósturinn

Morgunpóstur Heimildarinnar berst alla morgna og er fyrir öll þau sem hafa áhuga á fréttum og þjóðfélagsumræðu.

Áskrift hefur áhrif

Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Með því að kaupa áskrift að Heimildinni styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.
Sjá meira
© 2026 Sameinaða útgáfufélagið ehf. Allur réttur áskilinn. Notkun á efni miðilsins er óheimil án samþykkis.
Áskrift hefur áhrif
Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Áskrift styður tímafreka rannsóknarblaðamennsku.
Ég vil fá áskrift
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn hér.
Heimildin notar vefkökur til að mæla lestur og birta auglýsingar. Sjá nánar.
  • Skrá inn
  • Nýskrá
  • Við sendum þér kóða í tölvupósti: ekkert lykilorð þarf.

    eða

    Skrá inn með lykilorði
    Gleymt lykilorð?
    Halda áfram með Facebook

    Stofna aðgang · Leiðbeiningar

  • Minnst 8 stafir; hvorki algengt lykilorð né eingöngu tölustafir.

    eða

    Halda áfram með Facebook