
Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögnina
„Ég er stolt af því að hafa rofið þögnina með því að koma dagbók mömmu á framfæri sem og bréfinu sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi henni,“ segir Valgerður Þorsteinsdóttir, dóttir Þóru Hreinsdóttur en Stundin fjallaði um bréfið og dagbókina á dögunum. Pabbi Valgerðar sem var í sambúð með Þóru fyrir um fjörutíu árum, eiginkona hans og systir Valgerðar segja að friðhelgi einkalífs Þóru sé rofin og vanvirt.
