„Þær ljósmyndir sem birtust með greininni sýndu því miður ekki slíkar aðstæður“
„Ráðherra telur afar mikilvægt að fólk búi við viðunandi húsnæðisaðstæður. Þær ljósmyndir sem birtust með greininni sýndu því miður ekki slíkar aðstæður,“ segir í svari frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu þar sem óskað var eftir viðbrögðum ráðherra við hvernig aðbúnaður fólks sem bjó á áfangaheimilum Betra lífs hefur verið, í kjölfar umfjöllunar Heimildarinnar. Vinna stendur yfir í ráðuneytinu við að kortleggja hvaða velferðar- og félagsleg þjónusta ætti að vera háð rekstrarleyfi og eftirliti.