Fréttir

„Allt of langt gengið“

Lögmenn Eddu Sig­urð­ar­dóttur og Sesselju Maríu Morten­sen segja alvar­legt að Lands­réttur haldi því fram að ummæli séu ekki lengur sönn eða hægt sé að setja þau fram í góðri trú eftir að sá sem um var rætt skipti um skoðun varð­andi upp­lifun sína, hvort um nauðgun var að ræða eða ekki. Þá sé vegið að tján­ing­ar­frelsi aðstand­enda brota­þola ef þeir mega ekki tjá sig um reynslu sinna nán­ustu.
Fréttir

Meintur brota­þoli sýkn­aður en náinn aðstand­andi dæmdur

Í 28 manna lok­uðum Facebook-hópi, sem sner­ist um að vara við vafasömum ein­stak­lingum, sagði Edda Sig­urð­ar­dóttir frá því að nafn­greindur maður hefði nauðgað sér. Síðar sagði Sesselja María Morten­sen frá því, í sama hópi, að þessi maður hefði nauðgað konu sem væri sér mjög kær og vís­aði þar til Eddu. Edda kærði nauðg­un­ina en málið var fellt niður. Í fram­hald­inu fór mað­ur­inn í meið­yrða­mál við þær báðar þar sem Edda var sýknuð en Sesselja á end­anum dæmd. Edda þarf þó að greiða millj­ónir í máls­kostnað.

9 mín. lestur

ViðtalSúðavíkurflóðið

Hættan í Súðavík skjal­fest ára­tug fyrr af sér­fræð­ingi Veð­ur­stofu

Vinnu­gögn snjó­flóða­sér­fræð­ings sem starf­aði á Veð­ur­stof­unni til 1984 sýna að snjó­flóða­hætta í Súðavík var mun meiri á því svæði sem seinna var sagt hættu­laust en fór undir snjó­flóð árið 1995. Höfundur þess furðar sig á því að yfir­völd hafi sett fram hættu­mat, sem stang­að­ist á við þeirra eigin gögn.
Spurningaþrautin

1116. spurn­inga­þraut: Hvar búa Sorbar?

Fyrri auka­spurn­ing: Hvað heitir fjöl­skyldan á þess­ari mynd hér að ofan? Þetta eru vita­skuld sjón­varps­per­sónur, svo það sé nú sagt. *** Aðal­spurn­ingar: 1.  Í hvaða landi eru glæpa­sam­tökin Yakuza upp­runnin' 2.  Á hvaða viku­degi var aðfanga­dagur síð­ast? 3.  Hverjir voru gladíatorar? 4.  Sorbar eru minnsta þjóð eða þjóð­ern­is­hópur af slav­neskum ættum í Evrópu. Þeir búa nær allir innan landamæra eins...
FréttirLaxeldi

Norskur lax­eld­is­risi leyndi vetr­ar­sárum og tjóni á Íslandi í upp­gjöri

Salmar AS, stærsti hlut­hafi Arnarlax á Bíldudal, sagði ekki frá því í árs­hluta­upp­gjöri sínu að íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tækið hafi þurft að slátra marg­falt fleiri eld­is­löxum en ætlað var vegna þess að þeir urðu sárugir. Fyr­ir­tækið sagði bara frá rúm­lega tvö­földum tekjum og tæp­lega tvö­földu magni af slátr­uðum fiskum en sagði ekki frá ástæðum þessa.
Greining

Fjár­hags­staðan í Reykja­vík ein sú skásta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Skulda­staða þess hluta rekst­urs Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­magn­aður er með skatt­tekjum er betri en allra ann­arra sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nema Kópavogs, sam­kvæmt töl­fræði­gögnum um fjár­mál þeirra. Skulda­hlut­fallið er lægst í Reykja­vík og Kópavogi, skuldir á hvern íbúa lægstar í þeim sveit­ar­fé­lögum og veltu­fjár­hlut­fallið, sem segir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuldir sínar, er hæst í höf­uð­borg­inni.

Mest lesið undanfarið ár