FréttirTollvernd landbúnaðar

„Það borgar sig ekki að fram­leiða meira hérna heima“

Fyr­ir­tækið Stjörnu­grís er með umfangs­mestu inn­flytj­endum á kjöt­vöru til Íslands, þrátt fyrir vera sjálft stærsti fram­leið­andi svína­kjöts á land­inu. Geir Gunnar Geirsson eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins segir betra fyrir neyt­endur að land­bún­að­ar­vörur séu undir toll­vernd. Gjöld sem greidd séu af inn­fluttu kjöti renni þá í rík­is­sjóð en ekki í vasa stór­kaup­manna og inn­flytj­enda.
VettvangurFlóttafólk frá Venesúela

Flótta­menn­irnir sem sumir telja ógn: „Við viljum bara dósir“

Dósa­söfnun flótta­manna frá Venes­ú­ela hefur vakið athygli í ein­hverjum hverfum í Reykja­vík og nær­sveit­ar­fé­lögum. Birtar hafa verið myndir af mönn­unum, sem búa í JL-hús­inu á Hring­braut, og varað við þeim. Sex ungir Venes­ú­ela­búar sem búa þar og safna dósum segj­ast ekki vilja stela neinu frá fólki heldur bara safna dósum.
Fréttir

„Ekki í boði að úthýsa þeim“ – Kalla eftir svörum frá Hafn­ar­fjarð­arbæ um aðgengi að neyð­ar­skýl­unum

Málefni heim­il­is­lausra voru til umræðu á fundi bæj­ar­ráðs Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar í gær eftir að heim­il­is­laus maður sem var ítrekað vísað frá neyð­ar­skýli að kröfu bæj­ar­ins svipti sig lífi. „Þetta er síð­asta úrræði þeirra sem eru á göt­unni og eiga við vanda að stríða, og það er ekki í boði að úthýsa þeim,“ segir Guð­mundur Árni Stef­áns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar. Fjöl­skyldu­ráð bæj­ar­ins hefur kallað eftir að sjá verk­lags­reglur í þessum málum.
FréttirTollvernd landbúnaðar

„Það hefði aldrei átt að leyfa þennan inn­flutn­ing án toll­kvóta“

Á aðal­fundi KS var sam­þykkt ályktun um að félagið og dótt­ur­fé­lög ættu ekki að flytja inn land­bún­að­ar­vörur. Dótt­ur­fé­lagið Esja gæða­fæði er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem flutti inn úkra­ínskan kjúkling. Ágúst Andr­és­son stjórn­ar­for­maður Esju segir að rangt hafi verið staðið að mál­inu frá upp­hafi.
GreiningTollvernd landbúnaðar

Vilja eiga kjötið og éta það

Fyr­ir­tæki í land­bún­aði eru hvað umfangs­mestu inn­flytj­endur erlendra land­bún­að­ar­vara. Á sama tíma og umrædd fyr­ir­tæki börð­ust gegn inn­flutn­ingi á úkra­ínskum kjúklingi stóðu þau sum hver sjálf í þeim inn­flutn­ingi. Þá er það almenn afstaða for­svars­manna fyr­ir­tækj­anna að tollaum­hverfi og úthlutun toll­kvóta fyrir land­bún­að­ar­vörur séu íslenskum land­bún­aði mjög óhag­stæð. Hins vegar taka þau þátt í útboðum á toll­kvótum og flytja jafn­vel inn kjöt, osta og egg á fullum tollum og keppa þar með við sjálf sig.

25 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár