Úttekt

Sam­eig­in­legur yfir­dráttur heim­ila í fyrsta sinn yfir 100 millj­arða króna

Umboðs­maður skuld­ara segir róð­ur­inn hjá fólki far­inn að þyngj­ast og þau hafi áhyggjur af stöð­unni. Í fyrsta sinn er sam­eig­in­legur yfir­dráttur heim­ila í land­inu kom­inn yfir 100 millj­arða króna. Yfir­drátt­ar­lán eru dýr­ustu lán sem ein­stak­lingar geta tekið hjá banka. Umboðs­maður skuld­ara hvetur fólk til að leita sér aðstoðar fyrr en seinna, áður en allt er komið í óefni.
Fréttir

Met sett í nýt­ingu á sér­eign­ar­sparn­aði til að borga niður íbúða­lán

Upphæðin sem lands­menn hafa ráð­stafað, skatt­frjálst, af sér­eign­ar­sparn­aði sínum inn í íbúða­lán fer að nálg­ast 150 millj­arða króna. Gögn sýna að 77 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem hið opin­bera gefur eftir í tekjur vegna þessa lendi hjá þremur efstu tekju­hóp­unum. Leiðin er gagn­rýnd úr öllum áttum og á að renna sitt skeið í lok næsta árs.
Viðtal

„Ég hef verið kölluð súpu­konan“

Rósa Björg Jóns­dóttir hefur búið til yfir tvö þús­und lítra af súpu sem hún hefur gefið í frí­s­kápa fyrir aðra til að njóta. Þetta er eitt af fjórum sjálf­boða­verk­efnum sem Rósa sinnir en hún rekur einnig barna­bóka­safn með bókum á fjölda tungu­mála, er ræð­is­maður Ítalíu og sinnir fata­við­gerðum í frí­stundum. Rósa fékk fálka­orð­una fyrir tveimur árum fyrir störf í þágu sam­taka um tví­tyngi. Hún segir þetta ekki vera neitt vesen, hún vilji bara vera virkur sam­fé­lags­þegn.

10 mín. lestur

Fréttir

Ætla að vísa vall­ar­stjór­anum úr landi 16. októ­ber

Lög­reglu­maður til­kynnti Þrótti á dög­unum að vall­ar­stjóra liðs­ins verði vikið úr landi eftir tvær vikur. Vall­ar­stjór­inn hefur búið hér á landi í tæp sex ár og á hverju ári fengið sím­tal frá Útlend­inga­stofnun um að vísa eigi honum burt. Vikurnar eftir hvert sím­tal á hann erfitt með svefn, svo mik­ill er ótt­inn við að lög­reglan komi að sækja hann og flytji hann burt úr landi sem er orðið hans heim­ili.
ViðtalHinsegin bakslagið

„Þetta var ég. Ég er ekki með typpi, ég var ekki nakin og ég er ekki karl­maður“

Veiga Grét­ars­dóttir er trans konan sem fór í sund í Graf­ar­vogs­laug í síð­ustu viku og nýtti sér kvenna­klef­ann á sama tíma og stúlkur í skóla­sundi. Nokkrar stúlkn­anna hlógu að henni og leið Veigu eins og hún væri sirk­us­dýr. Hún ákvað að gera athuga­semd við kenn­ara þeirra og hélt að þar með væri málið úr sög­unni en hávær orðrómur, byggður á lygum, fór af stað.

Mest lesið undanfarið ár