Straujar peningaseðlana til að drepa veiruna
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Straujar pen­inga­seðl­ana til að drepa veiruna

Mikil óvissa ríkir hjá íbúum Ung­verja­lands um það hvað stór­aukin völd stjórn­valda í kjöl­far laga­breyt­ingar hafi í för með sér. Einn þeirra er Herald Magyar, rit­höf­undur, þýð­andi, leik­ari og lista­maður frá Ung­verja­landi, sem býr ásamt eig­in­konu sinni í litlu húsi í útjaðri smá­bæjar í norð­ur­hluta Ung­verja­lands. Líf þeirra hefur koll­varp­ast á skömmum tíma. Herald er einn sex jarð­ar­búa sem deila dag­bókum sínum úr útgöngu­banni með les­endum Stund­ar­innar.
„Getum við farið?“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

„Getum við farið?“

Í Marra­kesh í Marrokkó búa hjónin Birta og Othman með dætur sínar fjórar. Þarlend yfir­völd brugð­ust hraðar við COVID-vánni en mörg nágranna­ríkin, settu meðal ann­ars á strangt útgöngu­bann og aðrar hömlur á dag­legt líf. Þrátt fyrir aðgerð­irnar hefur til­fellum kór­óna­veirunnar fjölgað þar hratt á und­an­förnum dögum. Birta Ár­dal Nóra Berg­steins­dótt­ir deilir dag­bók sinni með les­endum Stund­ar­innar. Í henni má meðal ann­ars lesa að fjöl­skyldan hafði hug á að koma til Íslands á meðan á heims­far­aldr­inum stendur, sem hefur reynst erfitt hingað til.
„Það er svo mikil þögn þarna úti“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

„Það er svo mikil þögn þarna úti“

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum fóru hægt af stað með aðgerðir til að hefta COVID-19 far­ald­ur­inn og lands­menn virð­ast nú súpa nú seyðið af því, þegar útbreiðsla hans virð­ist stjórn­laus. New York-ríki hefur hingað til farið verst út úr far­aldr­inum en til­fell­unum fjölgar hins vegar hratt í fleiri ríkjum, meðal ann­ars í Los Angeles þar sem Siobhan Murphy, rit­höf­undur og fram­leið­andi, býr.
Býst ekki við að börnin snúi aftur í skólann á þessu ári
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Býst ekki við að börnin snúi aftur í skól­ann á þessu ári

Í Kata­lóníu hefur verið strangt úti­vist­ar­bann í gildi frá því um miðjan mars. Þar, eins og víðar í land­inu, eru íbúar ugg­andi enda stand­ast heil­brigð­is­stofn­anir álagið vegna kór­óna­veirunnar illa. Í Barcelona býr Judit Porta, blaða­maður og menn­ing­ar­miðl­ari, með eig­in­manni og tveimur börnum. Þau búa í lít­illi íbúð í Gracia-hverf­inu og hafa ekki stigið út fyrir húss­ins dyr svo vikum skiptir. Hún deilir hér dag­bók sinni með les­endum Stund­ar­innar.
Hvernig COVID-19 herjar á Hveragerði: „Komin af stað í ferðalag sem við pöntuðum ekki“
VettvangurCovid-19

Hvernig COVID-19 herjar á Hvera­gerði: „Komin af stað í ferða­lag sem við pönt­uðum ekki“

Fimmt­ungur bæj­ar­búa í Hvera­gerði var á sama tíma í sótt­kví og bær­inn fast að því lamaður. Vel á annan tug fólks er smitað af COVID-19 kór­óna­veirunni í bænum og sam­fé­lagið varð fyrir áfalli þegar fyrsta dauðs­fall Íslend­ings af völdum veirunnar reið yfir bæinn. Þrátt fyrir allt þetta ríkir ein­hugur, kær­leikur og sam­heldni í bæj­ar­fé­lag­inu, nú sem aldrei fyrr. Hver­gerð­ingar ætla sér að kom­ast í gegnum far­ald­ur­inn, saman. „Þetta líður hjá,“ er orð­tæki bæj­ar­búa.
Skeyti frá Feneyjum: Gondólarnir eru hættir að sigla
VettvangurCovid-19

Skeyti frá Feneyjum: Gondól­arnir eru hættir að sigla

Í Feneyjum er skelf­ing­ar­á­stand vegna kór­óna­veirunnar og borg­ar­búar ótt­ast að ferða­manna­iðn­að­ur­inn, lífæð borg­ar­innar, muni aldrei ná sér. Blaða­menn­irnir Gabriele Catania og Val­ent­ina Saini ræddu við borg­ar­búa fyrir Stundina, meðal ann­ars mann sem smit­að­ist af kór­óna­veirunni og seg­ist hafa hágrátið og liðið vít­isk­valir í veik­ind­unum.

Mest lesið undanfarið ár