Pistill

Snorri Baldursson

Skógrækt og markmið í loftslags­málum

Hinn 19. júní birtist frétt á vef umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins þess efnis að Ísland og ESB hefðu samið um sameiginleg markmið í loftslags­málum í anda Kyoto-bókunarinnar. Samkvæmt samningnum þarf nettó­losun gróðurhúsa­lofttegunda frá Íslandi að dragast saman sem nemur um 860 þúsundum tonna koltví­sýr­ings til ársins 2020, eða sem nemur um 31% af núverandi losun. Þessu markmiði má ná í grundvallar­atriðum...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Forseti Íslands neitar að tala við frétta­stofu RÚV

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands neitaði RÚV um viðhafnar­viðtal vegna sjötíu ára afmælis lýðveldisins, sem sýna átti í heild sinni í sjón­varpinu 17. júní, því hann hafði lofað Morgun­blaðinu viðtali af sama tilefni. Þetta er hins vegar ekki í fyrsta skiptið þar sem forsetinn neitar að tala við RÚV. Frétta­stofan hefur ítrekað óskað eftir viðtölum við forsetann frá því í...
Pistill

Hafsteinn Hauksson

Á heima­velli á HM

Það þarf varla að hefja pistilinn á að taka það fram, en heims­meistara­mótið í knatt­spyrnu stendur nú yfir í Brasilíu. Sérfræðingar hafa frá upphafi móts verið allt að því samdóma um að gest­gjafinn eigi mestar sigur­líkur, en sennilegast hafa Brasilíu­menn einnig verið ofarlega á lista í rauðvíns­pottum á vinnu­stöðum víða um land. Þótt Brasilíu­menn séu með firna­sterkt lið er þó...
Pistill

Þórður Snær Júlíusson

Hvað þarf að segja til að vera þjóðernis­hyggju­flokkur?

Framsóknar­flokkurinn er í vanda vegna meints daðurs hans við þjóðernis­popúlisma. Forystu­menn hans vilja reyndar ekkert viðurkenna það og líta mun fremur á flokkinn sem fórnar­lamb óbilgjarnra árása einhvers óskilgreinds hóps pólitískra andstæðinga og nettrölla úr öllum áttum sem misskilji mála­tilbúnað flokksins vísvitandi og ítrekað. En þegar lykilmenn í flokknum á borð við fyrrum formanninn Jón Sigurðsson, fyrrum sveitar­stjórnar­manninn Ómar Stef­ánsson...
Kjaftæði

Stígur Helgason

Að fela söguna

Það er þetta með þjóð­menninguna. Ríkis­stjórnin boðaði í fyrra að nú skyldi hlúa að henni og hafa hana í hávegum, þjóð­menninguna. Framsóknar­flokkurinn hafði á lands­fundi tveimur árum áður – og svo sem löngu fyrr og síðar – fært okkur heim sanninnum það hver þjóð­menningin væri: Þjóð­menning er glímu­sýning uppi á sviði fyrir fullum bíósal af gömlu fólki, þjóð­menning er Egill...
Pistill

Þórður Snær Júlíusson

Pólitísk geðrof

Þessa daganna er rifist fyrir EFTA-dómstólnum. Ástæðan er sú að óskað hefur verið eftir ráðgefandi áliti hans á því hvort verð­tryggð neytendalán stangist á við tilskipanir Evrópu­sambandsins og sé þar af leiðandi ólögmæt. Á meðal þeirra sem skiluðu greinar­gerð í málinu er ríkis­stjórn Íslands, sem er þeirrar skoðunar að verð­tryggingin samrýmist tilskipunum Evrópu­sambandsins að fullu. Ríkis­stjórnin telur að verð­tryggingin sé...
Pistill

Stefán Eiríksson

Gamal­grónum stofnunum breytt

Í vor samþykkti Alþingi umtals­verðar breytingar á skipulagi löggæslu og framkvæmda­valds og stjórn­sýslu ríkisins í héraði. Í þessum breytingum felst í afar stuttu máli að embættum er fækkað og skilið er á milli starfsemi sýslu­manna og lögreglu­stjóra, en sýslumenn utan höfuð­borgar­svæðisins og Suðurnesja hafa til þessa jafnframt sinnt lögreglu­stjórn. Þessar breytingar hafa átt sér langan aðdrag­anda, t.a.m. voru breytingar á...
Kjaftæði

Margrét Erla Maack

Íslenskar Almanna­gjár

Dagarnir lengdust og svo kom júní. Kulda­leiðrétting síðasta sumars er sannarlega hafin með tilheyrandi freknum og sólar­hangsi. Óli frændi minn hefur flutt skrif­stofu sína á bakka Vesturbæjar­laugarinnar (mínus rottudaga) og ferða­mennirnir í flísinu eru mættir. Sama í hversu stórum borgum þeir búa hika þeir ekki við að stoppa óforvarendis úti á götu til að taka myndir af litríkum húsum eða...
Pistill

Sunnefa Völdundardóttir

Að reisa virki

Fjölmargt hefur verið rætt og skrifað um þær umræður sem spunnust í kringum mosku­lóðina á síðustu metrum kosninga­baráttu sveita­stjórnar­kosninganna. Hafa ýmsir lýst yfir áhyggjum sínum af því að sú öfgafulla umræða sem hefur um skeið fengið að leika lausum hala í evrópskum stjórn­málum virðist nú vera komin til Íslands. Umræða um málefni innflytjenda er ekki sérlega langt á veg komin...

Mest lesið undanfarið ár