PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: 365 mannar nýja áhöfn og eyðir samkeppni

Hræring­arnar á DV hafa vart farið framhjá neinum. Þær hafa líka gert það að verkum að allur fókus hefur færst af því umróti sem átt hefur sér stað á 365 ­miðlum, sem hefur þó ekki síður verið dramatískt. Kristín Þorsteins­dóttir, starfandi aðal­ritstjóri 365, hefur leitað logandi ljósi að nýju starfs­fólki til að fram­fylgja áherslum sínum og eigenda fyrir­tækisins. Í þeirri...
Pistill

Magnús Halldórsson

Fólkið á gólfinu afskipta­laust

Ég man sterkt eftir Guðmundi Jaka. Alltaf þegar hann kom fram og tjáði sig um mál sem snéru að fólkinu á gólfinu þá var hlustað. Hann var formaður Verkamanna­sambands Íslands á þessum tíma (1975 til 1991) og þingmaður Alþýðu­banda­lagsins sömuleiðis meðfram þeim störfum þó ég muni frekar eftir honum sem verkalýðs­leiðtoga en þingmanni. Hann hafði sérstaka framkomu með dimmri röddu...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Nýtt Kaupþing að verða til?

Á þriðjudag var verst geymda leyndarmál fjármála­lífsins opinberað þegar tilkynnt var að formlegar viðræður um sameiningu MP banka og Virðingar væru hafnar. Í Bakher­berginu hefur vakið athygli að margir með tengsl við Kaupþing eru í hluthafa- og stjórn­endahóp fyrir­tækjanna tveggja. Á meðal eigenda MP eru Rowland-fjöl­skyldan, sem keypti Kaupþing í Lúxem­borg eftir bankahrun, og Klakki, sem hét áður Exista og...
PistillBakherbergið

Þórður Snær Júlíusson

Bakherbergi: Kona á leið í ritstjóra­stól hjá 365 miðlum

Það er orðið nánast árlegur viðburður að allt fari á hliðina innan 365 miðla. Síðustu hræringar spruttu upp frá því að frétt um Geir Ólafs að borða með lötum kokki var fjarlægð af fréttavef samsteypunnar af nýráðnum útgefanda, Kristínu Þorsteins­dóttur. Í kjölfarið var Mikael Torfason rekinn og Ólafur Stephen­sen hætti, en þeir voru ritstjórar frétta­stofu 365. Í Bakher­berginu er því...
Pistill

Pétur Halldórsson kynningarstjóri hjá Skógrækt ríkisins

Betri vist

Snorri Baldursson, líffræðingur og þjóðgarðs­vörður, skrifar öðru sinni í Kjarnann 31. ágúst og svarar þá svari mínu við fyrstu grein hans. Snorri segir um skrifin mín að ég afflytji sumt og skauti framhjá öðru. Ekki rökstyður hann það.Ekkert einræði um stefnuna Snorri skrifar að skógræktar­fólk hafi verið einrátt um mótun skógræktar­stefnunnar. Það er rangt. Umhverfis­ráðherra fól skógræktar­fólki að móta þessa...
Pistill

Þórður Snær Júlíusson

Vondar fréttir fyrir boðbera góðra frétta

Silja Dögg Gunnars­dóttir, þingkona Framsóknar­flokksins, skrifar grein í Frétta­blaðið í dag undir fyrir­sögninni „Góðar fréttir“ . Þar segir hún að „þungu fargi hafi verið létt af þjóðinni þegar ríkis­stjórn Sigmundar Davíðs tók við vorið 2013. Á aðeins einu ári hefur núverandi ríkis­stjórn lyft grettis­taki og komið efnahags­lífinu á réttan kjöl“. Hún segir líka að ótrúleg umskipti hafi orðið í efnahags-...
Pistill

Þórður Snær Júlíusson

Uppgjörið á Íslandi

Á miðvikudag var tilkynnt að hollenski seðla­bankinn hefði selt afganginn af Icesave-kröfu sinni til Deutsche Bank fyrir um 96 milljarða króna. Á föstudag greindi Kjarninn frá því að Deutsche Bank hefði í raun ekkert verið kaup­andinn, heldur milligöngu­aðili fyrir ónafn­greinda og andlits­lausa viðskipta­vini sína sem hafa mikinn áhuga á að kaupa kröfur á gjald­þrota fyrirtæki frá hafta­sjúkri eyju í miðju...
Pistill

Hafsteinn Hauksson

Í betra form með Tómasi Schelling

Árið 1960, þegar kjarnorku­váin var sem áþreifan­legust og almenningur um veröld alla óttaðist að kjarnorku­veldin í vestri og austri myndu tortíma sjálfum sér og hálfri heims­byggðinni með, gaf hagfræð­ing­urinn og Nóbels­verðlauna­hafinn Tómas Schelling út bók til þess að skýra hvers vegna það væri afar ólíklegt að nokkuð slíkt gerðist. Bókin hét The Strategy of Conflict og er afrek á sviði...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Skipan Más mála­miðlun?

Fáir áttu von á því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson myndi berjast fyrir því að Már Guðmundsson sæti áfram sem seðla­bankastjóri, sérstak­lega eftir að forsætis­ráðherra hraunaði yfir Seðla­bankann á Viðskipta­þingi í febrúar fyrir að voga sér að reikna út áhrif skulda­niður­fellinga. Í Bakherbeginu er þó fullyrt að svo hafi verið. Fram­sóknarmenn gátu ekki hugsað sér Friðrik Má Baldvinsson vegna skrifa hans...
Pistill

Þórður Snær Júlíusson

Sérstakir menn sem ganga á vatni án þess að drukkna

Þjóð­kirkjan og kristin trú laumuðu sér í sviðs­ljósið í liðinni viku, líkt og þau gera alltaf annars lagið. Annars vegar varð allt vitlaust í einhverjum kreðsum yfir því að Ríkis­útvarpið ætlaði að hætta að útvarpa kristnum bænum, þótt ekkert í lögum segi að slík bæna­útsending falli undir hlutverk þess. Hins vegar skilaði starfs­hópur sem fjallaði um fyrir­komulag á fjárhags­legum samskiptum...
Pistill

Auður Jónsdóttir

Þýskaland nú, Palestína þá - og síðan...

Víða í Berlín má sjá gylltar plötur greyptar í gangstéttina. Þessar litlu plötur eru áletraðar með nöfnum, fæðingar- og dánar­dægri fórnar­lamba helfar­ar­innar. Hver plata er minnis­varði um manneskju sem var leidd út af heimili sínu, þar sem platan er staðsett, og færð í útrýmingar­búðir, og yfirleitt má lesa úr upplýs­ing­unum að viðkomandi hafi verið myrtur skömmu síðar, jafnvel örfáum dögum...

Mest lesið undanfarið ár