PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Gjá milli stjórn­enda og fólksins á gólfinu

Í bakher­berginu er fólk farið að velta fyrir sér kjara­samnings­viðræðum og hversu miklum launa­hækkunum forysta verkalýðs­hreyfingarinnar mun krefjast. Ljóst má vera, að svigrúmið til launa­hækkana er mikið, sé horft til launa­þróunar stjórn­enda margra stærri fyrir­tækja landsins. Þetta á ekki síst við um þjónustu­fyrirtæki þar sem lífeyris­sjóðirnir koma að stjórnum félaganna sem stærstu hluthafar. Hagar er ágætt dæmi um þetta. Það...
Pistill

Elliði Vignisson

Mér þykir vænt um ríkis­fjöl­miðilinn, en...

Íslendingum hefur í gegnum tíðina þótt vænt um ríkis­fjöl­miðilinn sinn. Hann er hluti af sögu þjóðar. Flestar stærstu fjölmiðla­stundir Íslendinga hafa haft ríkis­útvarpið allt umlykjandi. Á hverjum degi snýr hluti þjóðarinnar sér til RÚV eftir fræðslu, fréttum og/eða afþreyingu. Sjálfur nota ég ríkis­miðilinn þó nokkuð, sérstak­lega útvarpið. Mér þykir vænt um hann. Finnst hann stundum hlut­drægur en þykir vænt um...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Davíð Oddsson alls ekki að hætta sem ritstjóri

Fyrr í dag var tilkynnt um að Haraldur Johannessen hefði verið ráðinn framkvæmda­stjóri Árvakurs, útgáfu­félags Morgun­blaðsins. Ráðningin kemur í kjölfar þess að Óskar Magnússon, sem starfað hefur sem útgefandi Morgun­blaðsins, óskaði eftir að hætta störfum og gaf þá opinberu skýringu að hann vildi sinna ritstörfum betur. Mikil eftirsjá er sögð af Óskari, sérstak­lega þar sem hann hefur oft staðið með...
Pistill

Frosti Sigurjónsson

Vaxtalaus bindi­skylda getur dregið úr tapi Seðla­bankans

Brýnt er að draga nú þegar úr vaxtatapi Seðla­bankans af viðskiptum við bankana. Frá hruni hefur vaxta­tapið numið rúmlega 30 milljörðum og enn bætast við 800 milljónir á mánuði. Færa má rök fyrir því að hægt sé draga úr þessu tapi um helming með því að auka bindi­skyldu og hafa hana vaxta­lausa. Samkvæmt úttekt AGS beita 86 seðla­bankar vaxta­lausri bindi­skyldu....
Pistill

Bryndís Silja Pálmadóttir

Táragas í morguns­árið

Það rignir í palestínsku borginni Hebron sunnarlega á Vestur­bakkanum og regnið streymir niður bratta brekku í hverfinu Tel Rumeida. Palestínskir skóla­krakkar skoppa í pollum með misstórar skóla­töskur á heimleið. Hróp og köll á arabísku heyrast um allt hverfið og skyndi­lega þurfa börnin að víkja fyrir fólksbíl sem keyrir á 80 kílómetra hraða niður brekkuna, á meðan ökumaðurinn liggur á flautunni....
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Íslenska stjórnar­skráin byggði á stjórnar­skrá Monrad

Íslendingar hafa margir hverjir setið stjarfir yfir hinum epísku dönsku sjónvarps­þáttum 1864. Þættirnir hafa verið stórkost­lega umdeildir í Danmörku og leik­stjórinn Ole Bornedal verið ásakaður um að nýta sér þættina, sem eru þeir dýrustu í sögu dansks sjónvarps, til að reyna að endur­spegla pólitík nútímans með gagnrýnum hætti þar sem halli á sum pólitísk öfl frekar en önnur. Hin afar...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Þegar gera átti kröfu­höfum svívirðilegt tilboð

Í byrjun síðustu viku voru þær leiðir sem stjórn­völd hyggjast fara í hafta­losun kynntar fyrir samráðs­nefnd stjórn­mála­flokkanna um málefnið. Þær felast, í grófum dráttum, í því að ýta aflands­krónu­eigendum í löng ríkis­skuldabréf og setja háan útgöngu­skatt á alla sem vilja koma eignum sínum út úr höftunum. Frá því að fjármagns­höftin voru sett fyrir rúmum sex árum hafa ýmsar hugmyndir verið...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Vill Lögmanna­félagið styrkja sérstakan saksóknara?

Lögmanna­félag Íslands sendi frá sér ályktun 24. nóvember síðastliðinn þar sem það gerir þann tíma sem fjölmargir einstak­lingar hafa haft réttar­stöðu sakbornings í rann­sóknum embættis sérstaks saksóknara að umtals­efni, en margir hafa haft slíka stöðu í allt að fimm ár og þrjá mánuði. Ályktunin byggir á skriflegu svari dómsmála­ráðherra við fyrir­spurn Össurar Skarp­héðinssonar, þingmanns Samfylk­ing­ar­innar, um málið. Í henni segir...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Gott hjá Gunnari Braga!

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra upplýsti um það á Alþingi fyrr í dag, að í utan­ríkis­ráðuneyti Gunnars Braga Sveins­sonar væri nú hafin rannsókn á því hvort leyni­þjónusta Banda­ríkjanna, CIA, hefði mistnotað íslenska lofthelgi og flugvelli með nauðungar­flutningum á fólki til ólögregla yfirheyrslna og pyntinga. Í bakher­berginu er þessu fagnað sérstak­lega, enda með ólíkindum ef CIA var að nota íslenska flugvelli í...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Sigmundur og Davíð lögðu línuna varðandi RÚV

Átökin um RÚV hafa vart farið framhjá neinum. Afleiðing ákvörðunar ríkis­stjórnarinnar, verði hún að veruleika, mun nær örugglega þýða miklar breytingar á starfsemi RÚV, enda nemur fyrir­huguð lækkun útvarps­gjaldsins því að Rás 1 og Rás 2 verði báðar lagðar niður með öllu. Og niður­skurðurinn mun án nokkurs vafa leiða til mikilla breytinga á frétta­stofu RÚV með tilheyrandi uppsögnum og skertri...
Pistill

Kristinn Karl Brynjarsson

Heilbrigðis­kerfi á kross­götum

Verkfalls­aðgerðir lækna og staða heilbrigðis­kerfisins almennt, hljóta að leiða huga manna að því að ýmsu þarf að gæta að í heilbrigðis­kerfinu og breyta. Kostnaður við heilbrigðis­kerfið er mikill og mun bara aukast á komandi árum. Jafnvel þó að í næstu framtíð verði áfram­haldandi hallalaus rekstur ríkis­sjóðs ásamt niður­greiðslu skulda verði haldið áfram og að það skapi svigrúm til þess að...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Allt upp á borðið um fjár­festinga­leiðina?

Í vikunni var það boðað að fjár­festinga­leiðin svokallaða, þar sem útvaldir hafa getað keypt sér betri lífskjör á Íslandi með því að fá krónur á betra gengi en opinbert gengi Seðla­banka Íslands segir til um, sé brátt að líða undir lok. Fólk í bakher­berginu ætlar að skála í kampavíni þegar fjár­festinga­leiðin verður aflögð, enda hefur hún verið tær birtingar­mynd þeirrar...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Katrín með skarpa greiningu á snjó­hengjunni

Í bakher­berginu hefur fólk sem venju að tala helst um stjórn­málamenn sem eina heild, óháð flokkum. Það hjálpar til við að sjá stóru myndina þegar kemur að verkefnum stjórn­málamanna; á endanum skiptir það almenning ekki öllu máli í hvaða flokkum fólkið er sem tekur ákvarðanir. Ekki síst þess vegna hefur verið forvitnilegt og áhugavert að fylgjast með umræðu um hvernig...
Pistill

Aðalsteinn Hákonarson

Dómurinn í Fonsmálinu gjald­fellir ársreikninga

Til hvers eru ársreikn­ingar? Einhver myndi segja að megin­hlutverk þeirra væri að skapa traust í viðskiptum. Þeir eru upplýsinga­veita sem lýsir því sem kemur út úr drif­hjólum hagkerfisins betur en nokkuð annað og eru notaðir af ýmsum aðilum, t.d. lána­drottnum, fjár­festum og skatt­yfirvöldum. Með lögum og starfs­aðferðum sem mótast hafa á löngum tíma hafa verið í gildi býsna form­fastar viðmiðanir...

Mest lesið undanfarið ár