Pistill

Jónas Már Torfason

„Það má ekki segja neitt lengur“

Málfrelsi, eða öllu heldur tjáningar­frelsi, er rosalega mikilvægt. Sumt fólk skilur ekki hvað það er eða af hverju það er svona mikilvægt. Upplýsingar gera okkur kleift að taka betri og upplýstari ákvarðanir. Til þess að afla okkur eins mikilla upplýsinga og mögulegt er þarf nauðsyn­lega frelsi til þess að miðla þeim. Allar skoðanir, vondar eða slæmar, falla undir tjáningar­frelsi að...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dagsins: Útaf fyrir sig rétt hjá Hönnu Birnu - Þetta tókst ekki

Pæling dagsins er hluti af daglegum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í innlendum og erlendum fréttum. Í pælingu dagsins er athyglis­verðum hlutum velt upp. Hanna Birna Kristjáns­dóttir, fyrr­verandi innan­ríkis­ráðherra og vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins, hefur ekki mikið látið í sér heyra, frá því að niður­staða frumkvæðis­athugunar umboðs­manns Alþingis lá fyrir. Kannski er það eðlilegt, í ljósi þess að...
Pistill

Ólafur Páll Jónsson

Ekki við sama borð

Í kjölfar hins marg­háttaða klúðurs og skorts á fagmennsku í tengslum við ferða­þjónustu fatlaðs fólks nú í upphafi árs 2015 hafa sprottið upp miklar umræður. Þessi umræða hefur óþarflega mikið verið bundin rauna­sögum auk þess sem sjónar­hornið hefur verið of þröngt. Málið snýst ekki bara um tiltekna þjónustu fyrir afmarkaðan hóp heldur um réttlæti í samfélaginu. Ólafur Páll Jónsson. Ólafur...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Hefði Sigríður Björk gert eins og Stefán?

Stefán Eiríksson, fyrrum lögreglu­stjóri á höfuð­borgar­svæðinu, þurfti að þola fordæma­lausan þrýsting frá Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur, fyrrum innan­ríkis­ráðherra, vegna rann­sóknar lögreglu á leka­málinu. Þessar aðfarir eru stað­festar í áliti umboðs­manns Alþingis sem segir að Hanna Birna hafi farið langt út fyrir valdsvið sitt með þeim. Ráðherrann fyrr­verandi dró ástæður rann­sóknarinnar í efa, dylgjaði um nafn­greinda lögreglu­menn sem hún taldi drifna áfram...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Umboðs­maður almennings dró tjöldin frá

Fólkið í bakher­berginu er sammála um, að dagurinn í dag hafi verið sögulegur og atburða­rásin fordæma­laus. Ein mesta vonar­stjarna íslenskra stjórn­mála, sé horft aðeins nokkur ár aftur í tímann, Hanna Birna Kristjáns­dóttir, fyrr­verandi borgar­stjóri í Reykjavík og innan­ríkis­ráðherra, gerðist augljós­lega brotleg við laga­reglur þegar hún skipti sér af rannsókn lögreglu á leka­málinu þar sem ráðuneyti hennar og pólitískir aðstoðar­menn voru...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dagsins: Ríkið þjóðnýtir prent­fyrirtæki og alls konar

Pæling dagsins er hluti af daglegum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í innlendum og erlendum fréttum. Í pælingu dagsins er athyglis­verðum hlutum velt upp. Eitt undarlegasta fyrir­bærið á íslenskum samkeppnis­markaði er ríkis­fyrirtækið Íslands­póstur. Samkvæmt fréttum sem fram hafa komið, þá hefur samkeppnis­rekstur Íslands­pósts ekki staðið undir sér árum saman og er ríkis­einokunar­grunnur fyrir­tækisins notaður til þess...
Pistill

Ívar Ingimarsson

Náttúru­passi, eða eigum við að segja; pössum náttúruna?

Það er allt að verða brjálað vegna náttúru­passans og margir finna þessari hugmynd allt til foráttu og segja að allar aðrar hugmyndir séu betri. Þar eru helst nefnd til sögunnar komugjöld eða gistinátta­skattur, og aðrir eru á því að fjármála­ráðherra eigi einfald­lega að forgangs­raða betur þeim tekjum sem greinin skilar í ríkis­kassann í þágu nátt­úrunnar. Ívar Ingimarsson. Ívar Ingimarsson. Hagsmuna­aðilar...
Pistill

Sóley Kaldal

Þegar óttinn nær fótfestu

Þröngsýni er ekki afleiðing fáfræði. Bráðgáfað og vel upplýst fólk getur verið herfilega þröngsýnt – við sjáum það nánast daglega í fjöl­miðlum. Þröngsýni er afleiðing ótta og ótti er tilfinning. Ótta er hægt að skapa með upplýsingum, en hið óheppilega er að þegar óttinn er virkjaður í heilanum er andskotanum erfiðara að bægja honum frá með upplýsingum og stað­reyndum. Það...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Kostulegt rugl um virkjanir í Jökulsá á Fjöllum

Í gær bárust fréttir af því að virkjanir í Jökulsá á Fjöllum, ofan Dettifoss, væru á meðal 23ja nýrra virkjana­kosta á lista Orku­stofnunar sem var sendur verk­efnastjórn þriðja áfanga ramma­áætlunar. Þessi tíðindi eru með nokkrum ólíkindum, og gefa vísbendingu um að þeir sem liggi yfir virkjana­kostum í landinu víli ekkert fyrir sér. Eða þannig horfir málið við fólkinu í bakher­berginu....
Pistill

Indriði Þorláksson

Flækjur, jaðar­skattur og vinnuhvöt

Á Skatta­degi Deloitte ræddi fjármála­ráðherra um endur­skoðun á tekjuskatts­kerfinu og lætur að því liggja að fækkun skatt­þrepa (lesist afnám hátekju­þrepsins) sé nauðsynleg af þremur ástæðum helst; að einfalda kerfið, að lækka jaðarskatta og að hvetja menn til vinnu. Þessi rök standast ekki. En fyrst er rétt að spyrja hvort þörf sé á allherj­ar­skoðun tekjuskatts­kerfis einstaklinga. Í úttekt skatta­sérfræðinga AGS fyrir...
Pistill

Elfa Ýr Gylfadóttir

Penninn eða sverðið?: Hugleiðing um tjáningar­frelsið í kjölfar voða­verkanna í París

Yfir­lýsingin „Je suis Charlie“ eða „Ég er Charlie“ hefur hljómað í fjöl­miðlum og á öllum samskipta­miðlunum síðan ráðist var inn á ritstjórnar­skrifstofu Charlie Hebdo í París þann 7. janúar sl. og fjöldi blaða­manna drepinn. Þegar við lýsum því yfir að við séum Charlie er afar mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir því að við erum ekki með því að...
Pistill

Brynhildur Pétursdóttir

Stjórn­völd líti í eigin barm

Flestir eru sammála um að agi, ráðdeild og vönduð vinnu­brögð eigi að einkenna ríkis­fjármálin. Fjármála­ráðherra er á sama máli og hefur komið sjónar­miðum sínum um hinn mikilvæga aga vel á framfæri. Það sama má segja um formann og vara­formann fjár­laganefndar, auk fleiri stjórnar­liða. Oft finnst mér þessi áhersla þó meira í orði en á borði. Útgjalda­þróun á fjárlaga­liðnum „Ríkis­stjórn“ er...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Sigurjón Þ., Sigurður G., Valitor og Wikileaks

Wikileaks, sem lekur gögnum, hefur farið fram á að Valitor, útgefandi VISA á Íslandi, verði tekið til gjaldþrota­skipta vegna ógreiddrar skaða­bótakröfu. Sú er til komin vegna þess að Valitor lokaði greiðslu­gátt rekstrar­aðila Wikileaks í júlí 2011, en Hæstiréttur dæmdi þá lokun ólögmæta ráðstöfun í apríl 2013. Alls fer Wikileaks, og fyrir­tækið DataCell, sem átti að sjá um rekstur greiðslu­gáttarinnar, fram...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Nýr formaður bankaráðs - hver ætli það verði?

Vilhjálmur Egilsson. Ólöf Nordal, innan­ríkis­ráðherra, er enn formaður bankaráðs Seðla­banka Íslands, samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Seðla­bankans og einnig upplýsingum frá stjórn­sýslunni. Fyrir­sjáanlegt er að breytingar verði gerðar á banka­ráðinu á næstunni og nýr formaður taki við af hinum nýskipaða innan­ríkis­ráðherra. Í bakher­berginu heyrðist orðrómur um að Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst og fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífsins, verði næsti formaður...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergi: Þarna er Blaðamanna­félagið!

Í byrjun janúar var kallað eftir því úr bakher­berginu að Blaðamanna­félag Íslands myndi láta heyra í sér vegna þeirrar stöðu sem er uppi á íslenskum fjölmiðla­markaði. Gríðarleg ólga hefur verið þar vegna breytinga á DV og Árvakri, samdráttar og ætlaðra pólitískra hótana gagnvart RÚV og stans­lausra sviptinga á 365 miðlum, sem hafa meðal annars opinberast í því að ritstjóri hefur...

Mest lesið undanfarið ár