PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Vilja lífeyris­sjóðirnir tapa peningum?

Fólkið í bakher­berginu man vel eftir því, þegar rann­sóknarnefnd um starfsemi íslensku lífeyris­sjóðina og lagalegt umhverfi þeirra, skilaði skýrslu sinni og kynnti hana á fundi á Grand Hótel. Andrúms­loftið var rafmagnað. Síðan voru niður­stöðurnar kynntar. Þær komu ekki mikið á óvart. Ein niður­staðan, sem var óumdeild, var að lífeyris­sjóðirnir töpuðu meira en 250 milljörðum króna á fjár­festingum sem tengdust Exista...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dagsins: Þorri þjóðarinnar mun aldrei sættast við náttúru­passa

Pæling dagsins er hluti af daglegum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í innlendum og erlendum fréttum. Í pælingu dagsins er athyglis­verðum hlutum velt upp. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðnaðar- og viðskipta­ráðherra, mælti fyrir hinum umdeilda náttúru­passa á Alþingi í gær. Frum­varpið um náttúru­passann er eitt heitasta mál vorþingsins, og ljóst að hart verður tekist á um það...
Pistill

Þorvarður Tjörvi Ólafsson

Ábyrg og vönduð framkvæmd peninga­stefnu líklegust til árangurs

Á undan­förnum mánuðum hafa komið fram tillögur um breytingar á framkvæmd peninga­stefnu Seðla­banka Íslands (SÍ) sem felast í víðtækri notkun vaxta­lausrar bindi­skyldu í því skyni að auka arðgreiðslur í ríkissjóð. Hér verða færð rök fyrir því að vaxtalaus bindi­skylda sé óskilvirkt stjórn­tæki í peninga­málum, Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræðingur hjá Seðla­banka Íslands. Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræðingur hjá Seðla­banka Íslands. umfangs­mikil notkun...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dagsins: Af hverju er ekki farið að ráðleggingum umboðs­manns?

Ef frumvarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar forsætis­ráðherra nær fram að ganga verður samhæfingar­nefnd um siðferðileg viðmið fyrir stjórn­sýsluna lögð niður. Í staðinn fyrir nefndina stendur til að forsætis­ráðuneytið sjálft gefi stjórn­völdum ráð um túlkun siða­reglna, og þá bara þegar eftir því verður leitað. Siða­nefndina skipuðu sjö einstak­lingar, en Sigmundur Davíð hefur ekki skipað nýja fulltrúa í nefndina eftir að síðasta skipun...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Orku­stofnun á að hlusta á fólkið í bakher­berginu

Í bakher­berginu var það til umræðu á dögunum, að Orku­stofnun hefði sett Jökulsá á Fjöllum á meðal 23ja nýrra virkjana­kosta sem var sendur verk­efnastjórn þriðja áfanga rammaáætluna. Fólkið í bakher­berginu var sammála um að þessar hugmyndir Orku­stofnunar væru kostulegt rugl, meðal annars vegna þess að virkjana­kostirnir í Jökulsá á Fjöllum eru inn í þjóðgarði og að stór­brotin náttúra Jökulsár ætti...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Ætlar Elín sér vara­formanns­sætið?

Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, segist ekki telja ráðlegt að Hanna Birna Kristjáns­dóttir, fyrr­verandi innan­ríkis­ráðherra og vara­formaður flokksins, taki sæti á þingi að nýju. Þá Finnst Elínu að Hanna Birna eigi líka að láta af embætti sem vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins. Elín er eini þingmaður flokksins sem hefur talað með þessum hætti opinber­lega. Í frægri stöðu­uppfærslu sinni á Facebook, þar sem ofan­greint kom...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dagsins: Öll spjót standa á Sigríði Björk

Pæling dagsins er hluti af daglegum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í innlendum og erlendum fréttum. Í pælingu dagsins er athyglis­verðum hlutum velt upp. Tölvu­póstur sem Sigríður Björk Guðjóns­dóttir, þáverandi lögreglu­stjóri á Suðurnesjum, sendi Gísla Frey Valdórs­syni, þáverandi aðstoðar­manni Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur innan­ríkis­ráðherra, þann 20. nóvember 2013 sem innihélt greinar­gerð um hælis­leitandann Tony Omos, finnst hvorki...
Pistill

Elínborg Harpa Önundardóttir

Ópólitík - Ó, pólitík. Meðal­hátíðlegur pistill um lífið

Stundum, þegar ég hugsa um heiminn, fæ ég minni­máttarkennd. Suma daga virðist mér heimurinn sem ég lifi í ekki vera neitt annað en óskil­greindur blekkingar­vefur ofinn af tímanum og að mannlegar sálir hafi þar ekki annan tilgang en að svífa um í fullkomnu stefnu- og skilnings­leysi. Þá virðist mér heimurinn í dag hvorki skárri né verri en hann var fyrr...
Pistill

Þorsteinn Þorsteinsson og Jóhannes Karl Sveinsson

Hver græddi á endur­reisn viðskipta­bankanna?

Við skrifuðum grein í Morgun­blaðið sem birtist 27. janúar sl. og reyndum þar að skýra ýmis atriði í tengslum við endur­reisn íslensku viðskipta­bankanna. Við sögðum þar að við fögnuðum umræðu um málið og því langar okkur til að bæta við þær upplýsingar sem fram komu í nefndri grein, ef það mætti verða til að skýra frekar þá vinnu sem fram...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dagsins: Fylgi Framsóknar­flokksins í frjálsu falli

Pæling dagsins er hluti af daglegum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í innlendum og erlendum fréttum. Í pælingu dagsins er athyglis­verðum hlutum velt upp. Samkvæmt nýrri skoðana­könnun MMR á fylgi stjórn­mála­flokkanna virðist fylgi Framsóknar­flokksins vera í frjálsu falli. Fylgi flokksins mælist nú 9,4 prósent, en flokkurinn fékk 24,4 prósent atkvæða í síðustu Alþingis­kosningum sem fram fóru...
Pistill

Ketill Berg Magnússon

Ábyrgar upplýsingar eða grænþvottur

Það kallast „grænþvottur“ þegar fyrirtæki beitir blekkingum í markaðs- eða kynningar­starfi sínu til þess að sýnast vera umhverfis­vænni eða samfélags­lega ábyrgari en það raun­verulega er. Íslensk fyrirtæki hafa undan­farið í auknum mæli tekið upp hugmynda­fræði um samfélags­ábyrgð. Stundum vakna grun­semdir um að þetta eða hitt fyrir­tækið sé eingöngu að fegra ímynd sína með orðalagi um samfélags­ábyrgð, að fyrir­tækið sé ekki...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Bjarni með pólitísk ippon í máli Hönnu Birnu

Bjarni Benediktsson hefur sætt gagnrýni víða fyrir að neita að fordæma Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur, fyrrum innan­ríkis­ráðherra, í kjölfar álits umboðs­manns Alþingis um að hún hafi farið langt út fyrir valdsvið sitt í samskiptum við Stefán Eiríksson, fyrrum lögreglu­stjóra á höfuð­borgar­svæðinu. Bjarni hefur ítrekað lýst yfir stuðningi við Hönnu Birnu í gegnum allt lekamálið, þótt stuðningnum hafi oft fylgt yfir­lýsingar um...
Pistill

Jónas Már Torfason

„Það má ekki segja neitt lengur“

Málfrelsi, eða öllu heldur tjáningar­frelsi, er rosalega mikilvægt. Sumt fólk skilur ekki hvað það er eða af hverju það er svona mikilvægt. Upplýsingar gera okkur kleift að taka betri og upplýstari ákvarðanir. Til þess að afla okkur eins mikilla upplýsinga og mögulegt er þarf nauðsyn­lega frelsi til þess að miðla þeim. Allar skoðanir, vondar eða slæmar, falla undir tjáningar­frelsi að...

Mest lesið undanfarið ár