PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Hver er utan­ríkisstefna Íslendinga?

Það kemur ekki nokkrum manni á óvart að sitjandi ríkis­stjórn ætlar sér ekki að ganga í Evrópu­sambandið. Hún boðaði hins vegar fyrir um ári síðan nýja Evrópu­stefnu sem átti að byggja á „efldri hagsmuna­gæslu á vettvangi samningsins um hið Evrópska efnahags­svæði (EES) og annarra gildandi samninga Íslands og Evrópu­sambandsins (ESB)“. Á meðal þess sem átti að gera var að fjölga...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Gunnar Bragi Sveinsson og ódýru rétt­læt­ing­arnar

Þegar Davíð Oddsson, þáverandi forsætis­ráðherra, og Halldór Ásgrímsson, þáverandi utan­ríkis­ráðherra, ákváðu upp á sitt eindæmi að setja Ísland á „lista hinna staðföstu þjóða“ til stuðnings hernaðar­aðgerðum banda­manna í Írak á vordögum árið 2003, mætti ákvörðunin mikilli gagnrýni í samfélaginu og á hinu háa Alþingi. Ekki síst fyrir þær sakir að ákvörðunin skyldi ekki hafa verið borin undir utan­ríkismála­nefnd þingsins, og...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dagsins: Á hvaða vegferð er Ragn­heiður Elín Árna­dóttir?

Eins og flestum er í fersku minni kom Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðnaðar- og viðskipta­ráðherra, fram með illa undirbúið frumvarp um náttúru­passann sælla minninga, sem hvorki naut stuðnings stjórnar­þingmanna né ferða­þjónustunnar. Ólíklegt verður að teljast að frum­varpið nái fram að ganga miðað við andstöðuna sem það mætti, og er málið allt hið neyð­ar­leg­asta fyrir ráðherra ferðamála sem hefur gerst afturreka með...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Forsetinn talaði við þingmenn landsins „eins og þeir væru hálfvitar“

Sitjandi ríkis­stjórn ákvað að endur­vekja þing­veisluna, nokkurs konar árshátíð þingsins, eftir að hún tók við stjórnar­taumunum, en það er forseti Alþingis sem býður til veislunnar. Síðasta ríkis­stjórn hafði ákveðið að sleppa viðburðinum, sem þykir frekar formlegur og yfirstéttar­legur, þar sem henni þótti hann ekki viðeigandi í eftir-hruns-ástandinu. Veislan fór fram í Súlnasal Hótel Sögu síðastliðinn föstudag og varð heldur einkennileg...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dagsins: Er í lagi að skatt­greiðendur borgi fyrir spunann?

Eins og Kjarninn greindi fyrstur frá á dögunum, greiddi innan­ríkis­ráðuneytið rágjaf­ar­fyr­ir­tækinu Argus tæpar 2,4 milljónir króna fyrir fjölmiðla­ráðgjöf vegna Leka­málsins svokallaða á síðasta ári. Þá greiddi ráðuneytið lögmanns­stofunni LEX tæpa milljón króna fyrir lögfræði­ráðgjöf í tengslum við sama mál. Þá greindi Kjarninn sömuleiðis frá því að embætti lögreglu­stjórans á höfuð­borgar­svæðinu hafi greitt almanna­tengsla­fyrirtækinu KOM hátt í 900 þúsund krónur vegna...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dagsins: Stjórn­málamenn tala léttúðlega um valdarán

Ásakanir um valdarán ganga nú á víxl milli stjórn og stjórnar­andstöðu. Stjórnar­andstaðan vill meina að sú aðgerð ríkis­stjórnarinnar að senda Gunnar Braga Sveinsson utan­ríkis­ráðherra til Slóvakíu á fimmtudag til að slíta viðræðum við Evrópu­sambandið formlega, án þess að bera það undir þing eða utan­ríkismála­nefnd, sé valdarán. Auk þess hafi báðir stjórnar­flokkarnir, og forystu­menn þeirra, lofað kjósendum að framhald Evrópu­sambands­umsóknarinnar myndi...
Pistill

Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur

Ályktanir Alþingis binda utan­ríkis­ráðherra

Þegar Gunnar Bragi Sveinsson tók við embætti utan­ríkis­ráðherra leið ekki á löngu áður en hann skrifaði utan­ríkismála­nefnd Alþingis bréf og lýsti því yfir að hann teldi sig ekki bundinn af ályktun Alþingis um aðildar­umsókn að Evrópu­sambandinu. Þessi nýi skilningur á gildi ályktana Alþingis um utan­ríkismál var óvæntur og átti sér vart fordæmi, hvorki í sögu embættis utan­ríkis­ráðherra frá 1940 og...

Mest lesið undanfarið ár