PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Það fyrir­sjáanlegasta af öllu fyrir­sjáanlegu

Grein­endur eru nú farnir að sjá, það sem blasti við að gæti gerst, eftir að íslensk stjórn­völd ákváðu að fara út í fordæma­lausar aðgerðir til þess að lækka húsnæðis­skuldir sumra Íslendinga um samtals 80 milljarða króna. Það sem nú er byrjað gerast er það, að peningarnir úr ríkis­sjóði eru farnir að kynda undir hækkun fasteigna­verðs, sem síðan fer út í...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Greiðslur bárust seint í ríkis­kassann fyrir Sements­verksmiðjuna

Það komu fram áhuga­verðar upplýsingar á vef Alþingis í gær, þegar sjá mátti svar Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, við fyrir­spurn Svandísar Svavars­dóttur, um sölu á ríkis­eignum og innborgaðar greiðslur þeirra sem keyptu eignirnar. Eitt rak bréf­ritari augun í sem virðist við fyrstu sýn vera stór­undarlegt. Það er sala ríkisins á Sement­verksmiðju ríksins. Samþykkt var að selja hana árið 2003,...
Pistill

Ingvar Þór Björnsson og Inga Björk Bjarnadóttir

Vímuefna­löggjöf á villigötum

Á nýliðnum lands­fundi Samfylk­ing­ar­innar samþykktu fundar­meðlimir tillögu Ungra jafnaðar­manna um að horfst verði í augu við þá staðreynd að refsirammi vímu­löggjafarinnar sé of strangur og sé ekki til þess fallinn að hjálpa fólki sem stríðir við vímuefna­vanda. Þar af leiðandi ætti varsla neyslu­skammta fíkniefna ekki að vera refsiverð og auknu fjármagni að vera veitt í forvarnir og fræðslu í stað...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hvers vegna vilja stjórn­málamenn breyta lögunum?

Nú eru fram komnar tillögur um breytingar á lögum um Seðla­banka Íslands, sem fela meðal annars í sér miklar breytingar á æðstu stjórn bankans, með fjölgun seðla­bankastjóra í þrjá. Í skipaninni eins og hún er núna, þá er Már Guðmundsson seðla­bankastjóri, einn fimm nefndar­manna í peninga­stefnu­nefnd, sem ákvarðar vexti. Í fundar­gerðum nefndarinnar, sem birtar eru á vef Seðla­banka Íslands, hefur...
Kjaftæði

Lára Björg Björnsdóttir

Fimm týpur skal forðast í fermingar­veislum

Hvernig væri að fara aðeins yfir nokkra fjar­skylda ættingja, ættingja ættingja og vensla­fólk vina sem vert er að forðast í fermingar­veislum? Þessar uppákomur dreifast nefnilega yfir margra vikna tímabil, annað en jólaboðin sem þjappast á nokkra krefjandi daga og svo eru þau bara búin. Fermingarnar breiða aftur á móti úr sér eins og maura­herdeild í lautar­ferð, taka á eins og...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Stjórn­völd, til hvers er Íbúða­lánasjóður?

Fasteigna­verð er að rjúka upp þessa dagana, en hækkunin á íbúðum í fjölbýli á höfuð­borgar­svæðinu var 1,8 prósent í febrúar. Hækkunin var sambærileg í desember og janúar. Þetta mjög skörp hækkun, á einungis mánaðar­tímabili, og ef marka má nýjustu tölur frá Fasteigna­skrá þá er veltan að aukast og kaup­samningum að fjölga. Kjarninn tók saman athyglis­verðar tölur um íbúða­lánveitingar á dögunum,...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bakherbergið: Jæja, hvar á að byggja upp nýtt sjúkrahús?

Læknar fóru fyrir nokkrum mánuðum í verkfall, eins og landsmenn fundu beint fyrir með verri heilbrigðis­þjónustu. Eftir mikið karp náðust samningar við stjórn­völd þar um að laun lækna yrðu hækkuð, um meira en 20 prósent, auk þess sem vilyrði fyrir betra starfs­umhverfi, í víðu samhengi, voru gefin. Hluti af þessari umræðu er uppbygging nýs spítala, en árum saman hefur nú...
Pistill

Líf Magneudóttir

Sólmyrkvi og skítkast

Þeir sem fylgjast með breskum fjöl­miðlum eru alvanir fréttum, oft með miklum ólíkindablæ, af skólum sem banna hitt og þetta hver­dagslega fyrir­bærið í nafni pólitísks rétt­trúnaðar eða fjöl­menningar­stefnu á villigötum. Í sumum tilvikum byggja fréttir þessar á raun­verulegum dæmum, en oftar en ekki er bara hálf sagan sönn eða að um hreinar flökku­sagnir er að ræða. Ástæða þess að fréttir...

Mest lesið undanfarið ár