PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Þegar pissið í skónum þornar þá étur Leið­réttingin sjálfa sig

Á þriðjudag birtist forsíðu­frétt á Frétta­blaðinu þar sem sagt var að verð­tryggð húsnæðislán, sem eru rétt um 1.200 milljarðar króna, myndi hækka mikið vegna verðbólgu sem kjara­samningar gætu leyst úr læðingi. Þar var rætt við Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, sem sagði að verðbólga muni éta upp skulda­niðurfærslu ríkis­stjórnarinnar. Í fréttinni var haft eftir Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Af hverju var ekki bara hægt að hugsa flutning Fiskistofu til enda?

Sigurður Ingi Jóhannsson hefur nú nánast algjör­lega og endanlega verið gerður afturrækur með áform sín um flutning Fiskistofu til Akureyrar. Í gærkvöldi viðurkenndi hann mistökin, sagði að margt hefði verið hægt að gera betur og að hann sé ekki yfir það hafinn að læra af verkum sínum. Það er ágætt hjá ráðherra að viðurkenna þetta loksins, en áður var hann...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Verð­tryggingin: Nei eða já, af eða á?

Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra, segir að ekki sé unnið að afnámi verð­tryggingar í fjármála­ráðuneytinu. Þar er hins vegar til skoðunar að lengja lágmarks­tíma verð­tryggðra lána og stytta hámarks­tíma þeirra. Frétta­blaðið greindi frá þessu í gær, en daginn áður hafði blaðið eftir Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni, forsætis­ráðherra, að vinna fjármála­ráðuneytis við afnám verð­tryggingar gangi vel. Jæja, þetta er svo sem ekki í fyrsta...
Pistill

Einar Tönsberg

Iðnaðar­fjörður í boði Reykja­víkur

Mikil vinna hefur verið lögð í nýtt skipulag fyrir höfuð­borgar­svæðið er ber yfir­skriftina Höfuð­borgar­svæðið 2040. Sjö sveitar­félög mynda höfuð­borgar­svæðið samkvæmt skipulaginu og er eitt þeirra Kjósar­hreppur. Lykil­atriði í stefnunni er að vöxtur svæðisins verði hagkvæmur og ekki verði gengið á umhverfis­gæði þeirra sem þar búa fyrir. Í skýrslunni er talað um að gera umhverfið þannig úr garði að það auki...
Pistill

Friðrik Eysteinsson

Hvaða verkefni bíða nýs rektors Háskóla Íslands?

Jón Atli Benediktsson, aðstoðar­rektor í Háskóla Íslands, hlaut tilnefningu til embættis rektors skólans þann 20. apríl sl. Það var helst talið Jóni Atla til tekna að hann hefði mikla stjórnunar­reynslu innan úr Háskóla Íslands. Aftur á móti var talið Guðrúnu Nordal, mótfram­bjóð­anda hans, til tekna að hún hefði hana ekki. Hvorugt hafði þó þekkingu á né reynslu af stjórnun deildar,...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ragn­heiður Elín og dómgreindar­skorturinn

Jæja, þá liggur það fyrir. Frumvarp Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, ráðherra ferðamála, um náttúru­passann svokallaða verður ekki að lögum á yfir­standandi þingi. Það þýðir að nú mun enn eitt sumarið líða án samhæfðar gjaldtöku af ferða­mönnum, til að standa straum af uppbyggingu og varð­veislu náttúru Íslands og helstu ferðamanna­staða, sem margir liggja nú þegar undir alvarlegum skemmdum. Það er leitandi að...
Pistill

Jóhann Helgi Stefánsson

Topp 5: Bestu umhverfis­hlaðvörpin

Hlaðvarp (e. podcast) ætti, eitt og sér, að vera eina ástæðan fyrir því að eiga snjall­síma. Íslendingar virðast vera búnir að uppgötva þennan frábæra miðil, til að mynda hafa frétta­síður landsins tekið upp á því að búa til skemmtilega hlaðvarps­þætti. Hlaðvarp er frábær miðill til þess að nálgast skemmtilegt og ekki síst fræðandi efni um það sem þú hefur áhuga...
Pistill

Ragnar Þór Pétursson

Hinn hýri Hafnar­fjörður

Ungir jafnaðar­menn í Hafnar­firði standa á bak við þá tillögu í bæjar­stjórn að stórauka fræðslu um samkyn­hneigð í skóla­starfinu. Það er alltaf ánægjulegt að sjá unga stjórn­málamenn taka prinsipp­afstöðu með mann­réttindum. Í frétta­tilkynningu frá Samfylk­ing­unni mátti skilja að tillagan hefði verið samþykkt og að hún fæli m.a. í sér að nemendur hefðu brátt aðgang að fulltrúum frá Samtökunum 78 í...

Mest lesið undanfarið ár