PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Illugi skautar framhjá aðal­atriðum Orku-málsins

Illugi Gunnarsson mennta- og menningar­mála­ráðherra hefur skýrt frá því að Haukur Harðarson, stjórnar­formaður Orku Energy, hafi keypt íbúð Illuga af honum vegna fjárhags­vandræða. Illugi og kona hans leigja íbúðina svo af Hauki. Hann hefur ekki enn útskýrt hvers vegna hann sagði ekki frá þessu fyrr. Til dæmis í þau fjölmörgu skipti sem hann var spurður um tengsl sín við Orku...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Skilur Jón Ásgeir ekki niður­stöðu Hæstaréttar í Aurum-málinu?

Jón Ásgeir Jóhannesson skrifar reglulega greinar í Frétta­blaðið, sem hann átti einu sinni en er nú í eigu eiginkonu hans. Grein­arnar snúast vanalega um ofsóknir sem hann hefur orðið fyrir að ósekju. Slíkar má lesa hér, hér, hér, hér og hér. Eina undan­tekningin frá þessu leiðar­stefi var mýkri grein sem Jón Ásgeir skrifaði nokkrum dögum eftir að skýrsla Rann­sóknar­nefndar Alþingis...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hanna Birna snýr aftur á þing rúin trausti

Hanna Birna Kristjáns­dóttir, vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins og fyrr­verandi innan­ríkis­ráðherra, hefur boðað endurkomu sína á Alþingi í dag. Hún hefur verið í leyfi frá þing­störfum frá því í nóvember, eða eftir að hún hrökklaðist úr ráðherra­stóli eftir að aðstoðar­maður hennar, Gísli Freyr Valdórsson, hlaut skilorðs­bundin fangelsisdóm í Héraðs­dómi Reykja­víkur fyrir að leka trúnaðar­upplýsingum um hælis­leitanda úr innan­ríkis­ráðuneytinu til fjölmiðla. Í áliti umboðs­manns...
Pistill

Keneva Kunz

Kæri lífeyris­sjóður

Það fer að styttast í það, segja ráðamenn þjóðarinnar, að íslenskir lífeyris­sjóðir fái að fjárfesta aftur í útlöndum. Með því geta þeir aukið fjöl­breytni eigna­safna sinna og þá vonandi öryggi ávöxtunar og tryggt góðar greiðslur til lífeyrisþega. Það er því ástæða til að fagna þessum tækifærum. En hvað vita flestir lífeyris­þegar um þær fjár­festingar sem sjóðirnir leggja framlög þeirra í?...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ævintýrið um þing­manninn sem skildi ekki vanhæfi sitt

Einu sinni var fram­bjóðandi sem var kosinn á þing fyrir Framsóknar­flokkinn. Eftir að hafa tekið sæti á þingi fékk þing­maðurinn þar að auki sæti í atvinnu­veganefnd Alþingis, enda hokinn af reynslu eftir að hafa kynnst sjávar­útveginum af eigin raun. Bæði sem stofnandi, eigandi og stjórn­andi síns eigins útgerðar­félags, og sömuleiðis sem meðeigandi í stóru og rótgrónu sjávar­útvegs­fyrirtæki í eigu fjöl­skyldu...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hinn mjög svo hræddi og fordóma­fulli Gylfi Ægis

Tónlistar­maðurinn Gylfi Ægisson hefur með ummælum sínum í vikunni, um tillögu innan bæjar­stjórnar Hafnar­fjarðar að efla hinsegin fræðslu í skólum bæjarins, opinberað sig sem einn af fordóma­fyllstu og hættulegustu mönnum landsins. Gylfi hefur ötullega kynnt fordóma­bálið og heiftina með bensín­brúsa í annarri og eldspýtu­stokk í hinni, meðvitundar­laus um hvers konar haturs­boðskap hann boðar, og hvaða hræðilegu afleiðingar hann geti haft...
Pistill

Önundur Páll Ragnarsson

Betra peninga­kerfi? - Athuga­semdir við skýrslu Frosta Sigurjóns­sonar

Nýverið kom út skýrsla Frosta Sigurjóns­sonar alþingis­manns um banka- og peninga­kerfið. Frosti vill grennslast fyrir um grundvallar­atriði í stofnana­gerð samfélagsins. Slík grundvallar­nálgun mætti að ósekju vera algengari í stjórn­málunum, enda tekur Frosti fram að skýrslan sé aðeins innlegg í umræðuna. Ásetningur Frosta er góður, en ég er ósammála efni og niður­stöðum skýrslunnar í stórum dráttum.Notendur peninga ráða ferðinni Einn helsti...
Pistill

Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir

Við eigum öll að berjast fyrir mann­réttindum

Það er ekki mikið leyndarmál að ég er mikill jafnréttis­sinni og ákveðin manneskja í því er kemur að því að berjast fyrir réttindum minnihluta­hópa. Enda hefur það einhvern veginn alltaf verið eðlilegt fyrir mér. Ef ég á að vera hrein­skilin finnst mér erfitt að skilja hvernig það er ekki eðlilegt en nýleg umræða hefur svo sannarlega gert mér grein fyrir...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Þegar pissið í skónum þornar þá étur Leið­réttingin sjálfa sig

Á þriðjudag birtist forsíðu­frétt á Frétta­blaðinu þar sem sagt var að verð­tryggð húsnæðislán, sem eru rétt um 1.200 milljarðar króna, myndi hækka mikið vegna verðbólgu sem kjara­samningar gætu leyst úr læðingi. Þar var rætt við Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, sem sagði að verðbólga muni éta upp skulda­niðurfærslu ríkis­stjórnarinnar. Í fréttinni var haft eftir Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni...

Mest lesið undanfarið ár