PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Er fjór­flokkurinn kominn í útrýmingar­hættu?

Píratar mælast nú lang­stærsti stjórn­málaflokkur landsins. Flokkurinn mælist með ríflega 30 prósenta fylgi, á meðan nær allir aðrir flokkar á þingi tapa fylgi, og hefur sexfaldað fylgi sitt frá því að talið var upp úr kössunum í síðustu Alþingis­kosningum. Fylgis­aukning Pírata er með miklum ólíkindum, eða hvað? Fylgistap ríkis­stjórnarinnar er auðskilið enda lengist tossa­listi hennar nánast dag frá degi. Hvert...
Pistill

Þórarinn Snorri Sigurgeirsson

Ríkrastjórn

Í gær var 1. maí. Sem maður á þrítugsaldri tilheyri ég líklegast þeirri ungu kynslóð launa­fólks sem finnast 1. maí fundarhöld rosalega 1932 eitthvað. Eins og þetta tilheyri tíma Sósíalista­flokksins og Gúttó­slagsins og álíka viðburða sem maður lærði um í samfélags­fræði í 10. bekk. Hvaða erindi á svona verkalýðs­baráttu­dagur við nútímann? En þegar maður hugsar um tilefnin, ástæðurnar fyrir því...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Ef forseti Íslands er samkvæmur sjálfum sér fer makríl­frumvarpið í þjóðar­atkvæða­greiðslu

Á annan tug þúsund manns hafa þegar skrifað undir áskorun til forsetans á síðunni þjóðar­eign.is þar sem hann er hvattur til að vísa frumvarpi um úthlutun makríl­kvótans til þjóðar­atkvæðis. Að baki söfnuninni stendur alls kyns þungavigtar­fólk: Jóns Steinsson hagfræðingur, Jón Sigurðsson, fyrrum formaður Framsóknar­flokksins, Guðrún Péturs­dóttir, fyrrum forseta­fram­bjóðandi, Þorkell Helgason, fyrr­verandi prófessor, Elín Björg Ragnars­dóttir, fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Samtaka fisk­fram­leiðenda og...
Pistill

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson

Opið bréf til Páls Jóhanns Pálssonar þingmanns

Kæri Páll. Ég hef lengi verið hugsi yfir orðum þínum sem þú lést falla sumarið 2013 á Alþingi, þá nýkominn á þing fyrir Framsóknar­flokkinn: ,,Varðandi mig og hagsmuna­tengslin, ég hef bara talið mig vera fulltrúa útgerð­ar­innar hérna og hef ekkert farið leynt með það.“ Þó margt megi segja um störf Alþingis er þetta að mínu mati algerlega andstætt þeirri hugsun...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Lán Kaupþings til bréf­berans Egils Ágústs­sonar sann­kallað Kaupthinking

Nú stendur yfir aðal­meðferð í stóra markaðs­misnotkunar­máli Kaupþings. Þar er meðal annars tekist á um hvort það sé ólöglegt að lána eignar­lausum félögum milljarða króna til að kaupa hlutabréf í banka sem enginn annar vildi kaupa einungis með veði í bréfunum. Þannig bar bankinn sjálfur alla áhættu af viðskiptinum en þeir einstak­lingar sem fengnir voru til að eiga félögin sem...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Þingmaður gerir sér grein fyrir vanda ungs fólks á húsnæðis­markaði

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, telur að íslenska ríkið hafi með handafli hækkað fasteigna­verð, meðal annars í gegnum Íbúða­lánasjóð og Lands­bankann. Þetta kom fram í máli hans á Alþingi á miðvikudag. Hann segir mikinn vanda vera á fasteigna­markaði, einum hjá ungu fólki sem geti ekki keypt fasteign, og að stjórn­málamenn þurfi að axla ábyrgð ábyrgð á þessu með einhverjum hætti....
Pistill

Árni Páll Árnason

Verkalýðs­hreyfing og félagslegt lýðræði

Í dag fögnum við alþjóð­legum baráttu­degi verka­lýðsins í skugga meiri átaka á vinnu­markaði en dæmi eru um hér á landi í áratugi. Við þessar aðstæður er áhugi á verkalýðs­baráttu meiri en ég man eftir í langan tíma. Almennt launafólk finnur á eigin skinni afleiðingar gengis­falls krónunnar og þjóðin er ekki tilbúin að lifa í friði með sveiflu­kenndum gjald­miðli. Um það...
Pistill

Elliði Vignisson

Maður orða sinna

Á seinustu dögum hafa fjöl­miðlar réttilega hælt Sigurði Inga Jóhanns­syni og hossað honum fyrir viðbrögð hans við niður­stöðu umboðs­manns Alþingis hvað varðar hið svokallaða Fiski­stofumál. (Sjá hér). Umboðs­maður Alþingis taldi sem sagt að rangt hafi verið að málum staðið og vinnu­brögð ekki í samræmi við vandaða stjórnsýslu­hætti. Ráðherrann gekkst auðmjúkur við því og viðurkenndi mistök. Í viðtali við RÚV sagði...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Marg­víslegar krísur hjá formönnum flokkanna

Niður­stöður könnunar MMR á persónu­eiginleikum stjórnmála­leiðtoga á Íslandi hljóta að vera mörgum þeirra umhugsunar- og áhyggju­efni. Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson koma vægast sagt illa út úr könnuninni. Að eingöngu fimm prósent aðspurðra telji þá í tengslum við almenning, og um 10 prósent að þeir standi vörð um hagsmuni almennings, bara hlýtur að vera þeim umhugsunar­efni - svona þar sem...
Pistill

Magnús Karl Magnússon MD

Það var nefnilega vitlaust gefið

Rann­sóknir og þróun eru drif­kraftur efnahags­framfara í nútíma­samfélagi. Án þeirra getur nýsköpun ekki orðið að veruleika. Margir þeirra sem lifa og hrærast í samfélagi vísinda og nýsköpunar hafa bent á mikilvægi þess að stórauka fjár­festingu í nýsköpun, en hafa talað fyrir daufum eyrum. Á það hefur verið bent að síðastliðinn áratug hafi miklum fjármunum verið varið til nýsköpunar og hafa...
Pistill

Guðrún Nordal

Lykil­tölur fyrir fram­tíðina

Margoft hefur verið á það bent að tölfræði um rann­sóknir og þróun hér landi væri ábótavant. Nú síðast í ERAC-úttektinni á íslensku vísinda- og nýsköpunar­kerfi sem birt var á síðasta hausti. Þar var bent á að megin­veikleiki stefnu­mótunar hér á landi væri skortur á greiningu og árangurs­mælingum („evidence“). Í núverandi stefnu hefur Vísinda- og tækniráð því lagt höfuð­áherslu á að...

Mest lesið undanfarið ár