Pistill

Hallgrímur Jónasson

Útgjöld til rannsókna og þróunar 2011 og 2013

Þann 22. apríl s.l. birti Hagstofa Íslands niður­stöðu sína varðandi útgjöld til rannsókna og þróunar (R&Þ) fyrir árið 2013. Niður­staða Hagstofunnar er að heildar­útgjöld til R&Þ árið 2013 hafi numið 35.398 milljónum og jafn­gildir það 1,88% af lands­framleiðslu Íslands það ár. Rannís hefur undan­farna áratugi annast þessa upplýsinga­söfnun, eins og kveðið er á um í 12. gr. laga nr. 3/2003,...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Af hverju hefur áhorf á Ísland í dag hrunið?

Ísland í dag, magasín­þáttur Stöðvar 2, var „léttur“ snemma árs 2009. Árin á undan hafði þátturinn verið með þunga frétta­tengda áherslu.Tilgangur breytinganna var að fjalla um mannlegri málefni, m.a. með áherslu á hressar umfjallanir um þekkta einstaklinga og lífs­reynslu­sögur Íslendinga sem höfðu gengið í gegnum erfiða tíma, til dæmis vegna veikinda. Þessi breyting skilaði mun meira áhorfi en áður hafði...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Bíddu, bíddu...hver er búinn að vera kynda verðbólgu­bálið?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætis­ráðherra, stendur í ströngu þessa dagana vegna deilnanna á vinnu­markaði. Engin lausn er í sjónmáli, og verkfalls­aðgerðir þegar í gangi og víðtækustu verkföll í áratugi eru handan við hornið. Sigmundur Davíð segir stjórn­völd ekki ætla að setja eldivið á verðbólgu­bálið, og má segja honum það til hróss að þetta er auðvitað gott innlegg. Innistæðu­lausir samningar, sem eyða...
Pistill

Jón Kalman Stefánsson

Tími Katrínar Jakobs­dóttur er runninn upp – hvort sem henni líkar betur eða verr

Öldruð frænka mín, staðföst vinstri­manneskja til 60 ára, fullyrðir að Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, sé guðfaðir sitjandi ríkis­stjórnar. Er það ekki heldur ósann­gjörn full­yrðing; að sú ríkis­stjórn sem virðist hafa sett misskiptingu og ósætti á oddinn, sitji í skjóli Ögmundur sem ötullega berst fyrir þeim sem minna mega sín?Ögmundar-syndromið? Fyrsta málið sem sitjandi ríkis­stjórn lagði fram var frumvarp um...
Pistill

Þórður Snær Júlíusson

Múgæsingur og ofsóknir, eða er kerfið kannski að virka?

„Misnotkun á valdi er misþyrming á lýðræðinu og einhver alvarlegasta birtingar­mynd spillingar. Íslenskar rann­sóknar- og eftirlits­stofnanir misstu stjórn á sér á eftir­hrunsárunum. Réttindum fólks var vikið til hliðar og margir embættis­menn stærðu sig af mála­fjölda við ákaft lófatak blogg­heimafólks, fjölmiðla og stjórn­valda“. Svona hefst eftirmáli bókar Eggerts Skúla­sonar, Andersen skjölin- rann­sóknir eða ofsóknir?. Í raun má segja að þessi málsgrein...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Raun­veruleikinn bankar á dyrnar hjá stjórnar­herrunum

Nú er staðan þannig, að sumt krabbameins­sjúkt fólk fær ekki þá þjónustu sem það hefur fengið til þessa, vegna kjara­deilna sérfræði­menntaðs fólks sem starfar á vegum ríkisins í heilbrigðis­kerfinu. Það er varla hægt að færa það í orð, hversu alvarlegt það er, en sjúklingar hafa að undan­förnu verið að skrifa greinar í blöðin vegna þessarar stöðu og minna á alvöru...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

„Einhvern veginn allir á móti“ makríl­frumvarpi - og hvað þá?

Nú hafa rúmlega 28 þúsund manns skrifað undir áskorun til forseta Íslands um að hann vísi í þjóðar­atkvæða­greiðslu öllum þeim lögum sem Alþingi samþykkir þar sem fiskveiði­auðlindum er ráðstafað til lengri tíma en eins árs. Kveikjan að undir­skrifta­söfnuninni er frumvarp sjávar­útvegs­ráðherra um úthlutun makríl­kvóta. Búið er að ræða frum­varpið í fyrstu umræðu á Alþingi, en mjög skiptar skoðanir eru um...
Pistill

Indriði H. Þorláksson

Kakan og kjörin

Umræða um kjaramál litast af alhæfingar­áráttu. Kollegar mínir, hagfræðingar, eru ekki allir með hreinan skjöld í þeim efnum. Þeir eru oft látnir bera vitni og aðrir apa eftir þeim eða byggja á því sem þeir segja full­yrðingar sem eru í besta falli hálf­sannleikur. Launa­hækkanir leiða til verðbólgu, laun geta ekki hækkað umfram fram­leiðni, verðbólga hækkar greiðslu­byrði lána o.fl. eru dæmi...
Pistill

Sigurvin Bárður Sigurjónsson

Þjóð­peninga­kerfi – Hvað breytist og hvað ekki?

Nokkuð hefur verið rætt og ritað um þjóð­peninga­kerfi í kjölfar birtingar skýrslu Frosta Sigurjóns­sonar til forsætis­ráðuneytisins um umbætur í peninga­málum. Þó sambærilegar hugmyndir og þær sem nú eru settar fram af Frosta og Betra peninga­kerfi hafi verið til umfjöllunar fyrir nokkrum áratugum er hér um nýja útfærslu að ræða. Með eftir­farandi innleggi vil ég freista þess að skerpa á aðal­atriðum...

Mest lesið undanfarið ár