PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Eigum við kannski skaða­bótakröfu á bankana?

Í fyrradag bárust fréttir af því að breska fjármála­eftirlitið hefði lagt hæstu sekt í sögu stofn­un­ar­innar á breska Barclays bankann, fyrir að misnota milli­bankavexti en lögbrotin náðu hámarki árið 2008. Fjármála­eftirlitið í Bretlandi lagði 284 milljóna sterl­ingspunda sekt á bankann, en samtals þarf Barclays að greiða hinum ýmsu eftirlits­aðilum og stofnunum í Bretlandi og Banda­ríkjunum 1,5 milljarða sterl­ingspunda vegna fjármála­glæpa...
Pistill

Steingrímur J. Sigfússon

Ramma­áætlun, ferða­þjónustan og framtíðin! - seinni hluti

Í fyrri grein hér í Kjarnanum gerði undir­ritaður grófan þjóð­hagslegan samanburð á þremur megin­stoðum gjaldeyris­öflunar þjóðar­búsins. Sá saman­burður leiddi í ljós að ætla má að ferða­þjónustan muni skilja eftir hreinar gjaldeyris­tekjur í hagkerfi landsins uppá 280 milljarða króna á þessu ári. Næst kemur sjávar­útvegurinn með um 225 milljarða og í þriðja sæti og miklum mun aftar á merinni kemur stóriðjan...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Þarf verkalýðs­forystan kannski að fara að hlusta á varnaðar­orðin?

Nær fordæma­laus staða er nú uppi í kjara­deilum á Íslandi, þar sem nánast allar kjara­viðræður hafa siglt í einni halarófu beint í strand. Eftir umtals­verðar launa­hækkanir til framhalds­skóla­kennara og lækna, og þá ekki síst þeirra síðarnefndu, krefjast nú fleiri hópar í samfélaginu skiljanlega að þeir fái líka stærri sneið af þjóðar­kökunni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætis­ráðherra, var svo ekki beinlínis að...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Nei, í alvörunni Simmi?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætis­ráðherra, segir umdeildar breytingar á ramma­áætlun, sem hafa sett Alþingi á hliðina og gert þingið nánast óstarfhæft, tengjast stöðunni á vinnu­markaði. Í sjónvarps­fréttum RÚV klukkan tíu í fyrra­kvöld sagði Sigmundur Davíð: „Tengist henni vegna þess að til að hægt sé að verða við verulegum kröfum um launa­hækkanir og væntingum um áfram­haldandi kaupmáttar­aukningu þurfum við að halda áfram...
Pistill

Skúli Mogensen

Silicor Materials og nýju föt keisarans

Þar sem náttúru­verndar­rökin virðast því miður ekki duga á alla skulum við staldra við og kanna nánar Silicor Materials sem samstarfs­aðila út frá markaðs­lögmálunum. Silicor Materials hefur farið stórum orðum um mikla uppbyggingu á risa­verksmiðju í Hval­firðinum. Þeir segjast ætla að fjárfesta fyrir tugi milljarða og skapa hundruði starfa, lofa nýrri tækni sem á ekkert að menga og vera einstök...
Pistill

Vala Jónsdóttir og Katrín Rún Jóhannsdóttir

Yfir­vofandi nýliðunar­vandi: Meðal­aldur lífeinda­fræðinga 55 ár

Á Land­spítala starfa 162 lífeinda­fræðingar. Helmingur þeirra er 58 ára eða eldri og fjórðungur verður 64 ára eða eldri á þessu ári. Á næstu árum þarf Land­spítali því að ráða þónokkurn fjölda lífeinda­fræðinga. Í ár útskrifast 11 nemendur með BS gráðu í lífeinda­fræði frá Háskóla Íslands. Til að fá starfs­réttindi þarf auk BS gráðunnar að taka eitt ár í diplóma­námi...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Barðist árum saman gegn óeðlilegri samkeppni en tekur við Mjólkur­samsölunni

Það vakti töluverða athygli þegar Ari Edwald, fyrrum forstjóri 365, var ráðinn nýr forstjóri Mjólkur­samsölunnar fyrir skemmstu. Með því heldur stjórn Mjólkur­samsölunnar reyndar í þann vana að ráða fyrrum forstjóra fjölmiðla­fyrirtækja í forstjóra­stólinn, en Einar Sigurðsson, fráfar­andi forstjóri, stýrði Árvakri áður en hann færði sig yfir í mjólkina. Það sem gerir ráðningu Ara áhuga­verða er líka sú staðreynd að hann...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hvaða stóru mál bíða á hliðar­línunni eftir að málþófinu ljúki?

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, er sann­færður sem aldrei fyrr um að nú sé mál málanna að breyta þing­sköpum til að koma í veg fyrir málþóf á Alþingi. Svo gagn­tekinn er Bjarni af hugmyndinni að hann hefur nánast við hvert tækifæri ítrekað mikilvægi þess að draga tennurnar úr stjórnar­andstöðunni á þinginu til að „gera starf þingsins skilvirkara og auka afköst,“...
Pistill

Önundur Páll Ragnarsson

Bjarga bókhalds­brellur heiminum? Enn af þjóð­peninga­kerfinu

Ríkis­útgjöld eru í mörgum tilfellum bæði réttlát og velferðar­aukandi. En þau eru ekki ókeypis. Ein mesta framför sem orðið hefur í stjórnmála­hugsun er viður­kenn­ingin á þessu. Einhver þarf að borga fyrir þjónustu ríkisins á endanum. Víðast hvar hefur stjórnmála­fólki, bæði til hægri og vinstri, tekist að sameinast um þennan skilning. Í dag snúast stjórn­málin um það hvaða ríkis­útgjöld séu réttlætanleg...
Pistill

Magnús Júlíusson

Það er skamm­góður vermir...

Útlit er fyrir að húsnæðis­málin blandist inn í kjara­baráttuna sem nú gengur yfir eins og sterk norðanátt með tilheyrandi kulda og látum. Flest verkalýðs­félög hafa mótað sér stefnu í húsnæðis­málum og inntak þeirra er nokkuð svipað. ASÍ kallar eftir öruggu og góðu húsnæði á viðráð­an­legum kjörum enda sé það grundvallar­þáttur í velferð launa­fólks. Starfs­greina­sambandið lýsir yfir þungum áhyggjum af húsnæðis­markaðnum...
Pistill

Steingrímur J. Sigfússon

Ramma­áætlun, ferða­þjónusta og framtíðin!

Í umræðum um hina forkast­an­legu breytinga­tillögu meirihluta atvinnumála­nefndar (Jón Gunnarsson og Co) við tillögu umhverfis­ráðherra um Ramma­áætlun hefur afhjúpast að hjá sumum hefur klukkan staðið kyrr í 30 til 40 ár. Gamla dólga-stóriðju­stefnan lifir enn góðu lífi í hugum sumra stjórn­málamanna og jafnvel heilla flokka. Í þágu hennar á að henda á haugana allri viðleitni til að sætta sjónarmið nýtingar...

Mest lesið undanfarið ár