PistillPæling dagsins

Magnús Halldórsson

Sögulegt skref - Líf fólks breytist til hins betra

Sögulegt skref var stigið í gær í mann­réttinda­baráttu þegar Hæstiréttur Banda­ríkjanna úrskurðaði um rétt samkyn­hneigðra til að giftast. Þetta skiptir ekki aðeins máli fyrir mann­réttindi í Banda­ríkjunum heldur um heim allan. Pæling dagsins að þessu sinni snýr að þessum merka atburði. Áttum við okkur á því hvað þetta þýðir? Fyrir milljónir manna um allan heim, gæti þetta ýtt snjóbolta mann­réttinda­baráttunnar...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Páll Jóhann og Sigurður Ingi ræða eflaust gagnrýni á makríl­úthlutun

Úthlutun makríl­kvóta til smábáta er umdeild, en Lands­samband smábáta­eigenda er ekki ánægt með hvernig staðið er að og hefur gagnrýnt Sigurð Inga Jóhannsson, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, fyrir. Einn þeirra báta sem fær úthlutaðan makríl­kvóta er Daðey GK, sem félagið Marver ehf. gerir út. Það félag er skráð til heimilis heima hjá Páli Jóhanni Pálssyni, þingmanni Framsóknar­flokksins. Daðey fær 83,4 tonn,...
Pistill

Tinni Kári Jóhannesson og Þorsteinn V. Einarsson

Misnotkun á hugtakinu hópefli

Okkur, stofn­endum nýs fyrir­tækis á hópeflis- og liðsheildar­markaðnum, er það hjartans mál að leiðrétta misnotkunina á hugtakinu hópefli. Í okkar huga er hópefli hugtak yfir liðsheildar­vinnu sem byggir á kenningum um reynslunám. Nám í þeim skilningi felur í sér að draga lærdóm af reynslu undir hand­leiðslu sérfræðinga til að öðlast aukna færni sem hópeining. Dýpt lærdómsins veltur að miklu leyti...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ríkis­stjórnin að leika sér að eldinum

Þó nú sé búið að semja um kaup og kjör hjúkrunar­fræðinga, þá virðist fátt benda til annars en að undir­ritunin frá því í fyrra­kvöld hafi haft lítinn stuðning meðal hjúkrunar­fræðinga. Ekki var hægt að skilja Ólaf G. Skúlason, formann Félags íslenskra hjúkrunar­fræðinga, með öðrum hætti en að undir­ritunin, þar sem samið var um 18,6 prósent hækkun launa á þremur árum,...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Besti staðurinn fyrir flug­völlinn...er rétt hjá Kefla­víkur­flugvelli

Rögnu­nefndin svonefnda, sem Ragna Árna­dóttir, aðstoðar­forstjóri Lands­virkjunar stýrði, hefur komist að þeirri niður­stöðu að Hvassahraun sé besti staðurinn fyrir flugvöll á höfuð­borgar­svæðinu. Flug­vallar­stæðin sem voru skoðuð eru við Bessa­staðanes, Hólms­heiði, Hvassahraun og Löngusker auk þess sem breytt útfærsla á legu flug­brauta í Vatnsmýri var metin. Áætlaður stofn­kostnaður yrði í öllum tilvikum á bilinu 22 til 25 milljarðar króna, nema á...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Upplýsandi lekar - Ekkert heilagt í valda­brölti alþjóða­stjórnmála

Nýjustu uppljóstr­anir WikiLeaks, sem sýna að bandarísk stjórn­völd hafi njósnað um þrjá forseta Frakk­lands og hlerað símtöl þeirra, verða að teljast með nokkrum ólíkindum. Atburðarás sem þessi gæti frekar verið í spennu­mynd með öllum helstu steríó­týpum Hollywood frekar en í raun­veru­leikanum. Samkvæmt gögnunum stóðu njósnirnar yfir á árunum 2006 til 2012 og var það NSA, Þjóðar­öryggis­stofnun Banda­ríkjanna, sem bar ábyrgð...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Mun Framsókn „Leiðrétta“ unga leigjendur í næstu kosningum?

Framsóknar­flokkurinn er ekki í öfundsverðri stöðu um þessar mundir. Eftir ótrúlegan kosningar­sigur í Alþingis­kosningunum 2013, þar sem Framsóknar­flokkurinn fékk 24,4 prósent atkvæða og 19 þingmenn, hefur fylgið hríð­fallið. Innan flokksins hafði lykilfólk ekki áhyggjur af því framan af kjör­tímabili. Það var visst um að fylgið myndi skila sér aftur þegar stóru kosninga­loforð flokksins, allt að 80 milljarða króna milli­færsla úr...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Sterkasta vopnið gegn hræðslu­áróðri er að dreifa honum ekki á samfélags­miðlum

Sýrlenski stjórnar­herinn berst nú af hörku við liðsmenn Íslamska ríkisins (ISIS), í grennd við hina fornu borg Palmyra, sem er á heims­minjaskrá UNESCO. ISIS hefur hótað að sprengja borgina meira og minna alla upp og eyði­leggja hana, en það hefur ekki gerst enn. Eitt af því sem þessum glæpa­mönnum sem tengja sig við Íslamska ríkið hefur tekist, er að skapa...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Og hvað á bankinn að heita?

Nú þegar hluthafar, Samkeppnis­eftirlitið og Fjármála­eftirlitið hafa blessað sameiningu MP banka og Straums fjár­festingar­banka er komið að því að velja bankanum nýtt nafn. Kosið verður í stjórn næst­komandi mánudag á fyrsta hluthafa­fundi bankans. Misjafnlega fyndnir brandarar hafa verið sagðir um hvað sameinaður banki gæti heitið. Strumpur banki er ein tillaga. Það verður að teljast ólíkleg nafnagjöf. Þetta er ekki í...

Mest lesið undanfarið ár