PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Enginn frá Þróunar­samvinnu­stofnun á ráðstefnu um þróunar­samvinnu

Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra er nú staddur á alþjóðlegri ráðstefnu um fjár­mögnun þróunar­samvinnu í Eþíópíu. Þaðan fer hann svo til Malaví, þar sem hann mun kynna sér starfsemi Þróunar­samvinnu­stofnunar þar í landi. Það vakti athygli einhverra að enginn starfs­maður Þróunar­samvinnu­stofnunar er með Gunnari Braga í för, en umdæmis­stjóri stofn­un­ar­innar í Malaví tekur svo á móti honum í Malaví. Þegar Kjarninn...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Er nóg að taka strætó og hætta að nota símann til að eignast íbúð?

Eygló Harðar­dóttir, félags- og húsnæðis­mála­ráðherra, gefur sér reglulega tíma til að blogga á Eyjunni. Um helgina skrifaði hún pistil um sparnað, sérstak­lega húsnæðis­sparnað. Hún segist hafa átt vini sem fóru hægar í gegnum háskólanám til að þurfa ekki að taka námslán, bjuggu heima hjá foreldrum sínum lengur til að geta sparað fyrir húsnæði og tóku strætó í vinnuna. Hún vilji...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hégóma­girnd ríkis­bankans

Lands­bankinn, sem er nánast að öllu leyti í eigu íslenska ríkisins, ætlar að byggja nýjar 14.500 höfuð­stöðvar við Austur­höfn í Reykjavík. Það finnst ríkis­bankanum góð hugmynd árið 2015, sjö árum eftir að íslenska banka­kerfið hrundi til grunna eins og spilaborg, með öllum sínum hégóma. Áætlaður kostnaður (sem auðvitað stenst í þetta skiptið) er um átta milljarðar króna, og þar eru...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Er gáfulegt að reisa verksmiðju á virku jarð­skjálfta­væði?

Páll Einarsson jarð­eðlis­fræðingur hefur áhyggjur af því að fyrir­huguð kísil­verksmiðja PCC á Bakka við Húsavík geti reynst dauða­gildra vegna nálægðar við þekkt jarð­skjálfta­svæði. Í samtali við RÚV sagði Páll að byggingarlóð verk­smiðj­unar væri á einum óheppi­leg­asta stað Íslands fyrir málm­bræðslu. PCC hyggst reisa verksmiðju sína í 500 metra fjarlægð hinu svokallaða Húsavíkur- og Flat­eyjar­misgengi sem er eitt virkasta jarð­skjálfta­svæði landsins....
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hversu erfitt er að selja miða á lands­leiki sóma­samlega?

Jæja, KSÍ gerði það aftur. Enn eitt miðasölu­klúðrið kom upp í gær, þegar miðar á leik Íslands og Kasakstan í undan­keppni EM fóru „fyrir mistök“ í sölu á vefsíðunni Miði.is. Fyrir­tækið sem sérhæfir sig í að selja miða á hverslags viðburði, setti miða­söluna „óvart“ í gang, en áður en mistökin uppgötvuðust höfðu 85 heppnir einstak­lingar nælt sér í miða á...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Er fullnaðar­sigur á Hollendingum í uppsiglingu?

Íslenska karla­landsliðið í knatt­spyrnu er í 23. sæti á lista FIFA yfir sterkustu knattspyrnu­þjóðir heims, en nýjasti listinn var gefinn út í gær. Ísland hefur aldrei verið ofar á listanum, en liðið stökk upp um fjórtán sæti eftir frækinn sigur á Tékkum á dögunum. Ísland er efst Norður­landanna á listanum, ekki að það skipti öllu máli, en Danir koma fast...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Icesave enn pólitískt vopn í íslenskri stjórnmála­umræðu

Þótt tvö og hálft ár sé liðið frá því að EFTA dómstóllinn hafnaði öllum kröfum Eftirlits­stofnunar EFTA (ESA) í Icesave-málinu svokallaða, að morgni dags þann 28. janúar 2013, er málið fjarri því gleymt. Á vorþingi Alþingis, sem hófst í janúar og lauk í síðustu viku, kom Icesave til að mynda fyrir í 38 ræðum þingmanna. Tilefnið var allskonar. Stundum var...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Er nauðsynlegt að ráða nýjan forstjóra hjá Íbúða­lánasjóði?

Alls sóttu fjórtán einstak­lingar um starf forstjóra Íbúða­lánasjóðs; þrjár konur og ellefu karlar. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna fyrir lok mánaðarins, en Sigurður Erlingsson sagði starfi sínu lausu sem forstjóri sjóðsins í lok apríl síðastliðnum og lét samstundis af störfum. Hann gegndi starfinu frá árinu 2010. Í tilkynningu til Kaup­hallar í apríl vegna forstjóra­breytinganna sagði að...

Mest lesið undanfarið ár