PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Ríki og borg seldu Lands­bankanum lóðina undir nýjar höfuð­stöðvar

Uppi varð fótur og fit fyrr í júlí þegar greint var frá því að Lands­bankinn ætlaði að byggja nýjar höfuð­stöðvar við Austur­höfn í Reykjavík. Margir hafa notað tækifærið til að gagnrýna áformin, þar á meðal forsætis­ráðherrann Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Frosti Sigurjónsson og Vigdís Hauks­dóttir, þingmenn Framsóknar­flokksins, og Elín Hirst og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmenn Sjálfstæðis­flokksins. Látum það liggja milli hluta...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Gott fyrir Ragnheiði Elínu að laun hennar eru ekki árangurs­tengd

Þá er sá tími ársins runninn upp, þegar Íslendingar hnýsast um launakjör landa sinna í tekju­blaði Frjálsrar verslunar. Á meðan mörgum finnst þetta skemmtilegur tími, finnst öðrum forvitnin vera helst til of mikil. Samkvæmt tekju­blaðinu trónir Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands á toppnum, hvað kjör í pólitíkinni varðar, með 2,1 milljón króna í mánaðar­laun að jafnaði, á meðan Sigmundur Davíð...
Pistill

Guðmundur Guðmundsson

Léttlest fyrir leigjendur

Í nýsamþykktu Svæðis­skipulagi Reykja­víkur og nágrennis er reiknað með 70.000 manna aukningu íbúa­fjölda á næsta aldar­fjórðungi. Ný sýn Samtaka sveitar­félaga á svæðinu (SHH) í skipulags­málum snýst í hnotskurn um byltingar­kennt samgöngu­kerfi og byggða­þéttingu. Fram kemur að núverandi byggð hafi dreifst um óvenju stórt svæði undan­farna áratugi. Því gerir áætlunin ráð fyrir að nýbygging næsta aldar­fjórðungs fari að mestu fram innan...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

„Faðir hrefnu­veiðimanns vill auka hval­veiðar“

Það var vissulega óvænt ánægja að heyra Gunnar Braga Sveinsson utan­ríkis­ráðherra, tala fyrir endur­skoðun á hvalveiði­stefnu Íslendinga á dögunum. Ráðherrann segir Íslendinga litna hornauga á alþjóð­legum vettvangi fyrir hval­veiðarnar og að fulltrúum þjóðarinnar sé ekki boðið á suma fundi og ráðstefnur um málefni hafsins sökum þessa. „Við eigum ekki að gefa eftir réttinn til að nýta þessa auðlind frekar en...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Stjórnin hlýtur að hætta við eða hætta

Og meira af Lands­bankanum. Ríkis­bankinn hefur verið harðlega gagn­rýndur fyrir að ætla að byggja sér nýjar 14.500 fermetra höfuð­stöðvar við Austur­höfn í Reykjavík, við hlið Hörpu, fyrir átta milljarða króna. Áform bankans hafa verið harðlega gagnrýnd, og þá sérstak­lega á meðal stjórnar­þingmanna á Alþingi. Þá hefur Vest­manna­eyjabær blandað sér skemmtilega í málið með því að kalla eftir því að boðað...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Það er þetta með viljann

Nú standa öll spjót á stjórn­endum Lands­bankans vegna fyrirætlanna ríkis­bankans um að reisa sér nýjar 14.500 fermetra höfuð­stöðvar við Austur­höfn í Reykjavík, við hlið Hörpu, fyrir litla átta milljarða króna. Áformin hafa verið harðlega gagnrýnd og þá helst á meðal stjórnar­liða á Alþingi, en Guðlaugur Þór Þórðarson, Elín Hirst, Vigdís Hauks­dóttir og Frosti Sigurjónsson eru á meðal þeirra þingmanna sem...
Kjaftæði

Bryndís Eva Ásmundsdóttir

Leiðin okkar allra?

Um helgina upplifði ég í fyrsta sinn ofsagleði yfir því að sjá mann hengja annan. Ég fann þjóðernis­tilfinninguna ólga innra með mér þegar hann náði að læsa sveittum og blóðugum fótleggjum sínum utan um máttvana andstæð­inginn og þrengja síðan að öndunar­vegi hans þar til dómari greip í taumana. Á þeirri stundu veinaði ég dýrslega og steig dálítinn drápsdans, ofurseld frum­stæðum...

Mest lesið undanfarið ár