PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hvar er Margrét Marteins­dóttir?

Þau átök sem átt hafa sér stað innan Bjartrar framtíðar undan­farna daga hafa vart farið framhjá áhuga­mönnum um stjórnmál. Heiða Kristín Helga­dóttir, sem var annar forvígis­manna að stofnun flokksins í febrúar 2012, hefur gagnrýnt sitjandi formann, Guðmund Stein­grímsson, harkalega og sagst tilbúin að taka sæti hans sé vilji fyrir því á meðal flokks­manna. Enginn þingmanna flokksins hefur stigið fram og...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Gunnar Bragi með nokkra stórsigra á skömmum tíma

Það var mat margra að Gunnar Bragi Sveinsson hefði ekki byrjað vel í starfi utan­ríkis­ráðherra. Strax eftir að hann tók við var lagt upp með að hafna Evrópu­sambands­aðild en að stórefla samstarf við Norðmenn og Evrópu á vettvangi EES-samningsins. Samskiptin við Evrópu­sambandið voru hins vegar, vægast sagt, klúðursleg frá fyrsta degi og Ísland var skilið eftir þegar Norðmenn og Færeyjar...
Pistill

Íris Ellenberger

Banda­ríkin, bleik­þvottur og Hinsegin dagar í Reykjavík

Nú er hátíð gengin í garð. Hinsegin dagar standa yfir. Ég settist niður með dagskrár­blað hátíðarinnar til að skipuleggja viku fulla af hinsegin viðburðum. Ráðstefna á mánudaginn, pallborð um kynferðis­ofbeldi á fimmtudaginn, hinsegin húslestrar á föstu­daginn og loks sjálf gleði­gangan á laugar­daginn. Inn á milli dagskrár­liða gluggaði ég í áhuga­verðar greinar um HIV á Íslandi og hinsegin nemendur í íslensku...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Atvinnu­grein sem á allt sitt undir stór­brotinni náttúru landsins

Nýjar tölur frá Ferðamála­stofu sýna að afar hraður vöxtur ferða­þjónustunnar hér á landi markar ákveðin þáttaskil fyrir atvinnu­lífið. Frá áramótum hafa komið tæplega 700 þúsund ferðamenn til landsins, og í júlí fóru 180 þúsund erlendir ferðamenn frá landinu, sem er 25 prósent aukning frá fyrra ári. Töluvert hefur verið deilt um hvernig skuli haga almennri stefnu­mörkun í þessum efnum, þegar...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Gunnþór mætti horfa meira til hagsmuna heildarinnar

Gunnþór Ingvason, forstjóri Sílda­vinnslunnar, segir að stjórn­völd á Íslandi eigi ekki að taka þátt í því að beita Rússa viðskipta­þvingunum, heldur gæta hlut­leysis í málinu. Utan­ríkis­ráðherra, og hans fólk, eigi að einbeita sér að því að gæta hagsmuna íslenskra fyrir­tækja. Afstaða til deiluefna sem tengjast Rússum eigi að ráðast af þeim. Þetta er nokkuð merkileg greining hjá Gunnþóri, á utan­ríkis­pólitík...
PistillPæling dagsins

Magnús Halldórsson

Blekkingar­kerfið enn til staðar

Hank Paulson (Henry, kallaður Hank), fyrr­verandi fjármála­ráðherra Banda­ríkjanna og forstjóri Goldman Sachs bankans til rúmlega 15 ára, hefur gert með nokkuð nákvæmum hætti upp atburðina haustið 2008 þegar bandaríska ríkið lagði ævin­týra­legar fjárhæðir inn í fjár­festinga­banka til þess að koma í veg fyrir allsherjar­hrun fjármála­markaða í Banda­ríkjunum, og hugsanlega mun víðar. Í heimildar­mynd, sem aðgengileg er á þjónustu Netflix, segir...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ekki of stór til að falla í fangið á skatt­greiðendum

Skatt­greiðendur eru aldrei langt undan þegar bankar eru annars vegar. Breskir skatt­greiðendur fengu í gær reikning upp á einn milljarð punda, jafnvirði ríflega 200 milljarða króna, sem rekja má til þess þegar breska ríkið lagði 45,5 milljarða punda inn í Royal Bank of Scotland haustið 2008, vegna þess að hann var talinn vera of stór til að falla. Fyrir 5,4...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Sakar ekki að undirbúa sig vel fyrir tækni­byltingar

Tíðindi úr bíla­iðnaði að undan­förnu benda til þess að miklar breytingar séu handan við hornið. Sumir ganga svo langt að tala um mestu breytingar í meira hálfa öld. Þær snúast meðal annars um þróun á sjálfakandi bílum og einnig miklum framförum sem hafa orðið að undan­förnu þegar kemur að þróun bíla sem ganga fyrir rafmagni. Nýjustu tíðindin, frá því í...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hvernig munu Píratar bregðast við leiftur­sókn fjór­flokksins?

Píratar eru enn á flugi, ef svo má segja. Mælast stærsta stjórn­málaafl landsins, með 32 prósent fylgi, samkvæmt nýjustu könnun Capacent. Það er fjórum prósentu­stigum minna en samanlagt fylgi Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins. Þetta verða að teljast ótrúlegar tölur, sama hvernig á þær er litið, og það sem þessi nýjasta könnun stað­festir er að það er komin ákveðin festa í fylgið....
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Húrra fyrir skattinum - Leiðir nauðsyn­lega breytingu á stjórn­sýslunni

Það var ánægjulegt að sjá fréttir af því á dögunum að útgáfu skatt­korta verði hætt um næstu áramót og að starfs­hópur vinni að því að setja persónu­afsláttinn á rafrænt form. „Að sumu leyti er þetta barn síns tíma. Við erum að hverfa út úr þessu pappírs­þjóðfélagi sem við vorum í fyrir þrjátíu árum og inn í nýja tíma,“ sagði Steinþór...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ótvírætt mikilvægi þeirra sem hafa kjark og þor í einka­rekstri

Skemmtilegt að heyra af því að hjónin Agnes Sigurðar­dóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson, eigendur brugg­verksmiðjunnar Kalda á Árskógssandi í Eyjarði, ætli að færa út kvíarnar með því að koma upp 350 til 400 fermetra bjálka­húsi undir bjórböð sem fólk getur notið góðs af. Vafalítið verða þau vinsæl. Agnes og Ólafur Þröstur eru dæmi um frumkvöðla sem hafa kjark og þor...

Mest lesið undanfarið ár