PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Stjórn­völd nota afleita samninga­tækni og árangurinn er eftir því

„Sjúkra­liðar, lögreglu­menn og félagar í SFR eru brjálaðir yfir því að ríkið bjóði þeim minni kjara­bætur en öðrum stéttum.“ Svo segir í frétt RÚV. Enn eitt alvarlega verk­fallið hjá starfs­fólki í almanna­þjónustu gæti hafist innan tíðar, vegna þess að stjórn­völd hafa haldið þannig á kjara­samningum að sumir hópar fá meira en aðrir. Ríkið er sagt vera að bjóða fyrrnefndnum stéttum...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Engar umdeildar breytingar á ramma­áætlun og kvóta­kerfi - af hverju?

Bæði Sigurður Ingi Jóhannsson sjávar­útvegs­ráðherra og Sigrún Magnúsdóttir umhverfis­ráðherra hafa á undan­förnum dögum tilkynnt að þau ætli ekki að leggja fram neinar umdeildar breytingar á kvóta­kerfinu annars vegar og ramma­áætlun hins vegar á yfir­standandi þingi. Bæði hafa þau gefið í skyn eða sagt berum orðum að það sé til komið vegna átaka um málin sem urðu í fyrra. En hví...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hentistefnu­stjórnmálin

Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlinda­ráðherra var í viðtali við Ríkis­útvarpið í gærkvöldi þar sem hún upplýsti að hún hygðist ekki leggja til neinar frekari breytingar á ramma­áætlun í þinginu í vetur. Sem kunnugt er varð uppi fótur og fit síðastliðinn vetur þegar meirihluti atvinnu­veganefndar, með Jón Gunnarsson í broddi fylkingar, ákvað að bæta við nokkrum nýtingar­kostum á milli umræðna í...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Krónan gæti styrkst um tugi prósenta...nema að henni verði haldið veikri

Eitt af því sem lítið hefur verið rætt um, einkum á vettvangi stjórn­málanna, er hvaða veruleiki getur beðið íslenska hagkerfisins og almennings eftir að aðgerða­áætlun um losun hafta hefur verið framkvæmd. kronueignir Myndin sem hér er meðfylgjandi (að ofan), og fengin er úr glæru­kynningu framkvæmda­hópsins um losun hafta, sýnir stærstu hindranirnar sem hrinda á úr vegi. Staða ríkis­sjóðs mun batna...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Sveitar­félög svara kallinu - Stjórn­völd eiga næsta leik

Sveitar­félög um allt land hafa brugðist við erfiðri stöðu flótta­manna frá Sýrlandi, Írak og Afganistan ekki síst, og boðist til að taka við flótta­mönnum eftir að Akureyrarbær sýndi frumkvæði í þessum efnum. Ljóst er að þau eru nú þegar búin að bjóðast til að taka á miklu fleirum en 50, eins og stjórn­völd höfðu stefnt að. Spennandi verður að sjá...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Allir eiga að vera jafnir fyrir lögunum

Dómsmála­ráðuneytið bandaríska kynnti áhuga­verðar áherslu­breytingar í starfi saksóknara bandaríska ríkisins, hinn 9. september síðast­lið­inni. Samkvæmt endursögn New York Times, mun það verða forgangs­verkefni hjá dómsmála­ráðuneytinu og saksóknurum að lögsækja yfirmenn stærstu fjármála­fyrirtækja Banda­ríkjanna, sem bera ábyrgð á lögbrotum bankanna, sem nú þegar hefur verið sektað fyrir um svimandi háar fjárhæðir í mörgum tilvikum. Mikil gagnrýni hefur komið frá stjórn­völd í...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Ómögulegt að stýra markaðs­þróun á húsnæðis­markaði með góðum vilja

Eitt af því sem nú er að farið að ná eyrum stjórn­málamanna eru erfið­leikar margra á húsnæðis­markaði. Í einfaldri mynd þá er vöntun á litlum og meðal­stórum íbúðum á höfuð­borg­ar­svðinu, eftir­spurnin er töluvert meiri en framboðið, enda stórir árgangar ungs fólks að stíga inn á fasteigna­markað á hverju ári. Lítið hefur verið byggt eftir skellinn frá hruni, þó mörg fasteigna­verkefni...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Spennandi hugmyndir um nýjan þjóðar­leikvang

Eftir stórkost­legan árangur karla- og kvenna­landsliða Íslands í fótbolta á undan­förnum árum er umræða um byggingu nýs þjóðar­leikvangs orðin lifandi á nýjan leik. Eftir að Ísland tryggði sér sæti í úrslita­keppni EM karla, á næsta ári í Frakk­landi, þá er greinilegt að forsvars­menn KSÍ vilja ólmir að nýr völlur rísi. Eða í það minnsta að forsendur fyrir byggingu nýs vallar...

Mest lesið undanfarið ár