PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Reynir á innan­ríkis­ráðherra - Hvað gerir Ólöf?

Kastljós RÚV greindi frá því í gær að dómnefnd sem skipuð var til að meta hæfi umsækjenda teldi Karl Axelsson hrl. hæfastan til að gegna embættinu. Aðrir umsækjendur voru Ingveldur Eiríks­dóttir, settur hæstaréttar­dómari, og Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Mann­réttinda­stól Evrópu. Dómnefndin sem mat Karl hæfastan er skipuð fimm körlum. Ingveldur og Davíð Þór hafa bæði meiri reynslu af dómara­störfum...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hagsmuna­barátta vegna sæstrengs - Almannahags­munir ráði för

Það er ánægjulegt að stjórn­völd eru ekki búin að kæfa niður hugmyndir um lagningu sæstrengs milli Íslands og Bretlands. Ekki er nú skortur á neikvæðum röddum í garð þess verkefnis, jafnvel þó ekki sé enn búið að safna saman öllum upplýsingum um það og skoða hver áhrifin af því gætu orðið fyrir þjóðar­búið. Sá sem hefur verið einna duglegastur í...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Verð­tryggingin festir sig í sessi - Hvað gerir Framsókn?

Að undan­förnu hefur komið skýrt fram að fólk virðist frekar vilja taka verð­tryggð lán en óverðtryggð, í það minnsta sé horft til hlut­falls­legrar skiptingar nýrra húsnæðis­lána eftir tegund lána. Líklega er skiptingin um það bil 70 prósent velja verð­tryggð en um 30 óverðtryggð, en uppfærðar upplýsingar um þróun þessara mála má oft lesa í reglu­legum skýrslum Seðla­banka Íslands. Sveiflurnar í...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hring eftir hring - Mælarnir komnir heim

Orkuveita Reykja­víkur hefur lokað hringsögu mælanna sem segja til um orku­notkun fólks sem Frumherji keypti 14. mars 2001 eftir útboð. Nú eru þeir aftur komnir í eigu Orku­veitunnar, rúmum fjórtán árum síðar, með kaupum upp á 1,5 milljarða króna. Það gæti verið forvitnilegt rannsóknar­verkefni að skoða samfélags­legan ávinning af því að selja mælana, og leigja síðan þjónustu við þá af...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Borgin verður að passa sig - Hval­veiðarnar „standa líka í vegi“ fyrir ýmsu

Lærdómurinn af klúðri borgar­fulltrúa meirihlutans í Reykjavík, þegar kemur að vanhugsaðri tillögu um að sniðganga vörur frá Ísrael, er ekki endilega bara sá að borgin eigi ekki að blanda sér í utan­ríkismál Íslands með yfirborðs­kenndu og órökstuddu orðalagi tillagna, heldur frekar að við lifum í alþjóða­væddum heimi þar sem ákvarðanir stjórn­málamanna hafa bein áhrif á daglegt líf. Eins og Dagur...
Pistill

Oddur Einarsson

Kjara­samningar BHM og ríkisins - Hvað gerðist?

Átján aðildar­félög Bandalags háskóla­manna eiga nú að baki kostnaðar­sama kjara­baráttu við ríkið. Þungar verkfalls­aðgerðir taka að sjálfsögðu sinn toll og sá kostnaður verður ekki allur metinn í krónum. Félögin mættu hins vegar gagnaðila við samninga­borðið sem hvorki var reiðu­búinn að hlusta á þeirra viðhorf, né heldur setja á borð annað en afarkosti.Upphafið Þegar samninga­viðræður við ríkið hófust lögðu viðsemjendur fram...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Eignarnáms­hættuljósin fara strax í gang

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra hyggst leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um menningar­minjar, sem meðal annars fælu í sér heimild til þess að taka mannvirki og lönd eignar­námi. Markmið frum­varpsins er að tryggja frið­lýsingu menningar­minja. Nú er óskandi að á bak við þetta sé góður vilji, en hættu­ljósin fara samt strax í gang. Þarna er forsætis­ráðherra að sýna vilja...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Nú er komið að stelpunum!

Íslensk karla­landslið hafa undan­farið fengið að vera miðpunktar athyglinnar á Íslandi. Lands­liðin í fótbolta og körfu­bolta hafa staðið sig gríðar­lega vel og eru vel að þeim stuðningi sem þau hafa fengið komin. Nú er komið að konunum, því að á morgun mun kvenna­landsliðið í fótbolta vonandi hefja sína vegferð á næsta Evrópumót. Þær hafa sýnt það áður að þær geta...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Að nýta röddina til góðs

Viðbrögð stjórn­valda við flóttamanna­krísunni virðast við fyrstu sýn vera til fyrir­myndar. Þau verða auðvitað útfærð frekar en það skiptir máli að grípa til aðgerða og gera það fljótt, eins og nú er verið að gera. Eitt af því sem íslensk stjórn­völd ætla líka að gera er að beita sér fyrir málinu á alþjóða­vettvangi og hvetja önnur ríki til dáða. Sigmundur...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Vígvöllur launa­baráttunnar - Stjórn­völd hafa haldið illa á spilunum

Nú er útlit fyrir enn eitt verk­fallið á vinnu­markaði, en sjúkra­liðar munu á morgun greiða atkvæði um verkfalls­aðgerðir. Sjúkraliða­félag Íslands, SFR-stéttar­félag í almanna­þjónustu og Lands­samband lögreglu­manna hafa átt í sameig­in­legum kjara­viðræðum við ríkið síðustu mánuði. Lítið hefur þokast í samkomu­lagsátt en deilan hefur verið á borði ríkis­sátta­semjara frá því í júní. Bæði Sjúkraliða­félag Íslands og SFR hafa ákveðið að efna...

Mest lesið undanfarið ár