PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Við hvaða gengi ætli sé miðað?

Stjórnstöð ferðamála verður sett á laggirnar samkvæmt samkomu­lagi sem kynnt var í gær, en Samband íslenskra sveitar­félaga, Samtök ferða­þjónustunnar og ríkis­stjórnin hafa gert það með sér. Stjórn­stöðin mun starfa til ársins 2020 en þá er gert ráð fyrir að gjaldeyris­tekjur Íslands af ferða­þjónustu geti numið allt að 620 milljörðum. Á þessu ári er gert ráð fyrir að gjaldeyris­tekjurnar verði um...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Ráðherrar verða að vera fjárhags­lega sjálf­stæðir

Frá því að Illugi Gunnarsson, mennta- og menningar­mála­ráðherra, opinberaði slæma fjárhags­stöðu sína og fjöl­skyldu sinnar, hafa margar spurningar vaknað hjá almenningi sem er ósvarað enn. Illugi upplýsti sjálfur í viðtali við RÚV í apríl að hann hefði selt íbúð sína við Ránargötu til stjórnar­formanns fyrir­tækisins Orku Energy, og leigir hann nú íbúðina af honum, þar sem hann hefur ekki efni...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Þraut­seigjan borgar sig

Fjár­festinga­sjóðurinn Frumtak 2 hyggst leggja félaginu Arctic Trucks til nýtt hlutafé, samtals verður fjár­festingin um 500 milljónir króna. Verður féð notað til sóknar á erlenda markaði, og meðal annars til að sækja inn á almennan bíla­markað, en til þessa hefur félagið einkum verið á markaði með mikið breytta bíla og náð þar samkeppnis­forskoti og sérstöðu. Saga Arctic Trucks teygir sig...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Verð­skulduð velgengni - Vel gert

Hrútar, kvikmynd Gríms Hákonarson, hlaut Gullaugað á kvikmynda­hátíðinni í Zurich í Sviss. Sigur­ganga myndarinnar á alþjóð­legum kvikmynda­hátíðum heldur áfram, en myndin er framlag Íslands til Óskars­verð­launanna í ár í flokki mynda á öðru máli en ensku. Íslensk kvik­myndagerð hefur verið á mikilli siglingu að undan­förnu, en skemmst er að minnast þess að Þrestir, kvikmynd Rúnars Rúnars­sonar, var valin besta kvik­myndin...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Fylgið fýkur frá Samfylk­ing­unni - Er grunnurinn farinn?

Samfylkingin, í þeirri mynd sem stofnað var til hennar, er horfin. Hún getur ekki talist breið­fylking þeirra sem eru vinstra megin við miðju í stjórn­málum lengur, en það var megin­markmiðið með stofnun flokksins fyrir rúmum fimmtán árum. Skipulagt starf flokksins um land allt stendur eftir, en fylgið hefur fokið frá flokknum á undan­förnum misserum. Nú mælist flokkurinn með 10,1 prósent...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Hanna Birna er ekki fórnar­lamb leka­málsins

Í síðustu viku tilkynnti Hanna Birna Kristjáns­dóttir að hún ætlaði sér ekki að bjóða sig aftur fram til embættis vara­formanns Sjálfstæðis­flokksins. Í bréfi sem hún birti vegna þessa sagði hún m.a.: "En þegar nú blasir við að eina ferðina enn á að stilla ákvörðunum er mig varða upp sem einhverju uppgjöri við hið svokallaða lekamál þá finn ég sterkt að...
Pistill

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir

Verð­tryggingar­stjórn

„Eftir kosningar tekur við framsóknar­stjórn eða verð­tryggingar­stjórn“. Þetta var boðskapur Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar til þjóðarinnar þann 22. apríl 2013. Það er einfalt að afnema verð­tryggingu sagði Framsóknar­flokkurinn fyrir síðustu kosningar, þó lítið hafi verið um efndir eftir kosningar. Á stjórnar­árum Sigmundar Davíðs hefur verð­tryggingin fest sig enn frekar í sessi, ekkert hefur verið gert til að draga úr mikilvægi hennar...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Gott hjá Gunnari Braga

Það var gott hjá Gunnari Braga Sveins­syni utan­ríkis­ráðherra að gagnrýna mann­réttinda­brot Sádi Araba í ræðu sinni á allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna. Til stendur að taka ungan mann af lífi fyrir litlar sem engar sakir, en slíkt er algengt í Sádi Arabíu, því miður. Sádi Arabar hafa lengi fengið að fremja hroðaleg mann­réttinda­brot gagnvart fólki, ekki síst konum. Þær hafa verið grýttar...
Pistill

Guðmundur Guðmundsson

Hugsana­villa aldarinnar

Í sögu­spegli er áhugavert að skoða keimlíka atburðarás í húsnæðis­málum Englands, Svíþjóðar og Íslands. Þessi lönd eru sambærileg um margt. Þau teljast til dæmis strjálbýl þegar flatarmál þeirra er borið saman við fólks­fjölda viðkomandi svæðis. Frá alþjóð­legum flug­völlum Íslands og Svíþjóðar liggur leiðin til borganna að mestu yfir hálfgert eyðiland. Minna en tíundi hluti af flatar­máli Englands eru mann­gerðar byggingar....
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Samanlagt fylgi stjórnar­flokkanna minna en fylgi Pírata undan­farna mánuði

Ný skoðana­könnun Gallup um fylgi flokka, sem framkvæmd var frá lokum ágúst og fram í september­mánuð, fékk líkast til nokkra stuðnings­menn Sjálfstæðis­flokksins til að anda léttar. Hún sýndi að flokkurinn bætti við sig þremur prósentu­stigum þótt að fylgið mælist enn með því lægsta sem flokkurinn hefur nokkru sinni mælst með, 24,4 prósent. Framsóknar­flokkurinn heldur áfram að sveiflast milli níu og...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Þorgerður Katrín þolir ekki stjórn­málamenn sem vilja endalaust láta klappa fyrir sér

Viðtal við Þorgerði Katríni Gunnars­dóttur, fyrrum vara­formann Sjálfstæðis­flokksins, í Frétta­blaðinu í dag hefur vakið verð­skuldaða athygli. Þar talar hún tæpitungu­laust og gagnrýnir flokk sinn fyrir að vera tréhestur. Ljóst er að fleiri deila skoðun Þorgerðar Katrínar, enda mælist fylgi Sjálfstæðis­flokks sögulega lítið um þessar mundir. Í viðtalinu tekur Þorgerður Katrín þó, að minnsta kosti með annarri hendinni, upp hanskann fyrir...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Reglulegar martraðir byssu­menningarinnar

Klukkan 10:38 að staðar­tíma barst neyðar­línunni í Banda­ríkjunum hringing frá dauð­skelkuðum nemanda í Umpqua College í bænum Roseburg í suður­hluta Oregon ríkis. Síðan barst annað símtal fljótlega á eftir. Svo rigndi þeim inn. Örvænting. Hræðsla. Ringul­reið. Bjargar­leysi. Nemendur og kennarar að upplifa sína verstu martröð. Tvítugur maður hóf skothríð í skólanum með þeim afleiðingum að tíu létust og í það...

Mest lesið undanfarið ár