PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hvert er planið? - Risavaxið verkefni framundan

Heimsókn Francois Hollande, forseta Frakk­lands, hingað til lands í tengslum við Arctic Circle ráðstefnuna í Hörpu, dregur athyglina að umhverfis­verndar­málum, enda Loftslags­ráðstefnan í París á næsta leyti. Hollande hefur ferða vítt og breitt um heiminn til að tala fyrir mikilvægi ráðstefn­unnar, en vonir standa til þess að afgerandi ákvarðanir verði teknar í París til að sporna við alvarlegum afleiðingum loftslags­breytinga...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Þremur milljónum breytt í tæplega sextán milljónir á skömmum tíma

Tökum dæmi af fólki sem ákvað að ávaxta sparnað sinn á íslenskum hlutabréfa­markaði á undan­förnum árum, og þannig tekið þátt í endur­reisn hans, eftir ævintýralegt fall samhliða hruni fjármála­kerfisins. Fólkið fjárfesti þremur milljónum og ákvað að kaupa bréf í þremur fyrir­tækjum. Ein milljón fór í að kaupa hlutabréf í Icelandair, í nóvember 2009, á genginu 2,85. Önnur milljónin fór í...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Gagnrýndi Davíð en á nú fjármála­fyrirtæki með einum stærsta eiganda Morgun­blaðsins

Helgi Magnússon, vara­formaður Lífeyris­sjóðs verslunar­manna og fjár­festir, sendi tölvupóst á 25 manna hóp, að mestu skipaðan áhrifa­mönnum innan atvinnu­lífsins, þann 16. mars 2014. Í póstinum rakti Helgi áhyggjur sínar af því ástandi sem hann taldi að skapast hefði á Íslandi á þeim tíma. Póstinn er hægt að lesa hér að neðan. helgimagg Einn þeirra sem svaraði póstinum var Sigurður Arngrímsson,...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Óafsakanlegt dómgreindar­leysi

Hæstiréttur hefur úrskurðað að Guðjón St. Marteinsson þurfi að víkja sæti sem dómari í Aurum-málinu svokallaða, en í því eru ákærðu Jón Ásgeir Jóhannesson athafna­maður, Bjarni Jóhannesson, fyrr­verandi starfs­maður Glitnis, Magnús Agnar Arngrímsson, fyrr­verandi starfs­maður Glitnis, og Lárus Welding, fyrr­verandi forstjóri Glitnis. Þeir voru allir sýknaðir í Héraðs­dómi Reykja­víkur 5. júní í fyrra en niður­staðan var ómerkt í Hæstarétti í...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Þegar hægt er að ná til manna með fyrir­greiðslu og setja þá í stöðu til að skulda greiða

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra tjáði sig um vandræði Illuga Gunnars­sonar, mennta- og menningar­mála­ráðherra í ríkis­stjórn hans, í tíufréttum RÚV í gær. Þar sagðist hann ekki skilja hvað Illugi hefði gert rangt og að tengsl ráðherrans við Orku Energy hefðu engin áhrif á setu Illuga í ríkis­stjórn. Illugi neyddist til að selja íbúð sína vegna fjárhags­vandræða og fékk vin sin, Hauk...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Eitt prósent á helming alls auðs í heiminum - Sláandi veruleiki

Um helmingur af öllum auði í heiminum er nú í eigu hundraðs­hluta íbúa jarðar. Hin 99 prósent skipta á milli sín 49,6 prósent af auðinum, samkvæmt nýrri úttekt svissneska bankans Credit Suisse. Til þess að tilheyra ríkari helmingnum þarf viðkomandi að eiga 400 þúsund krónur eða meira, en til þess að tilheyra þessu eina prósenti sem á meira en helminginn...
Pistill

Nanna Hlín Halldórsdóttir

Af hverju trúum við ekki á fólk?

Þessar síðustu vikur og mánuði hef ég ósjaldan velt því fyrir mér að hversu miklu leyti stjórnmála­fólk sem hefur tjá sig um fjárhags­aðstoð, öryrkja og bóta­kerfið hafi þurft að reiða sig á velferðar­kerfið. Því stundum nálgast það fulla vinnu að „díla“ við kerfið og sanna fyrir því að maður sé virkilega veikur. Sem lýsir algerri pattstöðu fyrir veikt fólk; það...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Mikil­vægir áfangar á skömmum tíma - Erlend lánalína og uppgjör við Icesave og AGS

Greint var frá því í gær að Lands­bankinn, sem ríkið á 98 prósent hlut í, hefði stigið afgerandi skref útt á erlendan fjármála­markað með skuldabréfa­útgáfu upp á 300 milljónir evra, eða sem nemur um 43 milljörðum króna. Vextirnir er fastir þrjú prósent, að viðbættur vaxta­álagi upp á 2,95 prósent. Það telst vera mikið, miðað við gang mála á fjármála­mörkuðum, en...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Fjármála­eftirlitið ræður ferðinni - Leyfir bönkum að stunda óskyldan rekstur

Fjármála­eftirlitið (FME) er sú stofnun á fjármála­markaði sem á að gæta almannahags­muna. Það er varð­hundur almennings gagnvart fjármála­kerfinu. Eftir hið fordæma­lausa hrun, þar sem innanmein bankanna - einkum stórfelld fjár­mögnun þeirra á eigin hlutafé - fór fram hjá FME, þá er ekki laust við að mikið verk hafi beðið stofn­un­ar­innar við að endur­heimta trúverðug­leika. Hann var því sem næst enginn...

Mest lesið undanfarið ár