PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

„En þú munt aldrei fá hatur mitt“ - Sterk skilaboð

„Á föstudags­kvöldið tókstu líf einstakrar manneskju. Ástar lífs míns, móður sonar míns. En þú munt aldrei fá hatur mitt.“ Þetta sagði Antoine Leiris sem missti eiginkonu sína í árásunum í París í opnu bréfi á Facebook þar sem sem hann talaði til morðingja konu sinnar. Þetta eru sterk orð, og mikill þungi sem í þeim býr. Skila­boðin eru líka heilbrigð...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Hagsmunir haldast í hendur hjá borg og lands­byggð í örríkinu

Ísland er eitt minnsta ríkja­samfélag heimsins, með íbúa­fjölda svipaðan og í Harlem (335 þúsund) í New York og Coventry á Englandi (317 þúsund). Samfélagið er þó stórt í þeim skilningi að það er afsprengi stór­brotinnar náttúru á lands­svæði sem er hlutfalls­lega stórt miðað við heildar­íbúafjölda, eða sem nemur meira tvöfaldri stærð Danmerkur, þar sem búa 5,7 milljónir. Stutt hagsaga Í...
Hamingjan

Helga Arnardóttir

Tíu leiðir til að auka hamingju

Helga Arnar­dóttir er að búa til hamingju-app sem byggir á jákvæðri sálfræði og inni­heldur æfingar til auka hamingju í eigin lífi og efla andlega heilsu. Hún leitar eftir hópfjár­mögnun á Karolina Fund, en þar kemur fram að hún hafi unnið á Kleppi í sex ár þar sem fagleg vinna snerist að miklu leyti um að greina það sem væri að. „Það er auðvitað mikilvægt að draga úr vanlíðan og hjálpa fólki með það sem gengur illa í lífinu, en það má hins vegar ekki gleyma því að horfa á það sem vel gengur.“ Með því að ýta undir styrk­leika sé hægt að ýta undir aukna vellíðan. Hér deilir hún því hvað hún gerir til að auka hamingju í eigin lífi og útskýrir af hverju hún byrjaði á því.
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Barist um ríkis­bitana á höfuð­borgar­svæðinu

Byggðamál eru oft í brennidepli, og þá ekki síst meintur rígur milli höfuð­borgar­svæðisins og lands­byggðarinnar. Það glittir hins vegar oft einnig í ríginn milli sveitar­félaga á höfuð­borgar­svæðinu. Á bæjar­ráðsfundi í Kópavogi, í byrjun síðasta mánaðar, kom fram mikil óánægja hjá kjörnum fulltrúum í Kópavogi með það, hversu mikið Reykja­víkurborg fengi úr ríkis­sjóði vegna fasteigna­gjalda. Á hverju ári fær Reykja­víkurborg um...
Pistill

Margrét Tryggvadóttir

Glæpur Samfylk­ing­ar­innar

Árið 2005 sendi miðstjórn Rafiðnaðar­sambands Íslands frá sér ályktun um að tímabært væri að endur­skoða hátíðar­höldin 1. maí. Kröfu­gangan væri barn síns tíma og stæði ekki undir væntingum félags­manna. Í staðinn var stungið upp á víðtækri skemmti­dag­skrá í Laugar­dals­höllinni og frímiðum í húsdýra­garðinn. Að lokum segir í ályktuninni: „Miðstjórn RSÍ leggur til að verkalýðs­hreyfingin sameinist ásamt Samtökum atvinnu­lífsins um að...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Fólk getur sjálft skipt sköpum með lífsstíls­breytingu

Stjórn­völd stefna að því að draga úr losun gróðurhúsa­lofttegunda um 40 prósent, miðað við árið 1990, fyrir árið 2030. Þetta er háleitt markmið, og sem dæmi um það er vert að nefna, að ekki dugar að rafvæða allan bíla­flotann á höfuð­borgar­svæðinu. Ganga þarf mun lengra, og þurfa sveitar­stjórnir og ríkis­stjórn á hverjum tíma og leiða þetta verkefni áfram ásamt fyrir­tækjum....
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Siðferðis­ramminn og valið milli pennans eða sverðsins

Þorsteinn Gylfason heitinn heimspeki­prófessor, var afburða­maður í fagi sínu og eftir­minnilegur. Afköstin á löngum ferli voru með ólíkindum, og þegar hann blandaði sér í opinbera umræðu, þá lagði hann gott til málanna, og oft hyldjúpa speki. Lesbók Morgun­blaðsins var oft vettvangur sjónar­miða hans. Þorsteinn gat líka sett hluti í hvers­dags­legt samhengi, og gerði það eftir­minnilega á fundi um siðfræði stríðs­átaka,...

Mest lesið undanfarið ár